Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.12.1990, Qupperneq 10
tryggingar til samræmis við tillögur Sjálfsbjargar
og leggja það siðan fram á Alþingi nú þegar.
Sjálfsbjörg væntir þess að ný almannatrygginga-
löggjöf liti dagsins ljós á yfirstandandi þingi og
skorar á alþingismenn að tryggja að svo verði.
Bensínstyrkur.
Scimeiginlegur fundur milliþinganefnda og fram-
kvæmdastjórnar Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra, haldinn i Sjálfsbjargarhúsinu, daganan 23.
og 24. nóvember 1990, mótmælir harðlega niðurfell-
ingu á bensínstyrk til þeirra hreyfihamlaðra sem
dvelja á stofnunum og hafa einungis vasapeninga,
þar sem þeir þurfa ekki siður en aðrir að nota
bifreiðar vegna fötlunar sinnar.
Ferlimál
Sameiginlegur fundur milliþinganefnda og fram-
kvæmdastjórnar Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra, haldinn i Sjálfsbjargarhúsinu dagana 23. og
24. nóvember 1990, krefst þess að lög og reglu-
gerðir er varða aðgengi hreyf ihcimlaðra verði virt.
Einnig krefst fundurinn þess að ferlinefndir verði
virkari i þeim sveitarfélögum sem þær starfa og
jafnframt að þeim verði komið á fót i öllum sveit-
arfélögum á landinu.
Fundurinn skorar á félagsmálaráðherra að endur-
skipa Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra á vegum
félagsmálaráðuneytisins, m.a. með þátttöku full-
trúa Sjálfsbjargar, Arkitektafélags íslands og
samtaka byggingafulltrúa og byggingamanna.
Jafnframt telur Sjálfsbjörg að það sé skilyrði
fyrir þróttmiklu starfi nefndarinnar að ráðinnn
verði viðbótarstarfsmaður í fullt starf.
Hreyfihamlaðir______-
Svæðisstjórnir.
Sameiginlegur fundur
milliþinganefnda og
framkvæmdastjórn
Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra,
haldinn 1 Sjálfsbjarg-
arhúsinu dagana 23. og
24. nóvember 1990,
beinir því til svæðis-
stjórna um málefni
fatlaðra að þær ræki
lagaskyldur sinar
þannig að þörfum
hreyf iheunlaðra verði
sinnt betur og mark-
vissar.
Framh. af bls. 4
vörur, hulstur fyrir
spítala, borðdagatöl,
myndaalbúm, lausblaða-
möppur. 10: Verndaður
vinnustaður, Dalbraut
10, Akranesi. útiljósa-
seriur, lyf jaskápar,
plastboxum pakkað,
hnýtt ábót o. f 1. 11:
Iðjulundur, Hrísalundi
1, Akureyri. Vinnu-
vettlingar, prjóna-
vettlingar, heimilis-
klútar, mjólkursiur,
kerti, rúmfatnaður
o.fl. 12: Heimaey,
Faxastig 46, Vestmanna-
eyjum. Kerti af ýmsum
gerðum. 13: Reykja-
lundur, Mosfellsbæ.
Umbúðafötur fyrir efna-
og matvælaiðnað, raf-
tengi, sauðfjármerki og
búsáhöld. 14: Plastiðj-
an Bjarg, Bugðusiðu 1,
Akureyri. Raflagnaefni
úr plasti.
KLIFUR
10
Styðjum verndaðan,
innlendan iðnað!