Morgunblaðið - 21.12.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 21.12.2021, Síða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 30 ÁRA Eva María ólst upp í Graf- arvogi en býr í Hafnarfirði. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Ís- lands og er meðeigandi og fram- kvæmdastjóri Dýralækna- miðstöðvarinnar í Grafarholti. Þau voru að gefa út app fyrir gæludýra- eigendur sem heitir Dr. Dýri. „Þetta er rafræn heilsufarsbók. Svo er ég líka með hlaðvarp sem heitir Dýravarpið. Áhugamálin eru auðvitað dýr, að ferðast, viðskipti, fjölskyldan og að hitta vini.“ FJÖLSKYLDA Almar Gauti Ingvason, f. 1992, BA í tómstunda- og félags- málafræði og MA í verkefnastjórnun í viðskiptafræði frá HÍ, vinnur sem ráð- gjafi á geðdeild Landspítalans. Dóttir þeirra er Indíana Lea, f. 2021. For- eldrar Evu Maríu eru Elfa Shciöth Elfarsdóttir, f. 1958, húsmóðir, og Jóhann Þorsteinsson, f. 1963, bifvélavirki og meðeigandi að Kistufelli. Þau eru búsett í Mosfellsbæ. Eva María Schiöth Jóhannsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Einhverjar breytingar eru yfirvof- andi og margt sem kallar á athygli þína þessa dagana. Reyndu að láta þetta ekki slá þig út af laginu. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú átt auðvelt með að vera heillandi og samvinnufús í dag. Leyfðu öðrum sem vilja að taka þátt í velgengni þinni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Fleygðu frá þér öllum neikvæð- um hugsunum þess efnis að þú ráðir ekki við þau verkefni sem þér eru falin. Búðu þig undir að sjá heiminn í nýju ljósi. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Nú verður ekki lengur undan því vikist að ganga frá þeim leiðindamálum sem þú hefur hummað fram af þér. Af hverju að bíða fram í næstu viku? 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ástin blómstrar um þessar mundir. Nýleg samskipti vekja forvitni þína og þú spáir í hvað muni gerast næst. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Gættu þess að gera ekki meiri kröf- ur til annarra en sjálfs þín. Ekki taka neitt sem fram fer persónulega. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú hefur allt þitt á hreinu og veist al- veg hvert þú stefnir í lífinu. Ekki hafa allir sömu skoðanir og viðhorf til lífsins og þú. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það getur tekið á að þurfa stöðugt að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Notaðu innsæið til þess að ákveða hvort þú eigir að láta eitthvað verða að veruleika eða ekki. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Láttu þér ekki mislíka þótt ein- hverjir hörfi undan þegar þú sækir fast að þeim. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila svo réttu fram höndina. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Ekki eru allir á eitt sáttir um að gera breytingar núna. Farðu að eigin smekk og hugsaðu ekki um hvað öðrum finnst. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Fylgdu málum þínum eftir af djörfung og dug. Minnkaðu skuldir, endur- greiddu lán, skilaðu því sem þú hefur feng- ið að láni og kannaðu hverjir skulda þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þótt það sé ágætt að hafa nóg að gera verður þú að varast að taka að þér of mörg verkefni í einu. Slepptu öllum áhyggj- um því þú ert maður til þess að ráða fram úr málum. bókum, reyndum hljómplötuútgáfu, gáfum út glæpasagnaröð eftir Sjö- wall og Wahlöö, sem sumum í stjórn- inni þótti fyrir neðan virðingu for- lagsins, o.s.frv. Við efndum líka til samkeppni um skáldsagnahandrit og reyndum að lokka til okkar höfunda. Í fyllingu tímans varð MM stærsta forlag landsins, en þá var ég horfinn af vettvangi. Ég var orðinn fjöl- skyldufaðir, búinn að eignast yndis- lega dóttur, og þremur árum seinna eignuðumst við yndislegan dreng, ann, en 1976 tók hann við starfi sem útgáfustjóri Bókmenntafélagsins Máls og menningar, og ári síðar varð hann jafnframt ritstjóri Tímarits Máls og menningar. „Þetta var mér alveg ný reynsla. Forlagið var mjög illa statt, og við Þröstur Ólafsson neyttum allra ráða til að renna nýjum stoðum undir reksturinn. Við efldum útgáfu barnabóka, fengum m.a. einkarétt á þýðingum verka Astrid Lindgren, hösluðum okkur völl í kennslu- Þ orleifur Hauksson fædd- ist 21. desember 1941 í Reykjavík. „Ég er fædd- ur og uppalinn í litlu bárujárnshúsi, Urðar- túni við Laugarásveg. Ljósmóðir var Rakel Pétursdóttir mágkona pabba, kona Jóns Þorleifssonar listmálara. Þetta var erfið fæðing, naflastrengur tvívafinn um hálsinn á drengnum, en allt fór vel. Þess má geta að lækn- irinn á staðnum var Úlfar Þórðarson augnlæknir, og kannski á ég honum að þakka að ég les enn þá gleraugna- laust! Á þessum tíma voru aðeins ör- fá hús í Laugarásnum og öll hétu einhverjum nöfnum. Umhverfið var ævintýraland fyrir krakka, lyng- gróður og álfaborgir í holtinu fyrir ofan veginn, og í Laugardalnum var enn stundaður búskapur, hestar, kýr og hænsni.“ Þorleifur gekk í Laugarnes- og Langholtsskóla og síðan í unglinga- deild Laugarnesskóla, tók landspróf frá Gagnfræðaskólanum í Vonar- stræti, og síðan lá leiðin í MR, en þaðan útskrifaðist hann 1961. Eftir tveggja ára hlé hóf hann nám í ís- lenskum fræðum við Háskólann. „Á sumrin vann ég ýmis störf til að framfleyta mér, þetta var löngu áður en Lánasjóðurinn var stofn- aður. Tvö sumur í brúarvinnu úti á landi, eitt sumar á Hveravöllum og eitt sumar var ég svo lánsamur að komast á síld á Gullborginni hjá Binna í Gröf fyrir tilverknað míns góða frænda Jóns Hjaltasonar. Ég kenndi líka forfallakennslu, meðal annars framsögn í SÁL-leiklistar- skólanum. Frá 1965 var ég með námi styrkþegi á Handritastofnun Ís- lands, síðar Stofnun Árna Magnús- sonar. Þar fékkst ég við fræðilega útgáfu af Árna sögu biskups, sem var jafnframt verkefni mitt til loka- prófs. Það var flókið og tímafrekt, svo til allir félagarnir útskrifuðust á undan mér. En stofnunin var ein- stakur vinnustaður á þessum tíma og ég lærði heil ósköp.“ Þorleifur lauk cand. mag.-prófi í íslenskum bókmenntum og málfræði og latínu 1971. Eftir stutt framhalds- nám í Oxford var hann settur lektor í íslenskum bókmenntum við Háskól- sem reyndist vera þroskaheftur, með Downs-heilkenni. Það varð í raun mikil hamingja, en umönnun hans og lífróður í jólabókaflóði fór ekki vel saman, svo ég leitaði á önnur mið.“ Fjölskyldan fluttist til Svíþjóðar 1983 þar sem Þorleifur varð íslensk- ur lektor við Uppsalaháskóla. Heim kominn var hann ráðinn af sjóði Þór- bergs og Margrétar til að skrifa ís- lenska stílfræði, og eftir að henni lauk hefur hann verið sjálfstætt starfandi fræðimaður. Hann gerðist félagi í ReykjavíkurAkademíunni 1999. „ReykjavíkurAkademían er ein- stakt samfélag ólíkra fræðimanna í hug- og félagsvísindum. Ég hef feng- ist við ýmis verkefni þar innan veggja. Frá 2003 hef ég unnið við út- gáfur fornsagna á vegum Hins ís- lenska fornritafélags, og við þær vinn ég enn. Helstu áhugamál mín þess utan eru bóklestur, tónlist, bæði klassík og djass, og ferðalög innan lands. Ég nýt þess að syngja í kór, Söngfjelaginu undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, reyni að stunda jóga reglulega en er ekki í annarri líkamsrækt, að öðru leyti en því að ég á ekki bíl og fer allra minna ferða um bæinn á fótstignu reiðhjóli.“ Meðal helstu ritverka Þorleifs eru útgáfa Árna sögu biskups í ritröð Stofnunar Árna Magnússonar (1972), Íslensk stílfræði, ásamt Þóri Óskarssyni (1994), Sagnalist, Íslensk stílfræði II (2003), Úr þagnarhyl, ævisaga Vilborgar Dagbjartsdóttur (2011); eftirtaldar útgáfur í rit- röðinni Íslenzk fornrit: Sverris saga (2006), Hákonar saga og Böglunga saga, ásamt Sverri Jakobssyni og Tor Ulset (2013) og Jómsvíkinga saga, ásamt Marteini Helga Sigurðs- syni (2018). Helstu þýðingar eru Bróðir minn Ljónshjarta (1976) og Ronja ræningjadóttir (1981) eftir Astrid Lidgren, Downs-heilkenni eftir Göran Annerén o.fl. (2000) og Framfaragoðsögnin eftir Carl Otto von Wright (2003). Þorleifur hefur setið í stjórnum Foreldra- og styrktarfélags Tón- stofu Valgerðar, Íslandsdeildar Amnesty International og Félags Þorleifur Hauksson, íslensku- og bókmenntafræðingur – 80 ára Jólin 1986 Þorleifur með börnum sínum og móður, frá vinstri: Þórunn og Ari, Þorleifur með Álfdísi í fanginu og Ásthildur með Kára. Fer allra sinna ferða á reiðhjóli Með fv. nemanda Þorleifur ásamt John Swedenmark þýðanda. Til hamingju með daginn Hafnarfjörður Indíana Lea Almarsdóttir fæddist 21. ágúst 2021 kl. 12.07 á Land- spítalanum Hún vó 3.545 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Eva María Schiöth Jóhannsdóttir og Almar Gauti Ingvason. Nýr borgari STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Kaffe Curve Kjóll 12.990 kr Kósý peysukjóll 9.990 kr Zizzi Gallabuxur 9.990 kr Fr Pant veg ey . .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.