Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.12. 2021
BÆKUR
Þ
egar horft er yfir bæinn af fjórðu
hæð byggingar á Skólavörðustíg
blasir miðbærinn við í öllum sínum
fjölbreytileika. Úti er kalt en stillt
og vetrarsólin slær bláum bjarma á
hrímhvíta Esjuna sem lýsist upp tignarlega og
rammar inn myndina sem sést út um gluggann.
Gömlu og nýju miðbæjarhúsin eru öðruvísi frá
þessu sjónarhorni og það glittir í nokkur
húsanna við Laugaveg. Blaðamaður er einmitt
mættur til fundar við hjónin Önnu Dröfn Ágústs-
dóttur og Guðna Valberg í bókaútgáfunni Ang-
ústúru til að ræða um þá götu, en nýútkomin bók
þeirra fjallar um þessa frægustu götu Íslands-
sögunnar og ber einfaldlega nafnið Laugavegur.
Mikið Laugavegsfólk
Hugmyndina að bókarskrifunum má rekja tvo
áratugi aftur í tímann.
„Við erum bæði mikið Laugavegsfólk og för-
um mikið um helgar með dætur okkar að labba
þar og skoða húsin. En löngu áður en við
Guðni kynntumst átti hann sér draum um að
skrifa bók um Laugaveginn,“ segir Anna
Dröfn, lektor í hönnunardeild Listaháskólans.
Hún segir þau alltaf hafa mikið spáð og
spekúlerað í húsunum við Laugaveginn og tek-
ur Guðni undir það.
„Ég opnaði verslunina Dogma á Laugaveg-
inum með bræðrum mínum fyrir nítján árum
og þar vaknar mín forvitni fyrir götunni. Bókin
hefur blundað í mér síðan þá, en eftir að við
Anna Dröfn kynntumst fyrir tíu árum poppaði
upp önnur hugmynd að bók og skrifuðum við
þá saman bókina Reykjavík sem ekki varð en
hún kom út fyrir sjö árum. En þessi hugmynd
kom svo aftur upp og nú voru aðstæður góð-
ar,“ segir Guðni, arkitekt og einn eigenda arki-
tektastofunnar Trípólí.
Fjölmennasta gata landsins
Saga Laugavegar hófst árið 1885 þegar hann
var lagður að frumkvæði fátæktarnefndar til
að bregðast við atvinnuástandi í bænum, að
sögn Önnu Drafnar.
„Hann var lagður til að þess að auðvelda
konum burðinn inn í Laugar, en þær fóru fót-
gangandi með þvott á bakinu þangað til að þvo
í heitum laugum. Þaðan kemur nafnið Lauga-
vegur,“ útskýrir hún.
„Um leið og vegurinn er lagður fer fólk að
byggja sér hús meðfram götunni og á tuttugu
árum er gatan þéttbyggð af timburhúsum inn
að Barónsstíg. Þannig að upp úr aldamótum er
gatan orðin langfjölmennasta íbúðagata á
landinu,“ segir Anna Dröfn.
„Þegar flestir bjuggu á Laugavegi náði
íbúafjöldinn þar þrjú þúsund manns um 1930,“
segir Guðni.
Byggingarsagan ekki nóg
Hjónin segjast vinna afar vel saman, enda hafi
þau slípast vel til við gerð fyrri bókarinnar.
„Við vildum sameina krafta okkar sem arki-
tekt og sagnfræðingur, en við komum auðvitað
inn í verkið með ólíka þætti,“ segir hún og seg-
ir að þau hafi lagst í mikla heimildavinnu og
grúsk.
„Við fórum af stað til að skilja af hverju
Laugavegurinn lítur út eins og hann gerir,
þannig að það eru spurningar sem snúa að
byggingarlistinni sem drífa okkur af stað. En
svo eru svo margar sögur um kaupmenn,
frumkvöðla og skipulagsmál sem útskýra útlit
húsanna og þróun þeirra,“ segir hún og nefnir
að í bókinni er farið yfir 120 húsnúmer við
Laugaveginn.
„Það var ekki nóg að fara bara í byggingar-
söguna vegna þess að það eru oftar en ekki
kaupmenn sem byggja húsin með sérstakan
tilgang í huga og í samhengi við gildandi skipu-
lag og framtíðarsýn hverju sinni,“ segir Guðni.
Anna Dröfn nefnir einnig að oft hafi verið
settar reglur um hvernig mætti eða mætti ekki
byggja og þurftu húsbyggjendur oft að taka
tillit til þess. Þá hafi oft útlit húsa eða lega
gangstéttarinnar þurft að lúta þeim reglum.
Hún segir að heilmikið megi lesa í þessi atriði
um hvernig hugmyndir um góð borgarrými
hafa tekið breytingum.
„Það voru þessir skrítnu hlutir við Lauga-
veginn sem ýttu okkur af stað í verkefnið og
svo hefur það leitt okkur í ótrúlega skemmti-
legt tímaflakk í gegnum yfir hundrað ára tíma-
bil,“ segir hún.
Þriðji áratugurinn heillar
Það sem vakti helst áhuga þeirra við Lauga-
veginn var fjölbreytileiki húsanna og hús sem
risu á þriðja áratugnum; hús eins og Sandholt,
Ótrúlega skemmtilegt
tímaferðalag
Laugavegurinn er sú gata sem best endurspeglar tíðarandann í borginni á hverjum
tíma. Hjónin Guðni Valberg arkitekt og Anna Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðingur
tóku höndum saman og skrifuðu bók um götu allra landsmanna.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Hér má sjá Laugaveg 3 í bygg-
ingu upp úr 1920. Andrés
Andrésson klæðskeri byggði
húsið í þremur áföngum eftir
teikningum Guðjóns Samúels-
sonar. Gamla timburhúsið var
rifið 1927 þegar annar áfangi
stórhýsisins var reistur.
Gunnar Rúnar Ólafsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Sigurjón Jónsson/ Ljósmyndasafn ReykjavíkurSigfús Eymundsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Gunnar Sigurðsson
kaupmaður í Von lyfti
húsi sínu á Laugavegi
55 árið 1924 og
steypti undir það
verslunarhæð.
Horft upp Laugaveginn frá
Ingólfsstræti um 1920. Þá
var búið að malbika Banka-
strætið og stóran hluta
Laugavegar og mátti keyra
bæði upp og niður götuna.
Neðsti hluti Laugavegar leit
svona út í lok 19. aldar, en
gatan varð fljótt fjölmenn-
asta íbúðagata landsins.