Morgunblaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 31
ÍÞRÓTTIR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 Þegar ég var loksins búinn að taka myndbandadómgæsluna (VAR) í enska fótboltanum í sátt (eða kannski öllu frekar farinn að sætta mig við hana sem orðinn hlut) þá er eins og hún sé aftur komin á byrjunarreitinn. Eftir alls konar vandræði síð- asta vetur virtust enskir dóm- arar og VAR-dómarar vera búnir að ná ágætis tökum á verkefninu og finna réttu línuna. En nú er eins og þeir séu gjör- samlega búnir að týna henni aft- ur. Alls konar atvik í leikjunum á Englandi að undanförnu hafa verið í meira lagi vafasöm. Sér- staklega ákvarðanir sem hafa verið teknar eftir að atvik hafa verið skoðuð ítarlega. Ólögleg mörk hafa fengið að standa. Tilhæfulausar víta- spyrnur verið dæmdar. Öðrum hefur verið sleppt. Glórulaus brot hafa ekki endað með rauðu spjaldi, jafnvel ekki gulu. Það er eins og nýtt afbrigði af kórónuveirunni hafi stökkbreyst í röðum VAR-dómaranna og „blörrað“ skjáina hjá þeim. Stundum líta dómararnir á vellinum út eins og kjánar eftir ákvarðanirnar sem teknar eru í „reykfylltum bakherbergjum“ Stockley Park í London þar sem VAR er til húsa. Nýjasta fyrirbærið er „nýtt augnablik“ sem virðist meina dómurum að taka réttar ákvarð- anir í sumum tilvikum. Og svo er það þetta með blessaða aðstoðardómarana sem einu sinni hétu línuverðir. Nú mega þeir ekki lyfta flagginu á augljósustu rangstöður. Það á eftir að valda stórslysi einhvern góðan veðurdag. Eða vondan. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is England B-deild: Fulham – Sheffield United ...................... 0:1 Staða efstu liða: Fulham 23 13 6 4 51:19 45 Bournemouth 23 12 7 4 37:20 43 Blackburn 23 12 6 5 41:27 42 WBA 23 11 8 4 30:17 41 QPR 21 10 5 6 33:27 35 Stoke City 22 10 5 7 26:21 35 Nottingham F. 23 9 7 7 32:25 34 Coventry 22 9 7 6 29:26 34 Middlesbrough 23 9 6 8 25:23 33 Huddersfield 23 9 6 8 28:27 33 Sheffield Utd 22 9 5 8 29:28 32 Millwall 22 7 9 6 24:24 30 Spánn Levante – Valencia................................... 3:4 Staða efstu liða: Real Madrid 18 13 4 1 39:15 43 Sevilla 17 11 4 2 28:12 37 Real Betis 18 10 3 5 32:21 33 Rayo Vallecano 18 9 3 6 26:18 30 Atlético Madrid 17 8 5 4 28:20 29 Real Sociedad 18 8 5 5 20:20 29 Valencia 18 7 7 4 30:26 28 Barcelona 17 7 6 4 28:21 27 Athletic Bilbao 18 5 9 4 16:14 24 Espanyol 18 6 5 7 20:21 23 Villarreal 17 5 7 5 21:18 22 Osasuna 18 5 7 6 17:22 22 Holland B-deild: Jong Ajax – Helmond Sport ................... 1:1 - Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leik- inn fyrir Jong Ajax. >;(//24)3;( KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Flúðir: Hrunamenn – Haukar............. 19.15 Í KVÖLD! liðinu, bæði í sókn og vörn. Við höf- um fengið inn nýja leikmenn sem hafa spilað meira í vörn en undan- farin ár. Þeir leikmenn sem hafa komið inn hafa staðið sig frábærlega og leyst sín hlutverk mjög vel. Mér finnst liðið ekki veikara þótt það hafi vissulega breyst og styrk- leikarnir eru kannski ekki alveg þeir sömu. Við enduðum í öðru sæti í fyrra og mér finnst við í raun vera á svipuðum stað núna og við vorum á í fyrra á þessum tímapunkti.“ Stutt á milli efstu liða Úrvalsdeildin hefur sjaldan verið jafnari en í ár en aðeins munar fimm stigum á liðinu í efsta sætinu og lið- inu í sjötta sætinu. „Það hefur oft verið talað um það fyrir tímabil að öll lið geti unnið hvert annað og það séu sex til sjö lið sem geta barist í og við toppinn. Maður hefur ekki alltaf verið sam- mála því en staðan í dag er einfald- lega sú að þetta er raunin. Stjarnan og Selfoss hafa komið mjög sterk inn, Valur og Haukar eru auðvitað þekktar stærðir, og svo er ÍBV líka með hörkulið. Afturelding er líka með mjög góð- an og sterkan hóp og það er því ekk- ert skrítið að það sé stutt á milli þessara efstu liða. Við sem dæmi höfum ekki tapað leik núna síðan í október en samt erum við með jafn mörg stig og Haukar, og Valur á leik til góða á okkur Hafnarfjarðarliðin. Við megum því ekki slaka neitt á og það er mikilvægt að setja saman gott plan fyrir hvern einasta leik.“ Lítið hefur verið um áhorfendur á leikjum undanfarnar vikur vegna kórónuveirufaraldursins og tak- markana tengdra honum. „Fyrsti leikurinn okkar eftir und- irbúningstímabilið var bikarleikur á móti Haukum og það var fullt af áhorfendum á þeim leik og frábær stemning í húsinu. Þá fékk maður aftur þessa tilfinningu að það væri geggjað að vera kominn aftur með áhorfendur í húsin og að yfirstand- andi tímabil yrði mjög skemmtilegt. Það var líka frábært að komast aftur á parketið eftir að hlé var gert á keppni síðasta vor vegna kórónu- veirufaraldursins en maður nýtur þess samt alltaf meira að spila með áhorfendur í húsinu. Maður hefur því alveg fundið fyrir því að stemn- ingin er langt frá því að vera sú sama þegar það eru engir áhorf- endur á svæðinu en menn þurfa þá að leita inn á við og reyna að finna stemninguna þar.“ Skemmtileg úrvalsdeild Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulegar breytingar á keppnisfyr- irkomulagi í úrvalsdeild karla und- anfarið og þá helst hvort fjölga eða fækka eigi liðum, sem eru tólf í dag. „Ég hef spilað í átta liða deild, tíu liða deild og svo tólf liða deild und- anfarinn áratug. Af minni reynslu finnst mér töluvert meiri breidd í tólf liða deild og það eru fleiri góð lið núna en til dæmis þegar það voru bara átta lið. Ég þekki ekki nákvæmlega styrkleika 1. deild- arinnar en þegar það voru átta lið í deildinni þá voru líka lið sem komu upp og lentu í því að vinna varla leik og áttu í miklum erfiðleikum. Þessi lið sem hafa verið í áttunda, níunda og tíunda sætinu í ár gefa öll toppliðunum hörkuleiki í hverri einustu umferð. KA, Fram, Selfoss, Afturelding og Grótta hafa verið á þessu róli og öll þessi lið hafa unnið öfluga sigra gegn liðum fyrir ofan sig á leiktíð- inni. Það er enginn leikur léttur nema kannski á móti neðstu lið- unum, þegar þau hafa hitt á slæm- an dag, en þegar þau eru á sínum degi þá eru þetta allt hörkuleikir þar sem þarf að hafa virkilega fyrir hlutunum. Mér finnst tólf liða deild henta mjög vel því deildin hefur einfaldlega verið mjög skemmtileg undanfarin ár.“ Tíu ára bið í Kaplakrika FH varð síðast Íslandsmeistari 2011 og því biðin orðin heldur löng eftir Íslandsbikarnum í Kaplakrika en félagið hefur sextán sinnum staðið uppi sem Íslandsmeistari. „Ef við höldum áfram að spila eins og við höfum gert undanfarna tvo mánuði getum við farið alla leið. Til þess þurfum við að halda áfram að vinna í sóknar- og varnarleik og leikmennirnir verða að halda áfram að bæta sig jafnt og þétt. Fyrir mér eru sex til sjö lið í deildinni sem geta orðið Íslandsmeistarar í vor, miðað við það hvernig hlutirnir hafa þróast. Það er alltaf pressa að spila fyrir FH og það breytist ekk- ert. Krafan er að vera í efri hlutanum og berjast um alla bikara. Það er mikið hungur í félaginu að vinna titla og það eru vissulega tíu ár síð- an félagið varð síðast Íslandsmeist- ari þannig að það fer að verða kom- inn tími á meistarabikar í Kapla- krika. Við munum að sjálfsögðu gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að gera atlögu að titilinum í vor,“ sagði Ásbjörn við Morgun- blaðið. Sjö lið sem geta orðið Íslandsmeistarar í vor - Ásbjörn Friðriksson telur að FH-ingar hafi burði til að vinna meistaratitilinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lykilmaður Ásbjörn Friðriksson er næstbesti leikmaður deildarinnar í vet- ur samkvæmt einkunnagjöf HBstatz sem má sjá neðst á síðunni. HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is FH hefur alla burði til þess að verða Íslandsmeistari karla í handknatt- leik næsta vor að mati Ásbjarnar Friðrikssonar, spilandi aðstoðar- þjálfara liðsins. FH-ingar eru í efsta sæti úrvalsdeildarinnar með 20 stig, líkt og Haukar. Deildin er nú komin í jólafrí en keppni hefst á nýjan leik í lok janúar á næsta ári. „Ég myndi ekki segja að gengið í ár hefði komið okkur á óvart,“ sagði Ásbjörn í samtali við Morgunblaðið. „Okkur var spáð rétt fyrir aftan toppliðin og við teljum okkur vera með lið sem getur unnið öll lið í deildinni á góðum degi. Ef það á að takast þarf hins vegar margt að ganga upp og þá er mikilvægt að setja saman ákveðna sigurhrinu líkt og okkur hefur tekist í undanförnum leikjum. Við töpuðum tvisvar í fyrstu þremur umferðunum, gegn ÍBV og Selfossi, og þar gerðum við einfald- lega ekki nóg til þess að vinna leikina þótt við höfum spilað ágætlega. Við höfum æft mjög vel í vetur og tekist að þétta raðirnar varnarlega. Þá er leikur okkar heilt yfir orðinn mun betri. Við höfum líka sloppið vel við meiðsli og náð að halda okkur heil- um, sem skiptir líka miklu máli þeg- ar kemur að því að finna taktinn og halda dampi,“ sagði Ásbjörn. Tíu leikir án taps FH hefur verið á miklu skriði en liðið hefur leikið tíu leiki án taps og unnið átta þeirra. „Þegar vel gengur er alltaf mikið sjálfstraust í liðinu. Það er mikið traust á milli manna sem fylgir góðu gengi. Við höfum samt líka átt erfiða leiki inn á milli eins og á móti Val þar sem við vorum kannski heppnir að ná í stig undir lokin. Það var eins á móti Selfossi þar sem þeir voru frá- bærir en okkur tókst að kreista fram jafntefli. Það er mjög stutt á milli í þessu en það er klárlega mjög já- kvætt að liðið skuli ná að kreista út stig úr þessum erfiðu og jöfnu leikj- um, sem sýnir viljann í liðinu. Það er klárlega eitthvað sem við þurfum að halda áfram að vinna með.“ FH missti öfluga leikmenn fyrir yfirstandandi tímabil en þar ber hæst þá Einar Rafn Eiðsson og Arn- ar Frey Ársælsson sem gengu til liðs við KA á Akureyri. „Dýnamíkin hefur aðeins breyst í Markahæstir Vilhelm Poulsen, Fram 94 Óðinn Þór Ríkharðsson, KA 89 Ásbjörn Friðriksson, FH 89 Guðmundur Bragi Ástþórsson, Aftureldingu 77 Leó Snær Pétursson, Stjörnunni 75 Árni Bragi Eyjólfsson,Aftureldingu 73 Rúnar Kárason, ÍBV 68 Hafþór Már Vignisson, Stjörnunni 67 Einar Rafn Eiðsson, KA 66 Birgir Steinn Jónsson, Gróttu 62 Björgvin Þór Hólmgeirsson, Stjörnunni 60 Jóhannes Berg Andrason, Víkingi 59 Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV 59 Einar Sverrisson, Selfossi 58 Egill Magnússon, FH 58 Flest mörk að meðaltali í leik Vilhelm Poulsen, Fram 7,8 Óðinn Þór Ríkharðsson, KA 7,4 Einar Bragi Aðalsteinsson, HK 7,1 Ásbjörn Friðriksson, FH 6,8 Björgvin Þór Hólmgeirsson, Stjörnunni 6,0 Flestar stoðsendingar Tjörvi Þorgeirsson, Haukum 64 Einar Rafn Eiðsson, KA 60 Hafþór Már Vignisson, Stjörnunni 59 Birgir Steinn Jónsson, Gróttu 57 Rúnar Kárason, ÍBV 54 Dagur Arnarsson, ÍBV 49 Gunnar Steinn Jónsson, Stjörnunni 49 Benedikt Gunnar Óskarsson, Val 46 Guðmundur Bragi Ástþórsson, Aftureldingu 43 Egill Magnússon, FH 43 Breki Dagsson, Fram 41 Patrekur Stefánsson, KA 39 Jóhann Reynir Gunnlaugsson, Víkingi 38 Vilhelm Poulsen, Fram 37 Hjörtur Ingi Halldórsson, HK 36 Flest varin skot Phil Döhler, FH 162 Björgvin Páll Gústavsson, Val 154 Jovan Kukobat, Víkingi 149 Einar Baldvin Baldvinsson, Gróttu 142 Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum 130 Vilius Rasimas, Selfossi 121 Nicholas Satchwell, KA 116 Sigurjón Guðmundsson, HK 110 Andri S. Scheving, Aftureldingu 105 Björn Viðar Björnsson, ÍBV 86 Besta hlutfallsmarkvarsla Phil Döhler, FH 38,5% Björgvin Páll Gústavsson, Val 37,7% Lárus Helgi Ólafsson, Fram 35,1% Magnús Gunnar Erlendsson, Fram 35,1% Brynjar Darri Baldursson, Stjörnunni 34,2% Vilius Rasimas, Selfossi 34,0% Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum 33,9% Sölvi Ólafsson, Selfossi 33,9% Flest varin vítaköst Björgvin Páll Gústavsson, Val 8 Jovan Kukobat, Víkingi 8 Vilius Rasimas, Selfossi 7 Bestu leikmenn samkvæmt einkunnagjöf HBstatz Einar Rafn Eiðsson, KA 8,03 Ásbjörn Friðriksson, FH 7,88 Rúnar Kárason, ÍBV 7,87 Vilhelm Poulsen, Fram 7,83 Hafþór Már Vignisson, Stjörnunni 7,83 Phil Döhler, FH 7,67 Birgir Steinn Jónsson, Gróttu 7,65 Tjörvi Þorgeirsson, Haukum 7,62 Óðinn Þór Ríkharðsson, KA 7,55 Guðmundur Bragi Ástþórsson, Aftureldingu 7,53 Björgvin Páll Gústavsson, Val 7,40 Benedikt Gunnar Óskarsson, Val 7,38 Einar Bragi Aðalsteinsson, HK 7,27 Breki Dagsson, Fram 7,26 Björgvin Þór Hólmgeirsson, Stjörnunni 7,19 Dagur Arnarsson, ÍBV 7,19 Tölfræðin í Olísdeild karla 2021-22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.