Morgunblaðið - 21.12.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
Sími 555 2992 / 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Stigar og tröppur í mjög góðu úrvali
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Enn liggur ekki fyrir hvenær við-
bygging við hjúkrunarheimilið Skjól-
garð á Höfn í Hornafirði verður tekin
í notkun. Framkvæmdir hafa tafist,
nú síðast vegna þess að of há tilboð
bárust í byggingu hússins. Aðstæður
eru sagðar óviðunandi í núverandi
húsnæði og hafa íbúar, aðstandendur
og starfsfólk vakið athygli á því með
mótmælum þrjá undanfarna föstu-
daga og hyggjast halda því áfram þar
til framkvæmdir hefjast.
Nú eru rými fyrir 27 heimilismenn
á Skjólgarði. Þeir eru allir tveir sam-
an í litlum herbergjum nema hvað
tveir eru í einbýli. Allir deila snyrt-
ingu og baði með öðrum.
Eftir að viðbygging sem dregist
hefur að byggja kemst í gagnið verð-
ur rými fyrir 30 heimilismenn og fá
allir rúmgóða aðstöðu í sérbýli.
Átti að vera byrjað
„Okkur er alltaf sagt að bíða aðeins
lengur. Þetta sé alveg að fara að ger-
ast, sé í einhverri nefnd eða ráðu-
neyti. Ég byrjaði hér fyrir einu og
hálfu ári, þá áttu framkvæmdir að
fara að hefjast en enn hefur ekkert
gerst,“ segir Jóhanna Sigríður
Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Skjólborg.
Hún segir einnig að starfsaðstaða
starfsfólks sé ekki góð, það aðstoði
íbúana oft við erfiðar aðstæður og
vinni framúrskarandi gott starf.
Hún segir að mótmæli íbúa og að-
standenda síðustu þrjá föstudaga hafi
verið algerlega að frumkvæði íbúa.
„Þau eru ekki að berjast fyrir eigin
hag, hugsa kannski að þau komist
ekki sjálf í nýtt húsnæði, en berjast
fyrir þau sem á eftir koma,“ segir Jó-
hanna og vonast enn eftir að þau fái
jólagjöfina, að framkvæmdir hefjist.
Þegar húsnæði hjúkrunarheimilis-
ins var byggt, árið 1996, var það
hugsað sem fyrsti áfangi. Annar
áfangi er enn óbyggður og þótt hann
hafi verið undirbúinn hefur tafist að
hefja framkvæmdir.
Matthildur Ásmundardóttir, bæj-
arstjóri Sveitarfélagsins Horna-
fjarðar, segir að framkvæmdir hafi
tafist vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Þegar svo bygging hússins var
boðin út í sumar hafi aðeins komið
tvö tilboð og bæði verið of há. Þeim
hafi verið hafnað. Hins vegar hafi
Framkvæmdasýsla ríkisins nýtt
heimild í lögum til að ræða við hönn-
uði og bjóðendur. Segir hún að tillaga
um nýtt fyrirkomulag sem eigi að
skila sér í lægri kostnaði sé komin til
heilbrigðisráðuneytisins. Óska þurfi
eftir nýju tilboði frá bjóðanda, sam-
kvæmt nýrri hönnun, og málið þurfi
að fara fyrir samstarfsnefnd um op-
inberar framkvæmdir til að aukið
fjármagn fáist. „Ég vona að þetta
gangi upp. Hin leiðin er að hefja til-
boðsferlið upp á nýtt. Ég tel það ekki
koma til greina,“ segir Matthildur.
Eldri hlutinn lagfærður
Þegar viðbyggingin er risin þarf
að flytja heimilisfólkið í hana á með-
an verið er að lagfæra eldri hlutann.
Þá verður bætt við aðstöðu fyrir lík-
hús sem sveitarfélagið kostar. Áætl-
ar Matthildur að framkvæmdir taki
um þrjú ár.
Hún segir að með viðbyggingunni
og lagfæringum á núverandi húsnæði
fái allir heimilismenn sitt eigið her-
bergi og rýmra verði um þá og
starfsfólk og aðstaða verði fyrir
sjúkraþjálfun, hágreiðslu og aðra
persónulega þjónustu við heim-
ilisfólk.
Ljósmynd/Aleksandra Dobrecevic
Mótmæli Heimilisfólk vill fá nýtt hjúkrunarheimili strax.
Dregist að hefja framkvæmdir
- Heimilisfólk og aðstandendur á Skjól-
garði á Höfn vilja nýtt hjúkrunarheimili
Stofnvísitala þorsks samkvæmt
haustmælingu hefur lækkað töluvert
frá árinu 2017 þegar hún mældist sú
hæsta frá upphafi haustmælingar og
er nú svipuð því sem hún var árin
2008-2009. Guðmundur Þórðarson,
sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun,
segir þessar niðurstöður úr haustralli
ákveðin vonbrigði. Vöntun sé á milli-
fiski 5-8 ára, 35-75 sentimetra fiski, og
skýri það einkum lægri vísitölu, en ár-
gangar frá 2013 og 2016 eru litlir.
Guðmundur segir að niðurstöðurn-
ar núna séu í samræmi við það sem
var í haustralli fyrir ári. Sú uppsveifla
sem varð í mælingum síðasta vor hafi
ekki skilað sér í haustrallinu núna.
Hann segir niðurstöðurnar ríma við
það hvernig þorskveiðar gengu í
haust á sama tíma og mælingin var
gerð, en þá hafi víða verið mjög tregt.
Fæða þorsks var fjölbreytt en magn
loðnu, rækju og ísrækju í mögum
þorsks hefur minnkað á síðari árum.
Minna var af ársgömlum þorski, ár-
gangi 2020, en vonast hafði verið til,
að sögn Guðmundar. Fyrsta mæling á
þessum árgangi í haustralli í fyrra var
sú hæsta frá upphafi, en nú er ár-
gangurinn metinn vera nálægt lang-
tímameðaltali.
Ýsan er að sögn Guðmundar á
hægri uppleið. Stofnvísitala ýsu hefur
almennt farið hækkandi frá árinu
2016 og var mælingin í ár sú hæsta frá
2009. Lítið er af þriggja ára ýsu, en
yngstu árgangarnir eru sterkir.
Ufsinn hefur gefið eftir
Vísitala ufsa hefur farið lækkandi
frá 2018, vísitala gullkarfa var svipuð
og í fyrra eftir lækkun fyrri ára. Vísi-
tala djúpkarfa sýndi jákvæða þróun
en vísitölur grálúðu og blálöngu
breyttust lítið frá nokkrum fyrri ár-
um og eru undir meðaltali tímabilsins.
Vísitala gulllax hækkaði og er sú
hæsta sem mælst hefur í haustralli.
Stofnar hlýra, tindaskötu, sand-
kola, langlúru, þykkvalúru, skráp-
flúru og hrognkelsis eru í sögulegu
lágmarki, segir í tilkynningu Haf-
rannsóknastofnunar. aij@mbl.is
Þorskur Vöntun er á millifiski.
Stofnvísitala
þorsks lækkar
- Niðurstöðurnar
ákveðin vonbrigði
- Ýsan á uppleið