Morgunblaðið - 21.12.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021
Joe Biden Bandaríkjaforseti er
sagður í þröngri stöðu eftir að Joe
Manchin, öldungadeildarþingmaður
demókrata í Vestur-Virginíuríki,
lýsti yfir á sunnudaginn að hann
gæti ekki stutt frumvarp flokks síns
um umbætur á ýmsum velferð-
armálum í kjölfar heimsfaraldurs-
ins.
Biden og forsvarsmenn demó-
krata á Bandaríkjaþingi höfðu lagt
þunga áherslu á að fá frumvarpið
samþykkt, en það felur í sér inn-
spýtingu á um 1,75 billjónum banda-
ríkjadala, eða um 227 billjónum ís-
lenskra króna til heilbrigðis- og
menntamála auk orkuskipta.
Upphaflegar
áætlanir gerðu
ráð fyrir að 3,75
billjónum banda-
ríkjadala yrði
varið til þessara
verkefna, en
Manchin hafði
sagt að hann
gæti ekki fellt sig
við pakka sem
væri stærri en 1,5 billjónir. Hvíta
húsið og leiðtogar demókrata á
þingi töldu sig hins vegar hafa náð
málamiðlun við Manchin um að
pakkinn næði 1,75 billjónum banda-
ríkjadala.
Hvíta húsið brást hart við yfirlýs-
ingu Manchins, en þingmaðurinn
gaf hana á Fox-fréttastöðinni, sem
sögð hefur verið hliðholl repúbli-
könum. Sagði Jen Psaki, fjölmiðla-
fulltrúi Hvíta hússins, að Manchin
hefði óvænt og af óútskýrðum
ástæðum gengið á bak loforðum
sínum gagnvart Biden.
Chuck Schumer, leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni, hét því að
frumvarpið yrði lagt fram aftur í
endurskoðaðri mynd, en stjórn-
málaskýrendur vestanhafs telja að
án þess muni demókrötum ganga
illa í komandi þingkosningum, sem
eiga að fara fram í nóvember nk.
Manchin sakaður um eiðrof
- Frumvarp demókrata um umbætur í velferðarmálum
í hættu - Afstaða Manchin sögð áfall fyrir Joe Biden
Joe Manchin
Gríðarleg fagn-
aðarlæti brutust
út á götum San-
tiago, höfuð-
borgar Síle, á
sunnudags-
kvöldið, þegar
ljóst var að
vinstrisinninn
Gabriel Boric
hefði borið sigur
úr býtum í seinni
umferð forsetakosninga landsins.
Boric, sem er 35 ára gamall,
verður með yngstu þjóðhöfðingjum
heims þegar hann tekur við emb-
ætti í mars á næsta ári.
Boric, sem hefur verið sakaður
um að vera kommúnisti, hlaut um
56% atkvæða, en keppinautur hans,
Jose Antonio Kast, sem þykir afar
íhaldssamur, fékk um 44%. Var
munurinn meiri en kannanir höfðu
gefið til kynna.
Boric hét því í sigurræðu sinni að
hann myndi stækka velferðarríkið í
Síle, en hann myndi gera það á fjár-
hagslega ábyrgan hátt, en Boric
boðaði meðal annars skattahækk-
anir í kosningabaráttu sinni.
Kast óskaði Boric til hamingju og
hvatti landsmenn alla til að veita
hinum nýkjörna forseta virðingu.
Kosningabaráttan þótti afar hörð,
enda Kast og Boric fulltrúar flokka
hvors á sínum enda síleskra stjórn-
mála. Sagði Kast að hagsmunir Síle
kæmu alltaf fyrst, og því yrði að
bera klæði á vopnin.
SÍLE
Kjörinn forseti
35 ára gamall
Gabriel
Boric
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hélt fjarfund í gær með
ríkisstjórn sinni og ræddi þar þrjár
mismunandi tillögur um hertar að-
gerðir gegn Ómíkron-afbrigðinu,
sem nú fer sem eldur í sinu um
heimsbyggðina.
Töluverð andstaða er innan
bresku ríkisstjórnarinnar og Íhalds-
flokksins gegn því að herða aðgerðir
yfir jólin, þrátt fyrir að Chris
Whitty, landlæknir Bretlands, og sir
Patrick Vallance, helsti vísindaráð-
gjafi ríkisstjórnarinnar, hafi kallað
eftir því, en SAGE, vísindaráð rík-
isstjórnarinnar, óttast að tilfellum
muni fjölga mjög ört á næstu vikum.
David Frost, ráðherra Brexit-
mála, sagði af sér um helgina í mót-
mælaskyni við hertar aðgerðir.
Frost lýsti því yfir í gær að afsögn
sín væri ekki hugsuð sem atlaga að
Johnson, sem þykir í erfiðri stöðu
innan þingflokksins, heldur hefði
hann ekki getað unað við hertar að-
gerðir, þar sem ráðherrar í Bret-
landi bera sameiginlega ábyrgð á
ákvörðunum ríkisstjórnarinnar.
Tíu ráðherrar sagðir á móti
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í
gær að minnst tíu ráðherrar til við-
bótar hefðu lagst gegn hugmyndum
um að herða sóttvarnaaðgerðir yfir
jólin, en vægasta úrræðið sem rætt
var í gær fól í sér að ríkisstjórnin
myndi hvetja fólk til þess að tak-
marka samskipti sín við aðra innan-
dyra yfir jólahátíðina.
Johnson mun hins vegar einnig
vera að íhuga samkomutakmarkanir
milli fólks sem ekki deilir heimilis-
fangi og að knæpum og veitingahús-
um verði lokað klukkan átta á kvöld-
in. Þriðji kosturinn er svo útgöngu-
bann, en lítill stuðningur er við slíkt.
82.886 ný tilfelli greindust í Bret-
landi á sunnudaginn, og voru flest
þeirra í Lundúnaborg. Er það rúm-
lega 52% aukning tilfella á einni
viku, en Dominic Raab dómsmála-
ráðherra, sem jafnframt gegnir
embætti varaforsætisráðherra,
sagði í gær að 104 hefðu farið á
sjúkrahús með Ómíkron-afbrigðið
og að minnsta kosti tólf látist af völd-
um þess. Raab tók hins vegar fram
að erfitt væri að meta gögnin og ekki
væri hægt að spá hversu alvarleg
staðan yrði.
Raab sagðist hins vegar ekki eiga
von á að neðri deild breska þingsins
yrði kölluð saman á ný fyrir jól, en
samþykki þess er forsenda fyrir
verulega hertum aðgerðum í Bret-
landi. Hvorki Raab né Sajid Javid
heilbrigðisráðherra vildu þó útiloka
að aðgerðir yrðu hertar fyrir jól, ef
smittölur og sjúkrahúsinnlagnir
kölluðu á slíkt.
Breska þingið samþykkti í síðustu
viku að neyða fólk til þess að sýna
bólusetningarvottorð eða vottorð um
neikvæða niðurstöðu úr hrað- eða
PCR-prófi til þess að sækja viðburði.
Lögðust 100 þingmenn Íhaldsflokks-
ins gegn frumvarpinu og þurfti
Verkamannaflokkurinn því að hjálpa
ríkisstjórninni að fá það samþykkt.
28 milljónir þríbólusettar
Breska ríkisstjórnin hefur sett
aukinn þunga í bólusetningarherferð
sína, en nú hafa 28 milljónir Breta
þegið þriðja skammtinn af bóluefni
gegn kórónuveirunni. Hefur John-
son sett það markmið að milljón
manns verði bólusett á dag fram að
áramótum, en enn sem komið er hef-
ur skort nokkuð upp á að það náist.
Herferðin virðist þó vera að ná
vopnum sínum, þar sem rúmlega
900.000 manns létu bólusetja sig á
laugardaginn samkvæmt opinberum
tölum.
Deilt um hertar aðgerðir
- Breska ríkisstjórnin ræddi þrjár tillögur um aðgerðir gegn Ómíkron-afbrigðinu
- Mikil andstaða innan Íhaldsflokksins við að herða aðgerðir yfir jólahátíðina
AFP
Wembley Bólusetningar fara nú m.a. fram á Wembley-leikvanginum fræga.
Stjórnvöld á Filippseyjum lýstu því yfir í gær að 375
manns hið minnsta hefðu farist eftir að „ofurfellibyl-
urinn“ Rai fór yfir landið á fimmtudaginn.
Um 500 til viðbótar slösuðust í hamförunum og 56 er
saknað. Þá þurftu rúmlega 380.000 manns að flýja
heimili sín og eru margir enn á vergangi.
AFP
375 látnir eftir fellibylinn Rai
Höfðabakka 9, 110 Rvk | run.is
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
– Laugavegi 34 og Ármúli 11
• Hagkaup – Reykjavík, Garðabær
og Akureyri
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Ármúli 27
• Karlmenn – Laugavegi 87
• Vinnufatabúðin – Laugavegi 76
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstangi
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki
• Verslun Haraldar Júlíussonar – Sauðárkróki
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Blossi – Grundarfirði
• Verslun Bjarna Eiríkssonar – Bolungarvík
• Verslun Grétars Þórarinssonar – Vestmannaeyjum
• Sentrum – Egilsstöðum
• Kram – Stykkishólmi
• Fok – Borgarnesi
• Versl. Kristall – Neskaupsstað
• Verzl. Axel Ó. Vestmanneyjum
Útsölustaðir:
Tilvalin
jólagjöf