Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 36

Morgunblaðið - 21.12.2021, Side 36
Efni í þætti kvöldsins: Pálmi V. Jónsson yfirlæknir öldrunarlækningadeildar Landspítala mun að þessu sinni ræða um vanda bráðamóttöku spítalans þegar kemur að hópi aldraða og bendir á leiðir eins og „heimasjúkrahús“ sem hægt væri að taka upp m.a. til að létta því álagi sem þessi mikilvæga deild spítalans þarf að sinna alla daga ársins. Drífa Baldursdóttir er verkefnisstjóri hjá Samfélags- húsinu við Vitatorg. Þar er boðið upp á fjölbreytta dagskrá og þjónustu sem opin er öllum eldri borg- urum sem þangað óska að koma. Bryndís Brynjólfsdóttir og Örn Grétarsson eru rótgrónir Selfyssingar sem segja frá jólahaldi á Selfossi á árum áður fram á þennan dag þegar fyrsti áfangi að nýjum miðbæ hefur verið tekinn í notkun og sumir velja að kalla „Jólabæinn“. Sr. Pálmi Matthíasson lauk prestþjónustu fyrr á þessu ári eftir 44 ár í starfi. Pálmi rekur hluta af lífs- hlaupi sínu á skemmtilegan hátt og minnir áhorf- endur Hringbrautar á nokkur mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga nú þegar jólahátíðin nálgast. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson Lífið er lag kl. 21.30 á Hringbraut í kvöld Fylgstu með! Í kvöld á Hringbraut Sr. Pálmi Matthíasson Drífa Baldursdóttir „Hjáform“ er heiti sýningar sem myndlistarmaðurinn Sigurður Árni Sigurðsson opnar á Gallerí Skilti í Duggu- vogi 43 í dag, þriðjudag, kl. 17 til 19. Hann sýnir þar upplýst verk úr plexígleri og má segja að Sigurður Árni „pakki skiltinu inn í gataðan plexíglerhjúp sem varpar lituðum skugga á skiltið“. Að venju er opnun þessarar vetrarsýningar óvenju- legs sýningarstaðarins á vetrarsólstöðum, stysta degi ársins, 21. desember, og stendur sýningin yfir fram að sumarsólstöðum í júní. Stöðug lýsing er á verkinu en dagsbirta og árstíðamunur breyta ásýnd þess. Sigurður Árni sýnir „Hjáform“ á Gallerí Skilti á vetrarsólstöðum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Mörg lög eftir Vestmannaeyinginn Oddgeir Kristjánsson, sem lést 1966, eru eftirminnileg og þau eru mikið spiluð og sungin. Að öðru leyti hefur hann lítið verið í sviðsljósinu þar til nú að Kristín Ástgeirsdóttir varpar ljósi á líf hans og nánasta umhverfi í bókinni Þeir hreinu tónar, sem Sögur útgáfa gefur út. Kristín segir að lengi hafi staðið til að skrifa ævisögu Oddgeirs og hún hafi slegið til þegar ættingjar hans hafi beðið sig um að taka verkið að sér enda þekki hún vel sögu hans og nánasta umhverfis. „Hann var besti vinur pabba míns og ég þekkti hann frá blautu barnsbeini. Hann kenndi mér tónlist og ég var í kór og lúðra- sveitum hjá honum.“ Þrátt fyrir góðan grunn segist Kristín hafa leitað víða fanga og heimildasöfnunin hafi tekið sinn tíma. „Hann tjáði sig ekki mikið í orðum á prenti en tónlistin var hans tjáningar- form,“ útskýrir hún. Oddgeir hafi verið mjög virkur maður og meðal annars látið að sér kveða í tónlist, kennslu og stjórnmálum. „Hann var á kafi í pólitík, var sósíalisti eða kommi, eins og það hét á þeim tíma, var varamaður í bæjarstjórn og sat hvorki meira né minna en 26 fundi í bæjarstjórn á kjörtímabilinu 1946 til 1950.“ Vinirnir Árni Guðmundsson, kall- aður Árni úr Eyjum, Ástgeir Krist- mann Ólafsson eða Ási í Bæ, faðir Kristínar, og Oddgeir voru samstiga en Árni og Ási voru helstu textahöfundar Oddgeirs. „Partur af hugsjón þessara manna var að leggja alþýð- unni lið í gegnum tónlist og menningu,“ segir Kristín. Oddgeir hafi valið að búa í Vestmannaeyjum alla tíð og textar við lög hans tengist þeim og Þjóðhátíð- inni mjög mikið. Menntun mikilvæg Í bókinni er gerð grein fyrir lífinu í Eyjum á ævi- skeiði Oddgeirs, fjallað um fjölskyldu hans, uppvaxtarár, nám, fyrrnefnda textahöf- unda, stjórnmál, lúðra- sveitina og kennsluna. Kristín vekur athygli á að lítið hafi verið skrif- að um Árna úr Eyjum og hér sé aðeins bætt úr því. „Endurreisn Lúðrasveitar Vest- mannaeyja og starfið við hana frá 1939 til dauðadags var mjög mikilvægur kafli í lífi Oddgeirs.“ Ferðalög hafi verið hugsuð til að efla félagsskapinn og meðal annars hafi verið farið til Tékkóslóvakíu 1959. „Pabbi hafði áður farið til Finnlands en annars voru ferðalög til útlanda og hvað þá austur fyrir járntjald nánast óþekkt á þessum tíma enda mikið mál að afla sér gjaldeyris og þar fram eft- ir götunum.“ Nafn bókarinnar vísar til þess hvaða mann Oddgeir hafði að geyma og fyrirsagnar á minningargrein Ása úr Bæ um hann. „Oddgeir var mjög dagfarsprúður maður, afskaplega hreinskiptinn og heiðarlegur í öllum samskiptum. Hann hafði ákveðnar skoðanir, gat rokið upp, en það rauk fljótt úr honum. Hann var frekar feiminn maður og vildi helst ekki bera tilfinningar sínar á torg, eins og hann skrifaði vini sínum eftir andlát Árna úr Eyjum, en það gerði hann í tónlistinni. “ Kristín segir að kennslan hafi skipt Oddgeir miklu máli. Hann hafi ýtt undir frekara nám nemenda og sam- glaðst þeim sem hafi staðið sig vel. „Hann dreymdi um að mennta sig en átti þess ekki kost, systkinin mörg og foreldrarnir fátækir.“ Ljósmynd/Kjartan Guðmundsson/Ljósmyndasafn Vestmannaeyja Skemmtun í Akóges Aftari röð frá vinstri: Hafsteinn Snorrason, Kjartan Jónsson, Þorsteinn Sigurðsson og Hjálmar Eiríksson. Fremri röð frá vinstri: Oddgeir Kristjánsson og Ástgeir Ólafsson eða Ási í Bæ. Tónlistin var helsta tjáningarformið - Kristín sendir frá sér bók um Oddgeir Kristjánsson Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Höfundur Kristín Ástgeirsdóttir þekkir vel sögu Oddgeirs. ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 355. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Það hefur oft verið talað um það fyrir tímabil að öll lið geti unnið hvert annað og það séu sex til sjö lið sem geta barist í og við toppinn. Maður hefur ekki alltaf verið sam- mála því en staðan í dag er einfaldlega sú að þetta er raunin,“ segir Ásbjörn Friðriksson, einn besti leikmaður úrvalsdeildar karla í handbolta og aðstoðarþjálfari FH, um jafnræðið á Íslandsmótinu í vetur. »31 Barátta sex til sjö liða um titilinn ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.