Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.12. 2021 BÆKUR Þ egar horft er yfir bæinn af fjórðu hæð byggingar á Skólavörðustíg blasir miðbærinn við í öllum sínum fjölbreytileika. Úti er kalt en stillt og vetrarsólin slær bláum bjarma á hrímhvíta Esjuna sem lýsist upp tignarlega og rammar inn myndina sem sést út um gluggann. Gömlu og nýju miðbæjarhúsin eru öðruvísi frá þessu sjónarhorni og það glittir í nokkur húsanna við Laugaveg. Blaðamaður er einmitt mættur til fundar við hjónin Önnu Dröfn Ágústs- dóttur og Guðna Valberg í bókaútgáfunni Ang- ústúru til að ræða um þá götu, en nýútkomin bók þeirra fjallar um þessa frægustu götu Íslands- sögunnar og ber einfaldlega nafnið Laugavegur. Mikið Laugavegsfólk Hugmyndina að bókarskrifunum má rekja tvo áratugi aftur í tímann. „Við erum bæði mikið Laugavegsfólk og för- um mikið um helgar með dætur okkar að labba þar og skoða húsin. En löngu áður en við Guðni kynntumst átti hann sér draum um að skrifa bók um Laugaveginn,“ segir Anna Dröfn, lektor í hönnunardeild Listaháskólans. Hún segir þau alltaf hafa mikið spáð og spekúlerað í húsunum við Laugaveginn og tek- ur Guðni undir það. „Ég opnaði verslunina Dogma á Laugaveg- inum með bræðrum mínum fyrir nítján árum og þar vaknar mín forvitni fyrir götunni. Bókin hefur blundað í mér síðan þá, en eftir að við Anna Dröfn kynntumst fyrir tíu árum poppaði upp önnur hugmynd að bók og skrifuðum við þá saman bókina Reykjavík sem ekki varð en hún kom út fyrir sjö árum. En þessi hugmynd kom svo aftur upp og nú voru aðstæður góð- ar,“ segir Guðni, arkitekt og einn eigenda arki- tektastofunnar Trípólí. Fjölmennasta gata landsins Saga Laugavegar hófst árið 1885 þegar hann var lagður að frumkvæði fátæktarnefndar til að bregðast við atvinnuástandi í bænum, að sögn Önnu Drafnar. „Hann var lagður til að þess að auðvelda konum burðinn inn í Laugar, en þær fóru fót- gangandi með þvott á bakinu þangað til að þvo í heitum laugum. Þaðan kemur nafnið Lauga- vegur,“ útskýrir hún. „Um leið og vegurinn er lagður fer fólk að byggja sér hús meðfram götunni og á tuttugu árum er gatan þéttbyggð af timburhúsum inn að Barónsstíg. Þannig að upp úr aldamótum er gatan orðin langfjölmennasta íbúðagata á landinu,“ segir Anna Dröfn. „Þegar flestir bjuggu á Laugavegi náði íbúafjöldinn þar þrjú þúsund manns um 1930,“ segir Guðni. Byggingarsagan ekki nóg Hjónin segjast vinna afar vel saman, enda hafi þau slípast vel til við gerð fyrri bókarinnar. „Við vildum sameina krafta okkar sem arki- tekt og sagnfræðingur, en við komum auðvitað inn í verkið með ólíka þætti,“ segir hún og seg- ir að þau hafi lagst í mikla heimildavinnu og grúsk. „Við fórum af stað til að skilja af hverju Laugavegurinn lítur út eins og hann gerir, þannig að það eru spurningar sem snúa að byggingarlistinni sem drífa okkur af stað. En svo eru svo margar sögur um kaupmenn, frumkvöðla og skipulagsmál sem útskýra útlit húsanna og þróun þeirra,“ segir hún og nefnir að í bókinni er farið yfir 120 húsnúmer við Laugaveginn. „Það var ekki nóg að fara bara í byggingar- söguna vegna þess að það eru oftar en ekki kaupmenn sem byggja húsin með sérstakan tilgang í huga og í samhengi við gildandi skipu- lag og framtíðarsýn hverju sinni,“ segir Guðni. Anna Dröfn nefnir einnig að oft hafi verið settar reglur um hvernig mætti eða mætti ekki byggja og þurftu húsbyggjendur oft að taka tillit til þess. Þá hafi oft útlit húsa eða lega gangstéttarinnar þurft að lúta þeim reglum. Hún segir að heilmikið megi lesa í þessi atriði um hvernig hugmyndir um góð borgarrými hafa tekið breytingum. „Það voru þessir skrítnu hlutir við Lauga- veginn sem ýttu okkur af stað í verkefnið og svo hefur það leitt okkur í ótrúlega skemmti- legt tímaflakk í gegnum yfir hundrað ára tíma- bil,“ segir hún. Þriðji áratugurinn heillar Það sem vakti helst áhuga þeirra við Lauga- veginn var fjölbreytileiki húsanna og hús sem risu á þriðja áratugnum; hús eins og Sandholt, Ótrúlega skemmtilegt tímaferðalag Laugavegurinn er sú gata sem best endurspeglar tíðarandann í borginni á hverjum tíma. Hjónin Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur tóku höndum saman og skrifuðu bók um götu allra landsmanna. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hér má sjá Laugaveg 3 í bygg- ingu upp úr 1920. Andrés Andrésson klæðskeri byggði húsið í þremur áföngum eftir teikningum Guðjóns Samúels- sonar. Gamla timburhúsið var rifið 1927 þegar annar áfangi stórhýsisins var reistur. Gunnar Rúnar Ólafsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Sigurjón Jónsson/ Ljósmyndasafn ReykjavíkurSigfús Eymundsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Gunnar Sigurðsson kaupmaður í Von lyfti húsi sínu á Laugavegi 55 árið 1924 og steypti undir það verslunarhæð. Horft upp Laugaveginn frá Ingólfsstræti um 1920. Þá var búið að malbika Banka- strætið og stóran hluta Laugavegar og mátti keyra bæði upp og niður götuna. Neðsti hluti Laugavegar leit svona út í lok 19. aldar, en gatan varð fljótt fjölmenn- asta íbúðagata landsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.