Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 20

Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 ✝ Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður, Fjölnir tattú, fædd- ist í Reykjavík 5. febrúar 1965, son- ur hjónanna Kol- brúnar Benedikts- dóttur leikskóla- kennara, f. 2. sept- ember 1942, og Braga Ásgeirs- sonar myndlistar- manns, f. 28. maí 1931, d. 25. mars 2016. Fjölnir lést 11. des- ember 2021. Bróðir Fjölnis samfeðra er Bragi Agnar (Brian), f. 21. mars 1960, systir Fjölnis sam- mæðra er Júlía Valsdóttir, f. 26. nóvember 1963, börn henn- ar eru Júlía Rós, Sara Dís og Róbert Valur. Systkini Fjölnis eru Ásgeir Reynar Bragason, f. 22. júlí 1966, unnusta hans er Helga María, Símon Jóhann Bragason, f. 14. júlí 1970, börn hans eru Sóldís Rós, Veronica Alexandra, Rafael Róbert og Soffía Gabríela, Kolbrá Þyri Bragadóttir, f. 18. júlí 1971, börn hennar eru Bragi Haukur, Frigg og Askur Ari. Synir Fjölnis eru Atli Freyr Fjölnisson, f. 30. júní 1989, ritgerðin fjallaði um húðflúr. Fjölnir fór að læra til húðflúrs hjá Jóni Páli Halldórssyni árið 1995 og starfaði sem húðflúr- listamaður allt frá því. Hann vann lengst af á JP Tattoo og svo síðar á Íslenzku húðflúr- stofunni. Fjölnir gat sér gott orð sem hugmyndaríkur og vandvirkur flúrari, sem átti verulegan þátt í að ryðja þeirri listgrein braut hér á landi og afla húðflúri mun almennari vinsælda en þar til hafði tíðkast. Fjölnir tók þátt í stofnun FO Tatt Fest-há- tíðarinnar í Færeyjum árið 2012 ásamt Páli Sch. Thor- steinssyni, en í sumar hélt hann tattú-blót á Langaholti á Snæ- fellsnesi og fyrsta IS Tatt Fest- hátíðin var haldin í Iðnó nú í október. Nýlega lét hann til sín taka ásamt fleirum með áskor- un til borgaryfirvalda um rann- sókn á starfsemi vöggustofa í Reykjavík á árum áður, en hann hafði í æsku verið vist- aður á einni slíkri um hríð. Útför að hætti ásatrúar verð- ur frá Fossvogskirkju í dag, 21. desember 2021, kl. 13. Gestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra er 48 klst. við komu. Í ljósi fjöldatakmarkana og þess hve Fjölnir var vinamarg- ur eru vinir hans hvattir til að safnast saman og fylgjast með útförinni í streymi: https://youtu.be/M98ky-QMc0U https://www.mbl.is/andlat móðir hans er Agla Soffía Egilsdóttir, f. 25. júní 1972. Börn Atla Freys eru Fjölnir Myrkvi, f. 21. febrúar 2011, Ísabel Dimma og Indíana Nótt, fæddar 30. desem- ber 2013. Móðir þeirra er Selma Hrund Kristbjarn- ardóttir. Fáfnir Fjölnisson, f. 9. desember 1995, móðir hans er Þóra Björk Ólafsdóttir, f. 17. júní 1973. Fenrir Flóki Fjölnisson, f. 16. feb. 2013, móðir hans er Kristín Lilja Gunnsteinsdóttir, f. 4. mars 1990, d. 14. júlí 2020. Uppeldisforeldrar Flóka með Fjölni eru Sólveig Ásgeirs- dóttir og Bogi Bragason, amma og afi Flóka. Fjölnir gekk í Breiðagerð- isskóla, Réttarholtsskóla og Hlíðaskóla og lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1990. Fjölnir hóf nám við höggmyndalist við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands, ásamt því að sinna fleiri listgreinum. Hann útskrifaðist með BA-gráðu úr Listaháskól- anum árið 2000, þar sem loka- Elsku besti Fjölnir minn. Hvar skal byrja? Þú tókst mig undir þinn væng þegar ég var 19 ára gamall, hvað þú sást í mér á þeim tímapunkti er mér hulin ráðgáta en sú ákvörðun þín er sú allra afdrifaríkasta sem á daga mína hefur drifið. Saman áttum við óendanlega margar góðar stundir, yfirdrifnar af nautnum og óbilandi eftirlátssemi, við átt- um það sameiginlegt eins og svo margt annað að þyrsta í stans- lausa gleði, vellíðan og hamingju. Á þeirri vegferð eru margir slóð- ar og sumir hverjir vissulega hættulegir. Margar eru sögurnar en flest- ar teljast varla hæfar til birt- ingar, enda þykir mér vænst um að þær séu okkar á milli. Vissu- lega er þarna líka erfið reynsla en við minnumst hennar síður. Ég hef ekki tölu á því hversu oft fólk hefur sagt mér frá því þegar það sá þig fyrst, slík var nærveran að það virtist greypa sig í minni manna einungis að berja þig augum. Sjálfur á ég slíka minningu frá því ég var sjö ára. Einnig virtist það koma fólki á óvart hversu blíðlyndur og góður þú varst, en grófgert ytra byrðið hafði þann tilgang að vernda mjúka hjartað. Þú hafðir alveg gríðarlega breiða þekkingu og varst einn af þeim sem geta lagt fram innlegg í hvaða umræðu sem er, sem oft á tíðum stoppaði menn, sökum þess hve öðruvísi þú gast séð hlutina. Að taka afstöðu sem gengur þvert á viðteknar venjur krefst sjálfstæðis og mikils hug- rekkis, hvort tveggja eiginleikar sem þú áttir ofgnótt af. Það er mér bitursætt að hugsa til seinustu orða þinna til mín, en þú komst til mín þar sem ég var að mála og sagðir að þig langaði að mála þegar þú sæir hvað ég var að gera, skilja eitt- hvað eftir sem lifði, þar sem öll þín listaverk enduðu óumflýjan- lega í gröfinni, með eigendum sínum. Ekki fæ ég séð hvernig það er verra hlutskipti. Ég verð að trúa því að þessum orðum hafi verið hent fram í hálfkæringi því það þarf ekki vandlega athugun til að sjá að list þín og andi lifir áfram í ótal myndum, ein af þeim er arfleifð þín sem húðflúrara, sem ég get með stolti sagt að ég sé hluti af og deili því sæti með merkustu mönnum íslenskrar húðflúrs- sögu. Þú kenndir mér margt, Fjöln- ir minn, þú kenndir mér und- irstöður fags sem á þeim tíma var lokað flestum, þú kenndir mér að leggja mat á borð barna minna, í sumum tilvikum gekkstu svo langt að sýna mér hvað bæri að forðast, í gegnum eigin þjáningar, og það voru ef- laust dýrmætustu lexíurnar. Ég get vissulega kvatt þig hér en í sannleika sagt er líf þitt samofið mínu og mun ávallt vera, þetta er því aðeins kveðja til þinnar líkamlegu tilveru, sem, þótt stórfengleg væri, jafnaðist aldrei á við þína undurfallegu sál. Aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð, með ást og virð- ingu. H. Búri Hallgrímsson. Minn kæri vinur, ég er enn að átta mig á því að þú sért farinn til Miðgarðs að skála við hina víkingana í Valhöll. Það er svo margt sem við brölluðum saman og komum í verk, og öll þau æv- intýri sem við upplifðum saman. Mér eru minnisstæðastar all- ar sunnudagsferðirnar sem við áttum saman í Færeyjum þar sem við byrjuðum yfirleitt á að keyra Oyggjarveginn og skoða okkur um í Norðardal og dást að útsýninu, eftir það lá leið okkar eitthvað um þessa fallegu kletta í leit að fleiri ævintýrum, sem ávallt urðu á leið okkar. Um sumarið 2010 á Ólafsvöku fengum við þá hugdettu að byrja með FO-TATTFEST, sem varð síðan að veruleika árið 2012. Við óðum algjörlega út í óviss- una þar sem við vissum alls ekk- ert hvað við vorum að gera og lentum á alls konar veggjum á leiðinni en létum það ekki slá okkur út af laginu og héldum ótrauðir áfram. Úr varð að við erum að fagna 10 ára afmæli í maí næstkom- andi. Eins og þú sagðir svo oft við mig: „Palli, hversu gott getur þetta verið“ og svo aftur á ensku; „how good can it get“! Svo bættum við bara í og gerð- um hlutina enn betur á næstu hátíð ár eftir ár og byrjuðum fleiri hátíðir saman hér á Íslandi sem eru orðnar tvær; tattúblót á Langaholti og IS-TATTFEST sem var í Iðnó í haust. Ég get með sanni sagt að þú varst vinur í raun og ávallt tilbú- inn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Þú varst mér mikill stuðningur á mínum verstu og bestu tímum í lífinu og dróst aldrei af þér. Þú varst allt- af einlægur við mig og sagðir mér einnig afdráttarlaust hvað þér fannst. Skarðið sem þú skil- ur eftir er stórt og verður aldrei fyllt. Góða ferð elsku vinur og takk fyrir allt og að vera alltaf Fjölnir tattú, minn besti vinur. Kæru Atli, Fáfnir og Fenrir Flóki, þið hafið misst mikið og ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Þið megið vita að hann elskaði ykkur mjög mikið og var virkilega stoltur af ykkur og afa- börnunum sínum þremur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Páll Þ. Sch. Thorsteinsson. Laugardagurinn 15. júlí 1995 rann upp bjartur og sólríkur, sveipaður geislum sumarsólar auk þess sem sól skein í heiði í sinni rúmlega tvítugs manns er lagði leið sína úr Garðabænum niður á Lækjartorg þar sem húðflúrstofan JP Tattoo var þá til húsa, vígi Jóns Páls Halldórs- sonar er á komandi árum átti eftir að verða einn kunnasti húð- flúrlistamaður þjóðarinnar. Garðbæingurinn gestkomandi iðaði í skinninu, bókstaflega, fyrsta húðflúrið var að verða að raunveruleika, þröskuldurinn hái milli þess er unnendur húð- listarinnar kalla blekjómfrú, eða „ink virgin“ á erlendum tungum, og þess nýja tilverustigs hinna innvígðu sem hlýtt hafa á óm- þýtt suð nálarinnar og reynt ljúfsáran sviðann í hörundinu – sannarlega er þar sá eldurinn heitastur er á sjálfum brennur. Þarna hjá Jóni Páli 1995 var það sem fundum okkar Fjölnis bar fyrst saman, heljarmennis- ins með gullhjartað sem nú hef- ur kvatt samferðamenn sína sviplega – svo gapandi skarð er fyrir skildi. Auðvitað hafði und- irritaður séð þessu síðhærða hálftrölli, sem skar sig kirfilega úr allri mergð, bregða fyrir í næturlífinu, Fjölnir Geir Braga- son var jafn samofinn 101 Reykjavík og borgarskáldið Tómas Guðmundsson eða Jó- hannes Kjarval, svo höggvið sé nær myndlistinni. Fjölnir var stórskemmtilegur maður og viðræðugóður, víðles- inn og margfróður um ótrúleg- ustu kima mannlegs lífs og dauða. Verður mér lengi í minn- um teiti nokkur í Gnoðarvogi sumarið 2006, reyndar nokkuð liðið á morgun eins og verða vildi á þeim árum, þar sem Fjölnir kynnti nýjustu rann- sóknir sínar á Kóraninum í löngum fyrirlestri og varpaði fram ýmsum áleitnum spurning- um og túlkunaratriðum, við- stöddum til gagns og allnokkurs gamans. Milli þess er hann kastaði fram fróðleik sínum stökk hon- um brosgletta og má segja að sjaldan hafi hin myndræna lýs- ing skáldsins á Gljúfrasteini á bóndanum frá Rein sprottið eins ljóslifandi fram: Jón Hreggviðs- son hló með glampa í auganu og það leiftraði á hvítar tennurnar í svörtu skegginu. Nú, þegar komið er að leið- arlokum hérna megin, rifjast upp fyrir mér þegar Bragi Ás- geirsson, faðir Fjölnis, kunnur listmálari og listrýnir Morgun- blaðsins um áratugi, lést fyrir fimm árum. Leitaði Fjölnir þá til mín og treysti mér fyrir því verkefni að lesa yfir minning- arorð um föðurinn, verkefni sem ég taldi mér í senn ljúft og skylt. Ekki óraði mig þá fyrir að hálf- um áratug síðar sæti ég yfir öðr- um minningarorðum, í það sinn- ið um Fjölni sjálfan. Má þar með sanni segja að sjaldan verði ós- inn eins og uppsprettuna dreym- ir. Kastaði ég því fram í spjalli við Fjölni í nóvember, er við ræddum nýjar reglur Evrópu- sambandsins um húðflúrblek, að ég hygðist leggjast að minnsta kosti einu sinni undir nálina hjá honum áður en dauðans óvissi tími vitraðist mér. Af því verður ekki, alltént ekki hérna megin, en leynist framhald handan grafarinnar býður mér í grun að þar mundi blekskáldið svipmikla verkfæri sitt af festu og hvassri einbeitni og glotti við tönn. Minn eftir- minnilegi vinur, þú hjartans beztu óskum kvaddur sért, eins og listaskáldið góða kvað. Meira á www.mbl.is/andlat Atli Steinn Guðmundsson. Ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til ástvina og aðstandenda Fjölnis við fráfall hans og læt fylgja þessar ljóð- línur: Stirðnuð er fífilsins brosmilda brá og brostinn er lífsins strengur. Helkaldan grætur hjartað ná því horfinn er góður drengur. Sorgmædd sit við mynd af þér og sárt þig ákaft trega. Herrann helgur gefur mér huggun náðarvega. Tekinn var litríkur fífill frá mér og ferðast einn um sinn. Í kærleiksljósi leita að þér og leyndardóminn finn. Kyrrum klökkum tregarómi kveð nú vininn hljóða. Af sálarþunga úr sorgartómi signi drenginn góða. Farinn ert á friðarströnd frjáls af lífsins þrautum. Styrkir Drottins helga hönd hal á ljóssins brautum. Englar bjartir lýsi leið lúnum ferðalangi. Hefst nú eilíft æviskeið ofar sólargangi. Vonarkraftur vermir trú og viðjar sárar brýtur. Ótrúleg er elska sú sem eilífðinni lýtur. Í Gjafarans milda gæskuhjúpi gróa öll mín sár. Með sólargeisla úr sorgardjúpi sendi þér kveðjutár. (Jóna Rúna Kvaran) Jóna Rúna Kvaran. Fjölnir Geir Bragason Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN JÓHANNSSON kennari, lést sunnudaginn 5. desember. Að hans ósk fór útförin fram í kyrrþey. Lára Benediktsdóttir Þórarinn Þórarinsson Hjördís Ýrr Skúladóttir Björg Þórarinsdóttir Sævar Sigurðsson Sigríður Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg systir mín og föðursystir okkar, ANNA LAUFEY GUNNARSDÓTTIR, Sóltúni 5, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 8. desember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýju og kærleika vegna andláts hennar. Óskar H. Gunnarsson Gunnhildur Óskarsdóttir og Arnór Þ. Sigfússon Agnar Óskarsson og Margrét Ásgeirsdóttir og fjölskyldur Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, VIGFÚS ÆVAR HARÐARSON, lést á heimili sínu Túngötu á Suðureyri við Súgandafjörð. Jarðarför auglýst síðar. Dætur hins látna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, langalangafi og bróðir, MAGNÚS GUNNAR SIGURJÓNSSON frá Velli í Hvolhreppi, síðar til heimilis í Hátúni á Stokkseyri, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi þriðjudaginn 14. desember. Bálförin fer fram eftir yfirstaðna kistulagningu. Vegna aðstæðna verður minningarathöfninni streymt í dag, þriðjudaginn 21. desember, klukkan 18. Duftker verður jarðsett síðar í Stokkseyrarkirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Magnúsdóttir Einar Björn Steinmóðsson Vilhjálmur Magnússon Kristín Þuríður Sigurðardóttir Gunnar Magnússon Guðrún Rut Erlingsdóttir Signý Magnúsdóttir Arnar Þór Diego Bjarni Magnússon Jónína Guðbjörg Sigurjónsdóttir Okkar ástkæri RAFN KONRÁÐSSON lést fimmtudaginn 16. desember. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.