Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Qupperneq 12
ERLENT
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.12. 2021
S
ættir við Namibíu eru fyrir okkur
ófrávíkjanlegt verkefni, sem sprett-
ur af sögulegri og siðferðislegri
ábyrgð okkar,“ segir í stjórnar-
sáttmála nýrrar ríkisstjórnar í
Þýskalandi. Sáttmálinn er 178 síður að lengd og
Namibíu er aðeins getið í tveimur setningum,
en á bak við þær er löng saga, sem á sér óhugn-
anlegt upphaf í nýlendubrölti Þjóðverja í lok 19.
og upphafi 20. aldar.
Þjóðverjar voru ekki atkvæðamiklir í ný-
lendukapphlaupinu og seinir til, en saga þeirra
þar sem nú er Namibía er blóði drifin. Hún
hófst um miðja 19. öldina þegar þýskir trúboðar
komu til vesturstrandar Afríku. 1984 varð
svæðið að þýskri nýlendu eða verndarsvæði
eins og það var þá kallað og hlaut nafnið Þýska
Suðvestur-Afríka. Landið var ekki þéttbýlt, en
fyrir voru fjölmennastir þjóðflokkarnir Herero,
Nama og Witbooi. Nokkuð var um að Þjóð-
verjar settust þar að og sendar voru þýskar
sveitir til að verja þá. Áttu þær í skærum við
heimamenn. 1893 réðust þýskir hermenn á
þorpið Hornkranz og stráfelldu konur, börn og
aldraða. Tveimur árum síðar voru stofnaðar
sérstakar bardagasveitir, Deutsche Schutz-
truppe, til að verja þýska hagsmuni og kæfa nið-
ur andóf gegn nýlendustjórninni. Þessar sveitir
gerðu lítinn greinarmun á vopnuðum andstæð-
ingum og almennum borgurum og iðulega
skildu þeir eftir sig sviðna jörð. Í þessum sveit-
um voru þegar mest lét 15 þúsund þýskir her-
menn, en einnig var fjöldi heimamanna kvaddur
í þær.
Fyrirskipun um þjóðarmorð
Í ágúst 1904 kom til úrslitaorrustu milli þýsku
sveitanna undir forustu Lothars von Trotha og
Samuels Mahareros og uppreisnarmanna úr
röðum Herero-þjóðflokksins. Von Trotha vann
afgerandi sigur og gaf í kjölfarið út fyrirskipun
um að Herero-þjóðflokkurinn skyldi þurrkaður
út: „Innan þýsku landamæranna verður hver
einasti Herero, með eða án skotvopna, með eða
án búfénaðar, skotinn. Ég mun ekki lengur taka
við neinum konum eða börnum, rekið þau aftur
til sinnar þjóðar eða látið skjóta á þau.“
Eftir þetta voru óvopnaðir Herero-menn
skotnir og hengdir þar sem til þeirra náðist. Bú-
fénaði þeirra var ýmist stolið eða slátrað og
Þjóðverjar tóku land þeirra. Fjöldamorð voru
framin á fólki úr Herero- og Nama-þjóð-
flokknum. Fólk úr Herero-þjóðflokknum var
rekið út í Kalahari-eyðimörkina þar sem þús-
undir manna létust úr hungri og þorsta.
Á næstu árum kom til skæra milli Þjóðverja
og uppreisnarmanna, en mótspyrna þeirra hafði
að mestu verið brotin á bak aftur. Tóku Þjóð-
verjar þá sem eftir voru, þar á meðal konur og
börn, og sendu í fanga- og vinnubúðir. Fang-
arnir voru látnir þræla fyrir þýsk fyrirtæki og
byggja upp innviði nýlendunnar.
Þýskir vísindamenn tóku höfuðkúpur fórn-
arlamba og fóru með til Þýskalands til rann-
sókna, sem nota átti til að færa vísindaleg rök
fyrir yfirburðum hvíta kynstofnsins yfir öðrum
kynstofnum.
Erfitt er að henda reiður á umfangi ódæðis-
verkanna, en talið er að 65 þúsund manns af 80
þúsund Herero-mönnum hafi verið felldir eða
allt að 75% heildarfjöldans í landinu og að
minnsta kosti helmingur Nama-manna eða 10
þúsund manns af 20 þúsund. Alls beri sveitir
Þjóðverja ábyrgð á dauða 100 þúsund manns.
Nú er viðurkennt meðal sagnfræðinga að þetta
hafi verið fyrsta þjóðarmorð 20. aldarinnar.
Þegar fyrri heimsstyrjöld braust út breiddust
átökin til nýlendu Þjóðverja í Afríku og misstu
þeir hana árið 1915 í hendur sveita sameinaðrar
Suður-Afríku og bandamanna þeirra, Breta.
Þeim átökum lýsir rithöfundurinn Abdul-
razak Gurnah, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum í haust, með áhrifaríkum hætti í
bókinni Afterlives, sem kom út í fyrra.
Aðfarir Þjóðverja í Afríku koma einnig við
sögu í skáldsögunni Olgu, sem er eftir Bernhard
Schlink og kom út á íslensku árið 2019. Þar fer
ein sögupersónan til Þýsku Suðvestur-Afríku
og tekur þátt í ódæðisverkunum þar. Í huga að-
alsöguhetju Schlinks, hennar Olgu, sem ítrekað
horfir á eftir sínum heittelskaða leggja í leið-
angra til að sigra heiminn, er sóknin eftir ný-
lendum ein birtingarmynd þess stórmennsku-
brjálæðis Þjóðverja, sem náði hámarki í
vítiseldum seinni heimsstyrjaldar.
Framganga Þjóðverja á nýlendutímanum
hefur áratugum saman eitrað samskipti þeirra
við Namibíu.
Viðurkenning einni öld síðar
Árið 2004 gaf Heidemarie Wieczorek-Zeul, þá-
verandi þróunarráðherra Þýskalands, út við-
urkenningu á sögulegri og siðferðislegri ábyrgð
Þjóðverja á þjóðarmorði Herero- og Nama-
þjóðflokksins. Það var einni öld eftir að herfor-
inginn von Trotha gaf út fyrirskipunina um að
þurrka út Herero-þjóðflokkinn. Sagði hún að
Þjóðverjar myndu bregðast við ábyrgð sinni
með því að veita þróunaraðstoð til Namibíu.
Sex árum áður hafði Herero-þjóðflokkurinn
krafist skaðabóta þegar Roman Herzog forseti
Þýskalands kom í heimsókn til Namibíu.
Fulltrúar Herero- og Nama-þjóðflokkanna
ítrekuðu kröfuna um skaðabætur aftur árið
2014. Árið eftir hófust viðræður milli namib-
ískra og þýskra stjórnvalda um opinbera afsök-
unarbeiðni og þróunaraðstoð og 2016 við-
urkenndu þýsk stjórnvöld í fyrsta skipti í
opinberu skjali að fjöldamorðin, sem þýsku
sveitirnar frömdu, hefðu verið þjóðarmorð.
Sú skilgreining skiptir máli. Þjóðarmorð er
þýðing á „genocide“, sem er samsett úr gríska
orðinu „genos“, sem merkir þjóð eða kynþáttur,
og latnesku endingunni „-caedo“, sem merkir að
drepa. Bandamenn notuðu orðið fyrst sem laga-
legt hugtak árið 1945 þegar réttað var yfir for-
ustumönnum nasista í Nürnberg árið 1945 fyrir
morðin á sex milljónum gyðinga í síðari heims-
styrjöld. Þeir voru að lokum dæmdir fyrir glæpi
gegn mannkyni. Árið 1948 var þjóðarmorðssátt-
máli Sameinuðu þjóðanna samþykktur þar sem
það var lagalega skilgreint sem glæpur.
Í maí á þessu ári tilkynnti Heiko Maas, þá-
verandi utanríkisráðherra Þýskalands, að tekist
hefði samkomulag þar sem Þýskaland gengist
við því að grimmdarverkin, sem framin voru í
upphafi 20. aldar, hefðu verið þjóðarmorð.
Skuldbundu stjórnvöld í Berlín sig jafnframt til
þess að borga 1,1 milljarð evra (161 milljarður
króna) á 30 árum til uppbyggingar innviða og
þróunarstarfs í Namibíu.
„Löðrungur í andlitið“
Samkomulagið féll í grýttan jarðveg og afkom-
endur fórnarlambanna í fjöldamorðunum voru
allt annað en sáttir. „Þetta er löðrungur í andlit-
ið,“ sagði namibíski sagnfræðingurinn Salomo
Hei, sem á ættir að rekja til fórnarlamba. Að
hans mati var klaufalega að sáttagjörðinni stað-
ið. „Það var ekkert tillit tekið til glataðra
mannslífa.“
Í samtali við AFP rakti Hei að enn væri við-
varandi tekjumunur milli fólks úr Nama- og
Herero-þjóðflokknum og annarra í Namibíu og
lýsti því að þegar hann æki til þorpsins, sem
hann væri frá, bæri fyrir augu hektara eftir
hektara af landbúnaðarjörðum sem forfeður
sínir hefðu verið reknir frá, en ættu með réttu
að vera í þeirra eigu.
Sima Goeieman, baráttukona úr röðum
Nama-manna, sagði að samkomulagið væri
„vanvirðing“ og ræki „hnífinn dýpra“ í sár sög-
unnar.
Fulltrúar Herero og Nama kvörtuðu undan
því að hafa ekki fengið að vera með við samn-
ingaborðið og gagnrýndu skortinn á gagnsæi í
viðræðunum. Um leið voru Þjóðverjar sakaðir
um að hafa snúið upp á handlegginn á fjárþurfi
stjórnvöldum í Namibíu og þvingað þau til að
þiggja lágar bætur. Þá hefur verið harðlega
gagnrýnt að í sáttmálanum sé hvergi talað um
bætur og Þjóðverjar komið sér undan skyldum,
sem því myndi fylgja, samkvæmt alþjóðlegri
mannréttindalöggjöf.
Þjóðverjar brugðust við þessari gagnrýni
með því að hafna kröfum um bætur og sagði
Maas utanríkisráðherra að fjárhagsaðstoðin
væri af fúsum og frjálsum vilja. Í fyrirspurna-
tíma á þýska þinginu viðurkenndi Maas að í
áranna rás hefðu komið kröfur um bætur frá
ýmsum löndum, þar á meðal Grikklandi og Pól-
landi, vegna glæpa nasista. „En það verður að
halda því til skila að það kemur málinu, sem hér
er til umfjöllunar, ekkert við. Ástæðan er sú að
þetta samkomulag er algerlega af fúsum og
frjálsum vilja, það eru engar lagalegar for-
sendur sem þessi greiðsla hvílir á,“ sagði Maas
og hafnaði því að tala ætti um samninginn við
Namibíu á sama tíma og bætur.
Mótmæli og þingfundi slitið
Til stóð að staðfesta samkomulagið á namibíska
þinginu í Windhoek. Þegar það var loks tekið
fyrir í lok september stóðu 400 manns fyrir utan
þingið með spjöld á lofti og mótmæltu harðlega.
Í þingsalnum las Frans Kapofi, varnarmála-
ráðherra Namibíu, upp yfirlýsingu um að hann
hygðist leggja samkomulagið fyrir löggjafar-
samkunduna og bætti við að það bæri því vitni
að tekist hefði upp að ákveðnu marki að fá
þýska sambandslýðveldið til að axla ábyrgð á
þjóðarmorðinu. Um leið sagði Kapofi að upp-
hæðin væri ríkisstjórninni áhyggjuefni.
Forseti þingsins gerði sig síðan líklegan til að
leggja samkomulagið fram, en sleit skyndilega
fundi áður en af því varð.
Þar standa málin enn rúmum tveimur mán-
uðum síðar og óvíst að samningurinn verði yfir-
leitt undirritaður. Samningamaður Þjóðverja
gaf til kynna í viðtali við Der Spiegel í sept-
ember að ekki stæði til að setjast niður og semja
að nýju. Nú hefur ný stjórn tekið við völdum í
Berlín. Eins og kom fram í upphafi er á stefnu-
skrá hennar að vinna að sáttum við Namibíu, en
þar kemur ekki fram hvort hún er tilbúin að
ganga lengra en fráfarandi stjórn í að gera upp
sakir frá nýlendutímanum fyrir rúmri öld.
Fyrsta þjóðarmorð 20. aldarinnar
Þýskur hermaður gætir stríðsfanga í Namibíu. Myndin er tekin á milli 1904 og 1908 þegar þjóðarmorðið á Herero- og Nama-þjóðflokkunum fór fram.
AFP
Þýskaland og Namibía gerðu í
sumar samkomulag um sættir
vegna fjöldamorða, sem sveit-
ir Þjóðverja frömdu á ný-
lendutímanum og kallað hef-
ur verið fyrsta þjóðarmorð 20.
aldarinnar. Samkomulagið olli
mikilli reiði í Namibíu og nú
er óvíst hvort það verði nokk-
urn tímann undirritað.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
’
Innan þýsku landamæranna
verður hver einasti Herero,
með eða án skotvopna, með eða
án búfénaðar, skotinn.“