Morgunblaðið - 21.12.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
Í frétt sem birtist í gær um hækk-
andi verð á áburði sagði að verð á
köfnunarefni hefði hækkað um 211
prósent á nýbirtum verðlista Slátur-
félags Suðurlands. Rétt er að hækk-
unin var 98 prósent ef nýr verðlisti
er borinn saman við þann sem gefinn
var út í júní 2021. Er beðist velvirð-
ingar á þessu.
Hækkaði um 98%
LEIÐRÉTT
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur gefið
grænt ljós á að innréttað verði kaffihús og
vínbar í húsinu á lóð nr. 12 við Skólavörðu-
stíg, Bergstaðastrætismegin. Ætlunin er að
bæta þjónustu við viðskiptavini Kramhúss-
ins, sem er í bakhúsi á sömu lóð.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfull-
trúa 19. nóvember síðastliðinn var lögð fram
fyrirspurn THG Arkitekta ehf. um að breyta
notkun rýmisins. Áður var þar starfrækt
verslun Rauða krossins.
Fyrirspurninni var vísað til umsagnar
verkefnisstjóra. Fram kemur í greinargerð
hans að húsið á lóð nr. 12 við Skólavörðustíg
sé steinsteypt verslunar-, skrifstofu- og íbúð-
arhús á fjórum hæðum, byggt árið 1942 skv.
fasteignaskrá. Samkvæmt aðalskipulagi er
lóðin og byggingin á Skólavörðustíg 12 á
svæði með takmarkaðar veitingaheimildir. Í
því felst að það má heimila veitingastaði,
kaffihús og krár í flokki I-II með almennum
þjónustutíma til kl. 23 helgar/frídaga. Í
rekstrarleyfi má heimila útiveitingar, þó
aldrei lengur en til kl. 22. Kaffihús á þessum
stað rúmist innan takmarkana um 50% sömu
starfsemi.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athuga-
semdir við veitingu rekstrarleyfis fyrir kaffi-
hús/vínbar á jarðhæð Skólavörðustígs 12 sem
snýr að Bergstaðastræti, segir í greinargerð
verkefnastjórans. Sækja þurfi um bygging-
arleyfi fyrir breytingum á innra fyrir-
komulagi rýmisins. Byggingarleyfisumsóknin
gæti falið í sér að afla þurfi samþykkis með-
eiganda ef breytingarnar eru miklar.
Kramhúsið hefur starfað um áratuga
skeið. „Kramhúsið er orkustöð miðbæjar
Reykjavíkur þar sem dansinn dunar og ork-
an rís. Þau sem þangað koma vilja aldrei
fara aftur! Fjölbreytnin er ótrúlegt, allt frá
pilates, til Beyoncé, til burlesque, til afró og
svo mikið meira!“ segir m.a. á heimasíðu
hússins.
sisi@mbl.is
Leyft að opna vínbar og kaffihús
- Bæta á þjónustu
við viðskiptavini
Kramhússins - Orku-
stöð miðbæjarins
Morgunblaðið/sisi
Kaffihúsið Veitingar verða þar sem áður var verslun Rauða krossins.
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
Íslandsstofa og Markaðsstofur
landshlutanna hafa skrifað undir
samninga um samvinnu við erlenda
markaðssetningu á Íslandi sem
áfangastað.
Íslandsstofa og Markaðs-
stofurnar hafa lengi unnið náið
saman en nú hefur samstarfið verið
formgert í samræmi við skilgreint
hlutverk nýrra áfangastaðastofa
sem Markaðsstofurnar sinna í sín-
um landshlutum, segir í frétta-
tilkynningu. Samningurinn er til
þriggja ára, frá 2021 til og með
2023.
Unnið er eftir stefnumótun
stjórnvalda um að tryggja sjálf-
bæran vöxt ferðaþjónustu um allt
land í krafti gæða og fagmennsku
og að Ísland verði leiðandi í sjálf-
bærri þróun árið 2030. Meðal verk-
efna eru upplýsingamiðlun, sam-
skipti við fjölmiðla og áhrifavalda,
ráðgjöf um efni á vef og markaðs-
verkefni, uppbygging á sameigin-
legum myndabanka og fleira.
Samstarf Arnheiður Jóhannsdóttir og Pétur Óskarsson handsöluðu sam-
starf Íslandsstofu og Markaðsstofa landshlutanna um landkynninguna.
Fara í samstarf um
markaðssetningu
Skráð voru 677 hegningarlagabrot
á höfuðborgarsvæðinu í nóvember
og fækkaði þessum brotum töluvert
á milli mánaða. Þetta kemur fram í
mánaðarskýrslu lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu fyrir nóv-
ember síðastliðinn.
Tilkynningum um þjófnaði fækk-
aði á milli mánaða sem og tilkynn-
ingum um um innbrot. Það sem af
er ári hafa borist um átta prósent
færri tilkynningar um innbrot en
bárust að meðaltali á sama tímabili
sl. þrjú ár á undan.
Minna um þjófnað
og önnur lagabrot