Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.12.2021, Blaðsíða 17
ættu þjóðir með erfiða fortíð seinast allra að leggja á það vað. Evran hefur verið vandræðafyrirbæri frá upphafi en hún er réttlætt með lokamarkmiðinu um að stofna til miðstýrðrar valdstjórnar á öllu evrusvæðinu. Svíar eru skyldugir til að taka upp evru en stjórn- málaforystan hefur ekki getað hrætt þjóðina nóg til að undirgangast slíkt. Og úr því sem komið er má fremur ætla að Svíar fari úr ESB en að ganga undir þetta ok. Aðvörunarorð Boris Johnson forsætisráðherra var lengi fréttaritari Daily Telegraph og síðar á meðal hæst launuðu greinarhöfunda blaðsins. Meðal annars þess vegna vekur þungbrýnn leiðari blaðsins nokkra athygli. Þar sagði m.a.: „Það var ekki hægt að fagna mynd- inni, sem birtist á laugardaginn var, af Boris Johnson með Chris Whitty og sir Patrick Vallance á hvora hlið, með hefðbundnar skýringarmyndir og gröf sín, sem einatt flytja ný dómsdagsskilaboð. Og nú var kallað á afturhvarf til daganna þegar kórónuveiran skar viðurstyggileg sár um landið allt. Óvænt koma Ómíkron-afbrigðisins var sögð leiða til nauðungar- brúkunar á grímum í verslunum og í almennings- farartækjum, í bland við ferðahömlur og sjálfskipaða einangrun einstaklinga, sem okkur er skylt að lúta á ný. En þó er það svo, að vafalaust er að nú munu ekki allir beygja sig undirokaðir rétt einu sinni í duftið, enda hafa þeir fullan rétt til að bregðast þannig við. Almenningur hlýtur að gera þá kröfu til ríkisstjórnar sinnar að hún réttlæti jafnan með sannfærandi hætti endurnýjaðar hömlur og gæti þess jafnframt að sér- hvert nýtt afbrigði réttlæti slíkt í raun.“ Síðar í leiðaranum segir: „Vel heppnuð bólusetn- ingaráætlun hafði ýtt undir þá vissu á meðal okkar að við værum langt komin í átt til þess að geta búið eðlilega með veirunni.“ Var síðan lýst vonbrigðum með þessi viðbrögð ráðamanna og að ríkja skuli eðli- legar áhyggjur um hugsanleg áhrif þessa afbrigðis, þótt ekkert handfast hafi þó enn komið fram, sem sérfræðingar geti hengt hatt sinn á! En svo segir: „En á hinn bóginn hefur komið fram óvenjulega hreinskilið mat frá suðurafríska lækn- inum sem fyrst allra hringdi bjöllum vegna nýja af- brigðisins. Þar sagði hún að einkenni þess væru „óvenjulega mild“. En þessi orð hennar stungu hressilega í stúf við óheppilegan kæk sumra ráðgjafa ríkisstjórnarinnar, sem virðast helteknir af að fyrsta viðbragð skuli jafnan vera það, að gefa sér hið versta og gefast fyrir fram upp fyrir því og heimta að gaml- ar eða nýjar hömlur verði teknar upp án tafar. Hin þunga andúð fólks yfir að þurfa sífellt að horfa upp á aukið harðræði gegn því frelsi manna, sem þurfti erfiðar fórnir og átök til að tryggja, er þáttur sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar ættu aldrei að van- meta.“ Ekki í þetta sinn Þetta gæti allt að breyttu breytanda átt við hér á landi. Rétt er þó að færa til bókar að þótt sóttvarna- yfirvöld hér virðist stundum óþægilega viljug til að hanga aftan í mislukkuðum aðgerðum evrópskra stjórnvalda, sem engin skylda stendur þó til, þá var það ekki gert af þeirra hálfu í þessu tilviki. Og Kári Stefánsson, sem þjóðin horfir mjög til, hvatti ítrekað til varfærni á meðan staðreyndir máls lægju lítt eða ekki fyrir. Morgunblaðið/Árni Sæberg 5.12. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.