Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 14

Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 14
14 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Í umsögn minnsta lífeyrissjóðs lands- ins, Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ), um frumvarp til laga um breytingu á fjárlögum næsta árs eru gerðar alvar- legar athugasemd- ir við breytingar á eftirlitsgjaldi líf- eyrissjóða. Í umsögninni segir að verði fyrirliggjandi frumvarp að lög- um muni eftirlits- gjald sjóðsins hækka um 30% frá fyrra ári. Þar segir jafnframt að breytingin hafi langmest áhrif á LTFÍ, en fram kemur í um- sögninni að ójafnræðis gæti um skipt- ingu eftirlitsgjalds milli lífeyrissjóð- anna ef horft er til stærðarmunar þeirra. Minni lífeyrissjóðir greiði hærra hlutfall af hreinni eign í formi eftirlitsgjalds en þeir stóru. Aðalástæða ójafnrar skiptingar ræðst af fyrirhuguðu föstu gjaldi sem fer úr þremur milljónum í fjórar millj- ónir hjá LTFÍ. Breytilegt gjald svo- kallað lækkar hins vegar úr 178 þús- und krónum í 135 þúsund. LSR með 36 milljónir Tekið er dæmi þar sem stærsti sjóður landsins, LSR, er borinn sam- an við LTFÍ. Heildareignir LSR í lok árs 2020 námu 1.167 milljörðum króna en heildareignir LTFÍ 7,9 milljörðum. Sjóðfélagar LSR eru nærri 33 þúsund en 363 hjá LTFÍ. Eftirlitsgjald LSR vegna 2022 á að vera 36 milljónir en rúmar fjórar milljónir hjá LT. Það þýðir að eftir- litsgjald á hvern virkan sjóðfélaga LSR er 1.097 kr. en 11.391 hjá LTFÍ, eða meira en tífalt hærra. Sigurgísli Ingimarsson stjórnar- formaður LT segir í samtali við Morgunblaðið að krafa sjóðsins sé að eftirlitsgjaldið verði lækkað. „Ég hef starfað á vettvangi lífeyrissjóðsins í þrjátíu ár og þetta er það versta sem ég hef fengið í andlitið frá upphafi,“ segir Sigurgísli. „Það er svo mikið óréttlæti í þessu.“ Eins og Sigurgísli útskýrir þá taldi hann að málið hefði fengið farsæla lendingu hjá efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis í fyrra, en þá hafði Fjármálaeftirlitið, að sögn Sigurgísla, gefið út erindi um að ekki væri rétt gefið í málinu. Því skjóti það skökku við þegar málið er tekið upp núna að gjaldið sé hækkað enn frekar. Fari þetta óbreytt í gegn hækki gjaldið um 48% á tveimur árum, að sögn Sigur- gísla. Átta mig ekki á röksemdum „Ég átta mig ekki á röksemdar- færslunni á bak við þetta. Við gerum ekki athugasemdir við að vera undir eftirliti síður en svo. Í starfsemi sem þessari þarf eftirlit að vera öflugt. Það þarf hins vegar að gæta jafnræðis þegar kostnaði við eftirlitið er skipt á milli aðila. Það er ekki gert í dag.“ Sigurgísli bendir á að lífeyrissjóðir séu ekki eins og hvert annað fyrir- tæki. Grunneining lífeyrissjóða séu sjóðfélagarnir sem séu eigendur sjóð- anna. Þá geti margir sjóðfélagar ekki ákveðið hvar þeir séu í sveit settir en um helmingur launamanna hafi ekki val um hvar þeir ávaxta sín iðgjöld. Þegar af þeirri ástæðu sé ótækt að dreifa byrðunum af eftirlitinu með jafn óréttlátum hætti og hér sé gert. Rekinn af Landsbankanum LTFÍ er rekinn af Landsbankan- um og hefur skilað afbragðsávöxtun að sögn Sigurgísla, en einungis sjóð- félagar, tannlæknar, sitja í stjórn. „Við þurfum ekki að skammast okkar fyrir ávöxtunina eða reksturinn að öðru leyti, enda tileinkum við okkur einfalda aðferðarfræði við rekstur sjóðsins þ.e. hagfræði hinnar hagsýnu húsmóður. Svona álögur vega því þungt hjá okkur. Þetta er lítill sjóður en afar vel rekinn.“ Sigurgísli segir að lokum að með því að festa þetta fyrirkomulag gjald- töku enn frekar í sessi sé rekstrar- grundvelli minni lífeyrissjóða ógnað. Eftirlitsgjald hækkar um 30% Morgunblaðið/Eggert Fjármunir Sigurgísli segir að gæta þurfi jafnræðis þegar kostnaði er skipt. - Minnsti sjóður landsins fær hlutfallslega mestu gjaldaaukninguna - Tíu sinnum hærra á hvern sjóðfélaga en hjá LSR - Mikið óréttlæti - Grundvelli minni lífeyrisssjóða ógnað - Í eigu félaga Sjóður tannlækna » Lífeyrissjóður Tannlækna- félags Íslands er fyrir tann- lækna og maka þeirra. » Stofnaður árið 1959. » Árið 1999 var honum breytt í almennan lífeyrissjóð. » Sjóðurinn er frjáls í þeim skilningi að enginn er þving- aður í hann eins og á við um marga sjóði. Sigurgísli Ingimarsson 21. desember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.21 Sterlingspund 171.81 Kanadadalur 100.78 Dönsk króna 19.687 Norsk króna 14.384 Sænsk króna 14.248 Svissn. franki 140.65 Japanskt jen 1.1413 SDR 180.85 Evra 146.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.8556 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Hagstofu Íslands mun íbúafjöldi landsins innan fárra ára fara í 400 þúsund í fyrsta sinn í sögu landsins. Annaðhvort árið 2024, samkvæmt miðspá, eða árið 2023, samkvæmt háspá, en lágspáin gerir ráð fyrir sáralítilli íbúafjölgun og verður því að teljast mun óraunhæfari, í ljósi íbúafjölgunar frá aldamótum. Íslendingar senn 400 þús. - Samkvæmt háspá Hagstofunnar næst sá áfangi 2023 - Hagstofan kynnir mannfjöldaspá fram til ársins 2070 Mannfjöldi 1960-2021 og spá til 2070, þúsundir íbúa 600 500 400 300 200 100 Rauntölur um íbúafjölda Mannfjöldaspá: Háspá Miðspá Lágspá Heimild: Hagstofa Íslands 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 2030 2040 2050 2060 2070 174 204 227 254 279 318 364 385 460 387 500 382 538 581 466 371 355 476 626 Eins og Morgunblaðið hefur reglulega fjallað um hefur aðflutn- ingur erlendra ríkisborgara átt veigamikinn þátt í íbúafjölgun á Ís- landi frá aldamótum. Þannig höfðu í lok þriðja ársfjórðungs í ár 54.183 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því frá árinu 2000 og 31.470 frá árinu 2015. Úr 330 í 375 þúsund Þessi aðflutningur á mikinn þátt í því að landsmönnum hefur fjölgað úr 329.100 í ársbyrjun 2015 í 374.830 á þriðja fjórðungi í ár. Samsvarar þessi íbúafjölgun rúm- lega samanlögðum íbúafjölda Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar. Við gerð nýju mannfjölda- spárinnar hefur Hagstofan fram- reiknað mannfjöldann fyrir tímabilið 2021-2070 á grundvelli tölfræði- líkana fyrir búferlaflutninga, frjó- semi og dánartíðni. Við spána er meðal annars tekið tillit til hag- vaxtar, frjósemi og búferlaflutninga. Hinar þrjár ólíku sviðsmyndir eru sýndar á grafinu hér fyrir ofan. Samkvæmt lágspánni verða landsmenn tæplega 385 þúsund árið 2030, sem yrði fjölgun um rúmlega 10 þúsund frá núverandi fjölda. Samkvæmt miðspánni verða landsmenn orðnir um 420 þúsund talsins árið 2030 eða ríflega 45 þús- und fleiri en nú. Loks gerir háspáin ráð fyrir að íbúafjöldinn verði komin í um 460 þúsund árið 2030 sem yrði fjölgun um ríflega 85 þúsund íbúa. 355 til 626 íbúar þúsund 2070 Sé horft út spátímann gerir lágspáin ráð fyrir 355 þúsund íbúum árið 2070, sem yrði fækkun frá nú- verandi íbúafjölda, 476 þúsund íbú- um í miðspá og tæplega 626 þúsund íbúum í háspá. Ber að hafa í huga að þegar horft er svo langt fram í tím- ann geta hægfara breytingar haft mikil áhrif á lengra tímabili. Á þessari öld hefur íbúum fyrst og fremst fjölgað á höfuðborgarsvæð- inu og í nágrenni. Með sama áfram- haldi mun íbúafjöldinn á höfuð- borgarsvæðinu nálgast 300 þúsund á næstu tveimur áratugum en þeim íbúafjölda var fyrst náð á landinu öllu árið 2006. Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Gjafakort Einstök jólagjöf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.