Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Page 19
5.12. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Verslun Guðsteins, Bankastræti 5 og hús Mar- teins Einarssonar þar sem Biskupsstofa var lengi til húsa. „Þetta eru glæsileg, klassísk þrílyft hús sem bera þess merki að fólk hafði sýn á hvernig þróun götunnar gæti verið,“ segir Anna Dröfn og segir að á þessum árum hafi verið upp- gangur í samfélaginu. „Metnaður var greinilega lagður í að nú- tímavæða þessa borg en skipulagið fyrir Reykjavík frá 1927 gerði ráð fyrir að gatan öll þróaðist með þessum hætti. Það er augljóst að þau áform urðu ekki að veruleika því þessi hús eru á stangli og timburhús á milli. Það fyrsta sem við vildum skoða var að skilja þetta,“ segir Guðni og bætir við að þau hafi byrjað á að leggjast yfir teikningar af öllum húsunum. „Það var í raun þetta tímabil, þriðji áratug- urinn og það sem ekki varð, sem vakti athygli því fyrir utan þessi glæsilegu hús sem risu, voru önnur sem var byrjað á en aldrei kláruð. Frægasta dæmi um það er Bankastræti 4, hús Hans Petersen, en þar var bara byggð jarð- hæðin,“ segir Guðni og nefnir að bókin fjalli um húsin allt frá Lækjargötu og upp á Hlemm því í þeirra huga myndi Bankastræti og Laugavegur órofna heild. „Við fórum að skoða af hverju þessi hús risu ekki á sínum tíma og svarið var svo sem auð- sótt; heimskreppan 1930, stríð og innflutnings- takmarkanir,“ segir Anna Dröfn. Í takti við tíðarandann Í bókinni skoða Anna Dröfn og Guðni þróun götunnar frá upphafi. „Þetta er langfjölbreyttasta gata landsins og ekki bara er hún fjölbreytt, heldur alltaf í takt við tíðarandann,“ segir Guðni. „Við leggjum áherslu á hús sem hafa tekið miklum breytingum, en dæmi um hús sem hefur lítið breyst er Brynjuhúsið. Þar hefur verið nán- ast óbreytt starfsemi frá upphafi og það er byggt með stórum gluggum, enda er það byggt sem at- vinnuhúsnæði,“ segir Anna Dröfn og Guðni bæt- ir við að gluggar hússins hafi á einhverjum tíma- punkti þótt „hneyslunarlega stórir“. Í bókinni má sjá útskýringateikingar Guðna, og getur fólk skoðað hvernig húsin breyttust í tímans rás, en auk þess eru gamlar ljósmyndir áberandi á nánast hverri síðu. „Það er svo merkilegt hvað tíðarandinn birt- ist okkur sterkt í húsunum,“ segir Anna Dröfn og segir húsin geyma ótal sögur. „Eitt af mínum uppáhaldshúsum er Lauga- vegur 3, byggt um 1920. Þarna byggði maður sem horfði greinilega til Evrópu og vildi nú- tímavæða Reykjavík, en hann var menntaður klæðskeri og hét Andrés Andrésson,“ segir hún og segir hann hafa skrifað greinar um hvernig íslenskir karlmenn ættu að klæða sig. „Hann fékk Guðjón Samúelsson til að teikna húsið fyrir sig, en keypti í fyrstu gam- alt timburhús,“ segir Anna Dröfn og sýnir blaðamanni myndir sem sýna hvernig breyt- ingum húsið tók, en það var byggt í áföngum. „Við erum að vona að með því að búta niður byggingarsöguna í þessari bók geti fólk farið á Laugaveginn og leitað að þessum vísbend- ingum,“ segir Anna Dröfn, en þess má geta að Guðni og Anna Dröfn verða með sögugöngu um Laugaveginn um helgina, bæði laugardag og sunnudag klukkan 13, og hefst gangan frá Stjórnarráðshúsinu. Feigu húsin fengu að lifa Er á Laugavegi hrærigrautur stíla? „Já, ég skoðaði hvaða byggingarstílar hafa verið á Íslandi síðustu 200 ár og það er nánast hver einasti stíll sem á sinn fulltrúa við götuna, eða hefur átt það einhvern tímann,“ segir Guðni. „Þetta er byggingarlistasögusafn viljum við meina, í þeirri mynd sem gatan er. Það er að ein- hverju leyti búið að festa núverandi mynd í sessi með því að friða mörg af timburhúsunum þannig að það er búið að taka þá ákvörðun að fjöl- breytnin fær að lifa við Laugaveginn,“ segir Guðni. „Það er stefna borgarinnar að reyna að hnýta saman þetta gamla og nýja og þetta stóra og litla. Mögulega verða einhver hús rifin eða færð en það verður miklu minna en hingað til hefur verið gert. Hver kynslóð hefur haft sinn draum um hvernig Laugavegur eigi að vera í framtíðinni en núna er kannski búið að taka í sátt að hann verður aldrei með ein- hverjum einum hætti. Því þarf að hlúa að þess- ari fjölbreytni sem er svo sérstök,“ segir Guðni og Anna Dröfn segir að eftir hrun hafi orðið mikil vakning í að varðveita gömul hús við Laugaveginn og segir að í kjölfarið hafi verið hætt við að rífa þar ýmis hús. „Það voru tugir timburhúsa sem voru „feig“, en eftir hrun breyttist gildismat fólks og áhugi á friðun húsa jókst gríðarlega,“ segir Guðni. Líflegri en oft er viðurkennt Hvernig finnst ykkur Laugavegurinn í dag eft- ir að honum var breytt að hluta í göngugötu og akstursstefnu annars staðar breytt? „No comment,“ segir Guðni og þau skelli- hlæja. „Mér þykir Laugavegurinn miklu líflegri en oft er viðurkennt. Eðli götunnar hefur breyst með takmörkun bílaumferðar. En ég hef fulla trú á því að gatan muni aðlagast þessum breyt- ingum. Frá upphafi Laugavegarins hefur gatan þurft að aðlagast hinum og þessum hlutverkum. Í grunninn er hún byggð sem íbúðagata og lögð löngu áður en bíllinn kemur til sögunnar. Svo þarf gatan að aðlagast aukinni hestaumferð og eftirspurn eftir fjölbreyttri þjónustu. Svo kemur bíllinn og umræðan stærstan hluta tuttugustu aldar snýst um að greiða leið bíla og strætis- vagna um rýmið, sem ég skil mjög vel því þetta var í upphafi aðaltengingin milli Vesturbæjar og Austurbæjar,“ segir Anna Dröfn og Guðni segir þessa umræðu vera hálfrar aldar gamla. „Allt frá fimmta áratugnum hefur verið rætt um að gera Laugaveginn að göngugötu. Svona breytingar taka tíma og geta verið erfiðar, en hægt að rólega aðlagar fólk sig,“ segir Anna Dröfn og bætir við að lokum: „Það er svo eðli- legt og mikilvægt að fólk takist á um þessa aðal- götu. Okkur finnst Laugavegur ansi magnaður og viljum varpa ljósi á sögurnar sem húsin með sín ótal andlit frá mörgum tímabilum hafa að geyma. Þær geta sagt okkur svo margt um þró- un borgarinnar, samhengi götunnar, merkilega frumkvöðla og síbreytilega framtíðarsýn.“ Morgunblaðið/Ásdís Jón Jónsson Dahlmann/Ljósmyndasafn Íslands. Jón Jónsson Dahlmann/Ljósmyndasafn Íslands Borgarskipulag/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Guðni og Anna Dröfn ganga oft um Laugaveginn og segja hann vera fjölbreyttustu götu landsins. Þau hafa nú gefið út bókina Laugavegur. ’ Hver kynslóð hefur haft sinn draum um hvernig Lauga- vegur eigi að vera í framtíðinni en núna er kannski búið að taka í sátt að hann verður aldrei með einhverjum einum hætti. Því þarf að hlúa að þessari fjöl- breytni sem er svo sérstök. Húsið á Laugavegi 25 byggði Kristinn Einarsson árið 1962, en hann var bróðir Marteins sem byggði nýklassískt hús á næsta horni árið 1928. Stórhýsi Marteins Einarssonar á Laugavegi 31 er eitt margra reisu- legra verslunarhúsa sem risu við Laugaveginn á þriðja áratugnum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.