Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1990, Blaðsíða 5
FERÐ TIL HOLLANDS SUMARIÐ 1991.
Næstkomandi sumar mun ferðaskrifstofan Ferðabær
efna til tveggja vikna sumarleyfisferðar til Hol-
lands i samvinnu við Sjálfsbjörg l.s.f. Ferðin
verður dagana 14.-28. júni.
Gist verður i orlofshúsum i Flevohof, en þangað er
um klukkustundar akstur frá Amsterdam. Flevohof
er stórt útivistarsvæði sem staðsett er á gömlum
hafsbotni. Þar er ýmislegt hægt að gera og skoða,
t.d. eru þar gróðurhús, fiðrildarækt, ostagerð,
hestaleiga, sveitabær, sundlaugar, góðir veitinga-
staðir og margt fleira. Þar eru einnig ýmsir
fallegir garðar, t.d. 1 kinverskum og svissneskum
stil. Hægt er að fara með lest i skoðunarferð um
svæðið sem opið er daglega frá kl. 10.00 - 18.00
á sumrin. Þeir sem dvelja i orlofshúsunum fá
ókeypis aðgang að öllu á svæðinu.
Sigriður Kristinsdóttir, starfsmaður Sjúkraþjálf-
unar Sjálfsbjargar fór i haust á vegum Ferðabæjar
til þess að athuga aðstæður i Flevohof. Sigriður
hefur verið hjálparmaður i mörgum ferðum, einkum
á vegum fþróttafélags fatlaðra, bæði utan lands og
innan. Áhugavert er að heyra skoðun hennar á mál-
inu og tókum við hana því tali.
-Siqríður. hverniq list bér á svæðið?
"Mér list mjög vel á svæðið. Þetta er fallegur
staður og ólíkur því sem ég hef séð áður. Hann er
f jölbreyttur, margt að sjá og skoða. Þar er mikið
af fallegum trjám og blómum. Þetta er stórt svæði
og ef maður ætlar að skoða það virkilega vel tekur
það marga daga."
-Hverniq er svæðið með tilliti til aðqenqis?
"Það er viðast hvar mjög gott. Á flestum stöðum
eru skábrautir og breiðar dyr. Góð salernisað-
staða er á svæðinu. Til dæmis er ein innisundlaug
með skábraut og hægt er að komast i skoðunarferð
um svæðið með lest á auðveldan hátt. Gróðurhús og
fjós eru vel aðgengileg, svo og veitingastaðirn-
ir. "
-Hverniq eru orlofshúsin?
"Þaða er gert ráð fyrir 6-7 manns i hverju húsi,
fjórum á efri hæðinni og þremur á neðri. Á bað-
herberginu eru breiðar dyr og við salernið eru
stoðir og handfang og þar inni er sturta. Það er
slétt út á verönd. Eldunaraðstaðan er litil en
góð. "
Stefnt er að þvi að hafa tvær skoðunarferðir á
þessum tveimur vikum. Til dæmis eina til Amster-
dam þar sem siglt yrði um síkin. Fararstjóri á
vegum Ferðabæjar verður með allan tímann.
KLIFUR
5
FLEVOHOF