Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.12. 2021 FRÉTTIR VIKUNNAR Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Allur ágóði af sölunni rennur til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Sölutímabil er 2.— 16. desember jolaoroinn.is N ý ríkisstjórn var loks mynd- uð í landinu, meira en tveimur mánuðum eftir kosningar. Að venju hófust kreist- ingslegar tilraunir til þess að finna henni nafn (líkt og þau séu nokkru sinni notuð) og virðist Aðventustjórn- in hafa fengið mestan hljómgrunn. Í hinni endurnýjuðu ríkisstjórn var talsvert hróflað við verkefnum á milli ráðuneyta og sumum ráðu- neytum gefin ný nöfn, svo mjög að í stjórnarráðinu virtist enginn fylli- lega vita hvað væri hvar, matvæla- ráðuneytið týndist á leiðinni frá Kjarvalsstöðum til Bessastaða og um skeið virtist endurvinnsluráðu- neytið hafa tekið við menningar- málum. Tveir nýir ráðherrar settust við rík- isstjórnarborðið, þeir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Jón Gunnarsson innanríkisráðherra, en við embætti hins síðarnefnda mun Guðrún Hafsteinsdóttir taka ekki síðar en eftir 18 mánuði. Þá var ein- ing um að Birgir Ármannsson yrði kjörinn forseti Alþingis. Aðalmarkmið langs stjórnarsátt- mála var að endurreisa þyrfti efna- hag þjóðarinnar og fjárhag ríkisins eftir að kórónuveiran hættir að kreppa að. Það á að gera með hag- vexti, það á að vaxa til velsældar, eins og þar stóð. Mikil hátíð neysluþjóðfélagsins stóð yfir um liðna helgi og fram í vikuna, þar sem á gekk með myrkum föss- ara og rafrænum mánudegi. Að sögn Breka Karlssonar neyt- endafrömuðar var þó ekki einhlítt að öll vara bæri raunverulegan afslátt. Ljósin á Óslóartrénu á Austurvelli voru tendruð og jólin ljóslega að koma eftir allt saman. . . . Snjó kyngdi niður á höfuðborgar- svæðinu, en í borginni var einhver bið á heflum og saltdreifingu, svo miklar tafir urðu á umferð, enda víða hált og fólk á misvel búnum bílum. Ráðherrar skiptust sumir á lyklum og færðu hver öðrum blóm þegar ljósmyndarar fjölmiðla voru komnir. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra sat hins vegar sem fastast á sínum kontór með sömu lykla, en keypti sér jólarós í tilefni dagsins. Ráðherrar tjáðu sig sumir um út- færslur á efni stjórnarsáttmálans, sem um sumt er nokkuð loðinn. Þar á meðal kom fram hjá Lilju Alfreðs- dóttur að endurgreiðsla skatta vegna kvikmyndaframleiðslu myndi hækka verulega og landið þannig keppa við Írland og Spán um hylli kvikmyndaframleiðenda. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins fagnaði stefnu ríkisstjórnarinnar um eflingu Samkeppniseftirlitsins, en virðist ekki hafa áttað sig á því að um leið stendur til að sameina það Neytendastofu, svo forstjórastóll hans verður auglýstur laus til um- sóknar. Grímseyingar ætla að reisa nýja kirkju á næsta ári í stað þeirrar, sem brann til kaldra kola í haust. Fjársöfnun fyrir byggingunni hefur gengið vel og búið að gera útlits- teikningar, en nýja kirkjan á að vera með gamla laginu. Ekki stendur til að setja upp gang- brautarljós í Reykjavík yfir götur, þar sem fyrirhugað er að borgar- línan liggi í fyllingu tímans. . . . Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra lagði fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2022, en þar er gert ráð fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs verði 55 milljörðum króna minni en upphaflega var óttast. Hann verður samt rúmir 168 milljarðar króna. Vonir standa til að tekjur ríkissjóðs aukist ef hagvöxtur tekur vel við sér. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að hann reynist 5,3% á næsta ári. Laun hjá ríkinu hafa hækkað tals- vert undanfarin misseri. Heildar- laun ríkisstarfsmanna eru nú 912 þúsund krónur á mánuði að meðal- tali. Laun starfsmanna sveitarfélaga hafa þó ekki síður hækkað, nokkuð umfram lífskjarasamninga og meira en hjá ríki eða á almennum vinnu- markaði. Sama dag fengu heimilin í landinu þær fregnir að mjólkurfernan myndi hækka í verði og kosta 176 krónur. Skýringin liggur í verð- hækkunum á aðföngum kúabúa, auknum vinnslukostnaði og launa- hækkunum nú um áramót. Ekki er nóg með að loðna sé nú um allan sjó, heldur eru uppi vonir um sterka loðnuvertíð að ári. Óskað hefur verið heimildar Alþing- is fyrir kaupum ríkisins á húsbygg- ingum Hótels Sögu, sem ætlað er að Háskóli Íslands taki þá í notkun. Forseti Íslands er enn að veita út- flutningsverðlaun, en þau fékk að þessu sinni fyrirtækið Controlant. Við sama tækifæri var leikstjórinn Baltasar Kormákur heiðraður fyrir störf sín á erlendri grundu. Tryggingafélagið Sjóvá veitti Landsbjörg ríflega 142 milljóna styrk til smíði þriggja björgunar- skipa. Tvö þeirra verða afhent á næsta ári en hið þriðja árið 2023. . . . Fyrsta tilfelli Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar greindist á Íslandi og viðbúið að það hafi kraumað í ein- hverja daga. Opinberum starfsmönnum hefur fjölgað um 9.000 frá árinu 2017, en starfsmönnum einkageirans fækkað um átta þúsund á sama tíma. Færri og færri vinna því meira og meira til þess að greiða laun fleiri og fleiri. Margir starfsmenn ríkisins voru hins vegar í algerri óvissu og tilvist- arkreppu vegna uppstokkunar ráðuneyta og áttu í meiri erfið- leikum en nokkru sinni með að átta sig á hvar í kerfinu þeir væru stadd- ir. Ekki er von á svörum um það fyrr en á næsta ári. Það er því vart seinna vænna að lög um Stjórnarráðið verði endurskoðuð líkt og Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra boðaði í stefnuræðu sinni og ríkisstjórnar hennar á Al- þingi. Forsætisráðherra vonast til þess að Stjórnarráðið verði sveigj- anlegra en verið hefur. Í umræðum um stefnuræðuna tal- aði annar hver þingmaður um vöxt til vesældar. Þó að margir höfuðborgarbúar hrylltu sig yfir snjókomunni átti það ekki við alla. Henni var t.d. fagnað í Bláfjöllum þar sem menn undirbúa sig af fullum krafti fyrir vetrar- vertíðina í brekkunum. Heimatilbúin sprengja fannst í ruslagámi við Mánatún. Þrír góð- kunningjar lögreglunnar voru hand- teknir í tengslum við málið, en ekk- ert í rannsókn þess bendir til þess að sprengjuna hafi átt að nota gegn erlendum sendiráðsstarfsmönnum þar í grenndinni, líkt og getgátur höfðu verið uppi um. Opnuð hefur verið svonefnd al- mannaheillaskrá hjá skattyfir- völdum, en þar geta góðgerðarfélög og ámóta samtök skráð sig, svo framlög til þeirra verði frádráttar- bær frá skatti. Upplýst var á ráðstefnu í Vest- mannaeyjum, að Tyrkir (eða Márar) hefðu verið hafðir fyrir rangri sök um Tyrkjaránið þar 1627. Þar hefðu Hollendingar borið mesta sök. Jón Sigurbjörnsson, leikari og óperusöngvari, lést 99 ára að aldri. . . . Raforka er af skornari skammti en þörf er fyrir og ákvað Landsvirkjun að takmarka afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja af þeim sök- um. Eftirspurn eftir raforku hefur aukist mikið undanfarin ár, en við bætist að vatnsbúskapur á hálend- inu er með lakasta móti. Íshellan yfir Grímsvötnum hélt áfram að síga og hefur nú lækkað um rúma tuttugu metra. Rennsli úr Grímsvötnum hefur aukist með hverri mælingu undanfarna daga og viðbúið að þar geti tekið að gjósa hvenær sem er. Í frumvarpi að nýjum sóttvarna- lögum er lagt til að sóttvarnalæknir verði skipaður af heilbrigðis- ráðherra, skýra þurfi stöðu hans og gera sjálfstæðari. Flugfélögin eru ánægð með bókanir á næstunni og eru þær mjög í takt við væntingar og áætlanir. Ekki er að sjá að Ómíkron-afbrigðið hafi sett strik í þann reikning enn sem komið er. Í tímariti um viðskipti og efnahags- mál var greint frá tímamóta- rannsókn á sviði ferðamála. Í henni var meginniðurstaðan sú að Íslend- ingar ferðuðust til Tenerife einkum í leit að góðu veðri en síður til þess að svala menningarþorsta eða í við- skiptaerindum. Flaumur gagna um farsíma heldur áfram að aukast samkvæmt tölfræði Fjarskiptastofnunar og má segja að hann haldi áfram að aukast í línu- legum vexti. Vaxið til vesældar Ný ríkisstjórn á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. Fremstir eru nýju ráðherrarnir Jón Gunnarsson og Willum Þór Þórsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg 28.11.-4.12. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.