Morgunblaðið - 21.12.2021, Síða 32

Morgunblaðið - 21.12.2021, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 2021 B jört, söguhetja nýjustu bókar Auðar Jónsdóttur, Allir fuglar fljúga í ljósið, hefur ákveðið að lifa lífinu án tilfinninga. Hún ráfar um borgina þvera og endilanga og skráir niður athuganir sínar um fólkið sem verð- ur á vegi hennar. Það gerir hún al- gerlega án þess að leggja eigið mat á það sem hún sér, því það að túlka það sem hún sér opnar fyrir tilfinn- ingarnar. Dag einn fær hún bréf sem verður til þess að ýmsar minningar sem hún hefur lokað á fara að láta á sér kræla á ný. Ýmislegt fleira gerist á fáum dögum sem gerir það að verkum að hún þarf að tak- ast á við fortíðina, fortíð sem reynist vera full af of- beldi og skömm. Hún rifjar upp erfiða æsku, áhrifamikinn vin- skap þeirra Veru og eitruð sam- bönd við tvo afar ólíka menn sem eiga það þó sameiginlegt að vera brotnir hvor á sinn hátt. Verkið lýsir miklu ofbeldi, bæði líkamlegu og andlegu, en einnig mikilli ást. Björt leigir herbergi á sambýli þar sem safnast hafa saman ýmsir einstæðingar og fólk sem hefur ekki tök á að búa við betri aðstæður. Björt speglar sig á vissan hátt í Söndru Mjöll, ungri stúlku sem þar býr, stúlku sem langar að verða áhrifavaldur en kann fátt annað en að hugga alla aðra en sjálfa sig. Sú persóna er að mestu mjög vel heppnuð en talsmáti hennar er held- ur ýktur og þar með ótrúverðugur. Þarna býr líka fuglafræðingurinn Gestur. Það hefði mátt draga upp skýrari mynd af hans hlutverki og það sama má segja um Högna, mann sem dúkkar upp í upphafi verksins og undir lok þess. Aðrar sögu- persónur dregur höfundurinn lista- vel fram, þær eru breyskar hver á sinn hátt og hafa hver sinn djöful að draga. Auður sýnir með þessu verki hvað hún er hörkugóður penni. Ljóðrænn textinn flæðir lipurlega. Flæðið er þó stundum órökrétt en það fer sögumanninum, Björt, og hugar- ástandi hennar vel. Allir fuglar fljúga í ljósið er vel uppbyggt verk þrátt fyrir að það sé nokkuð ruglingslegt á köflum þar sem mikið er flakkað í tíma. Auði tekst vel að byggja upp þá spennu sem þarf til þess að halda lesand- anum við efnið. Bókin fer frekar hægt af stað og það er lengi vel ekki ljóst hvert hún stefnir. Þegar les- andinn kynnist Björt er erfitt að átta sig á því af hverju hún hugsar eins og hún hugsar og lifir því lífi sem hún lifir. En Auði tekst að vekja með lesandanum nægilega mikla forvitni um hvað kom fyrir Björt, kemur fyr- ir vísbendingum með hæfilegu milli- bili og rígheldur þannig í lesandann. Ég vona að það séu ekki margir lesendur sem geti að fullu samsamað sig Björt og aðstæðum hennar en allir ættu þó að geta séð sig í henni að einhverju leyti. Öll höfum við til- finningar og öll höfum við upplifað að þrá ekkert heitar en að flýja þær um stund. Með textanum nær Auður undir húðina á manni, kemur sér þar fyrir og vekur ónot. Það gerir þetta að erfiðri lesningu en upplifunin er líka falleg og lærdómsrík. Allir fuglar fljúga í ljósið er verk sem ég held að margir muni verða dolfallnir yfir. Það er átakanlegt og virkilega áhrifamikið og skilur les- andann eftir með ótal hugsanir um persónur bókarinnar og um eigið (tilfinninga)líf. Morgunblaðið/Arnþór Auður Verkið er „átakanlegt og virkilega áhrifamikið og skilur lesandann eftir með ótal hugsanir um persónur bókarinnar“, segir gagnrýnandinn. Átakanlegt og áhrifamikið Skáldsaga Allir fuglar fljúga í ljósið bbbbm Eftir Auði Jónsdóttur. Bjartur, 2021. Innbundin, 359 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR AF VEIÐISKRIFUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Margir njóta þess að skrifa hugleið- ingar um sín áhugamál, eins og veiðiskap, og skrif sumra um slíka ástríðu rata á bækur. Sjaldnast verða þetta tímalausar bókmenntir – ef litið er til skrifa íslenskra höfunda um stangveiði þá eru þó mikilvægar undantekningar á því, eins og bækur Björns J. Blöndals og Stefáns Jóns- sonar – en þegar vel tekst til þá rata skrifin þó til sinna. Íslenskir útgefendur gæta þess að setja á markað ár hvert einhverjar bækur fyrir veðimenn að lesa og ein sem nú kemur út er Dagbók urriða. Höfundurinn, Ólafur Tómas Guð- bjartsson, hefur vakið athygli á undanförnum misserum fyrir allvinsæla sam- nefnda sjónvarps- þætti þar sem hann mætir áhorfendum glað- beittur á skján- um, veiðir, spjall- ar og miðlar alls kyns fróðleik um áhugamál sitt, sil- ungsveiðar. Í flestum íslenskum veiðibókum undangenginna áratuga hefur áherslan gjarnan verið á lax- inn og það er áhugavert að sjá hér áherslu á silungsveiðar. Og víst veitir Ólafur Tómas nota- lega fylgd um ólík veiðisvæði. Hann er sjaldnast dómharður um menn eða málefni en sannkallaður ástríðu- veiðimaður sem segist hafa veiðina í blóðinu enda hafi forfeður hans allir verið veiðimenn. Dagbók urriða er að uppbyggingu hefðbundin þroska- saga veiðimanns, og höfundurinn segir okkur alls kyns sögur af ævin- týrum sínum á þeim vettvangi, í fjörum, straum- og stöðuvötnum. Í inngangi segist hann „elska að segja sögur og skapa eitthvað fallegt“ og vilji jafnframt fræða, „leggja mikið upp úr sagnfræði, kennslu, líffræði og öðru sem ég hef áhuga á og er veiðibók eins og þessi tilvalinn vett- vangur fyrir slíkt“. Þetta er afslöppuð og kumpánleg fyrstu persónu frásögn þar sem Ólafur rifjar upp, segir frá og bendir á hitt og þetta og allt mögulegt. Og gerir það oft vel og ástríðan sem felst í frásögninni er falleg. Á móti kemur að hversdagslegt talmálið, þar sem samtímamenn eru til að mynda ekki nefndir fullum nöfnum, er mögulega einnota – það hefði mátt leggja meiri rækt við fagur- fræði textans og reyna að færa hann í tímalausari búning. Bókinni er skipt upp í rúmlega tuttugu stutta kafla sem eru ríku- lega myndskreyttir. Eins og eðlilegt má kalla, þar sem þetta er þroska- og reynslusaga, þá er mikið af myndum af höfundi, ættingjum hans og veiðifélögum og þær eru skemmtilega felldar inn í textann. En myndatexta vantar við þær sum- ar, og stundum þær stærstu og er það bagalegt. Texta þarf að setja við allar slíkar myndir og gæta að upp- lýsingagildi þeirra. Þá er textinn undir opnu með 11 mikilvægum sil- ungaflugum svo lítill að þessi mið- aldra lesandi sótti stækkunargler … Fyrirtaks fararstjóri Skipta má frásögn bókarinnar í tvennt. Í fyrri hlutanum er æskan á Blönduósi með ótal uppgötvunum hins ástríðufulla veiðimanns en í seinni hlutanum miðlar reynslubolt- inn sögum, ábendingum og alls kyns ráðum. Og lykilatriði í skrifunum er falleg einlægni sögumanns um allt mögulegt sem viðkemur veiðum. Hann hefur sterkar skoðanir á sil- ungnum og afkomu hans en því kem- ur á óvart hvað afstaðan er óljós til laxins og þess vanda sem steðjar að honum. Sem dæmi um kafla bókarinnar þá fjallar einn um fiska og myrkur, aðrir um áhugaverðar veiðar í óbyggðum og einn um hvað mik- ilvægt sé að læra af mistökum. Einn besti kaflinn fjallar um þann furðu- sið sumra að drekka áfengi við veið- ar en mikið er ég sammála Ólafi þeg- ar hann skrifar: „… fyrir mér er fluguveiði sport þar sem nauðsyn- legt er að hafa öll skynfæri sem skörpust […] að drekka áfengi þeg- ar veitt er er að mínu mati hálfgerð synd.“ Og: „Ef þú elskar að veiða, af hverju viltu þá verða verri í því sem þú elskar að gera?“ (210) Í óvæntasta kaflanum greinir Ólafur frá því að hann hafi fyrir nokkrum árum ráðið sig sem verka- mann við laxeldi á Vestfjörðum og lýsingar hans á níðingsskapnum sem þar hefur tíðkast gagnvart íslenskri náttúru eru viðurstyggilegar – en koma því miður ekki á óvart. „… þarna var ég staddur í boði Norð- manna að þiggja laun fyrir að rústa firðinum […] Ég er nokkuð viss um að forfeður mínir hefðu hrækt í átt- ina að mér fyrir föðurlandssvik,“ skrifar Ólafur og um norskan yfir- mann eldisins segir hann: „Ég fann það á honum að hann leit á fjörðinn eins og hvern annan ruslahaug.“ (181) En þar fyrir utan er Ólafur Tómas í dagbók sinni fyrirtaks fararstjóri um heillandi og fjölbreytilegar veiði- lendur urriða og bleikju hér á landi. Bleikju sleppt Mynd sem er birt með lokakafla bókarinnar, um haustkvíða veiðimannsins sem þolir ekki að veiðitímabili eins árs til sé að ljúka. Kraumandi veiðigleðin - Alls kyns ævintýri í Dagbók urriða Þokuveiði Höfundur í göngu á fjöll- um með fallegar bleikjur. S IGN | FORNUBÚÐIR 1 2 , HAFNARF IRÐ I | S : 5 5 5 0800 | S IGN@S IGN . I S | S IGN . I S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.