Víkurfréttir - 14.07.2021, Blaðsíða 7
Ertu með
bíladellu?
Leitum að krafmiklum og áreiðanlegum starfsmanni
í hjólbarðaþjónustu á þjónustuverkstæði okkar í Reykjanesbæ.
Helstu verkefni:
• Almenn hjólbarðaþjónusta
• Bílaviðgerðir
ALLA LEIÐ
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga
auðvelt með að vinna í hóp.
Nánari upplýsingar veitir Pétur A. Pétursson í síma 440 1372
eða peturp@n1.is.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is – merkt Reykjanesbær.
440 1000 n1.is
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sambærilegu starfi
• Þjónustulipurð og samskiptahæfni
• Góð íslenskukunnátta skilyrði
Hvað gera útgerðarmenn þá?
Um þetta leyti fyrir nokkrum
árum var makríllinn byrjaður
að veiðast í ansi miklu mæli á
handfæri. Höfnin í Keflavík fékk
ansi stóran skerf af því enda
var óhemju magn af makríl sem
veiddist í henni sjálfri.
Árið 2020 var svo til engum
makríl landað sem veiddur var
á færi, þrátt fyrir að nokkrir út-
gerðarmenn lögðu í kostnað við
að útbúa bátanna sína til þannig
veiða. Núna árið 2021 er enginn
bátur útbúinn til makrílveiða enda
ólíklegt að makríllinn komi hérna
við landið eins og hann gerði.
Stóru uppsjávarskipin eru byrjuð
að veiða makrílinn en hann er
ennþá mjög langt úti í hafi og fjarri
íslenskri fiskveiðilögsögu, skipin
hafa verið að fara alla leið norður
í síldarsmuguna í Barentshafi til
þess að veiða hann – og það segir
sig þá sjálft að ef makrílinn er svona
rosalega langt í burtu þá er hann
ekkert á leið til Keflavíkur.
Hvað gera útgerðarmenn þá? Jú,
eins og staðan er núna þá eru þeir
bátar sem voru útbúnir á veiðar á
makríl á handfæraveiðum, þá annað
hvort á strandveiðunum eða að
eltast við ufsann.
Í veiðum á ufsanum þá er það
kóngurinn Robbi á Ragnari Alfreðs
GK sem ræður þar ríkjum og hefur
hann landað í sumar um 32 tonnum
í fimmtán róðrum og mest 7,7
tonnum í einni löndun. Fyrirtækið
sem á Ragnar Alfreðs GK heitir
Háeyri og á það líka annan bát sem
hefur einnig verið notaður til veiða
á ufsanum, það er Margrét SU sem
er einn af örfáum eikarbátum sem
eru gerðir út hérna við Ísland.
Margrét SU er búinn að landa
21 tonni í sjö róðrum og mest 4,6
tonnum í einni löndun – en hvaða
bátur er þetta? Jú, Margrét SU var
smíðaður á Seyðisfirði árið 1971,
hann hét fyrst Sæþór SU 175 og var
gerður út frá Eskifirði. Reyndar var
báturinn gerður út frá Eskifirði í 23
ár, eða til ársins 1994 þegar að hann
var seldur til Hornafjarðar. Hann
hélt sama nafni en varð Sæþór SF
244.
Árið 2000 var báturinn seldur
til Dalvíkur og fékk þá nafnið Búi
EA 100, var með því nafni til ársins
2007 þegar báturinn var seldur til
Húsavíkur og fékk þá nafnið Gói ÞH
25. Hann kom aftur til Dalvíkur árið
2009 og hét þá Viktor EA 71, árið
2011 þá fékk báturinn nafnið Mar-
grét en hefur verið skráður GK, KÓ
og SU.
Ekki er hægt að segja að báturinn
hafi verið mikið til veiða á þessari
öld því það hafa komið ár þar sem
að báturinn hefur engum afla
landað, t.d. réri báturinn ekkert allt
árið 2004 fyrr enn í nóvember.
Það er nokkuð merkilegt að
skoða báða bátana sem Háeyri á því
báðir eru frekar gamlir. Margrét SU
er 50 ára gamall bátur og Ragnar
Alfreðs GK er 43 ára, smíðaður á
Skagaströnd árið 1978. Tveir gamlir
en góðir bátar sem hafa samanlagt
borið ansi mikinn afla í land og
meira segja Ragnar Alfreðs GK hét
á sínum tíma Sandvík SK og var þá
meðal annars líka á rækjuveiðum í
Skagafirðinum.
aFlaFrÉttir á SuðurNESjuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Samfélagsverkefnið Hughrif í bæ,
sem starfar á vegum menningar-
sviðs Reykjanesbæjar, stóð fyrir
götumarkaði í liðinni viku við Skrúð-
garðinn þar sem bæjarbúar seldu og
keyptu hannyrðir, listaverk, föt, notuð
leikföng og ýmislegt fleira. Viðtök-
urnar voru mjög góðar að sögn Hildar
Hlífar Hilmarsdóttur, verkefnastjóra,
en markmið Hughrifs í bæ er standa
að skapandi starfsemi og viðburðum
sem gæða bæinn lífi í gegnum menn-
ingu og listir. Þátttakan í götumark-
aðnum var bæjarbúum að kostnaðar-
lausu en hópurinn stóð einnig fyrir
söfnun til styrktar Stígamóta þar sem
ágóði af kaffi- og armbandasölu rann
til þeirra. Hughrif í bæ samanstendur
af tveimur verkefnastjórum og sextán
meðlimum, sextán ára og eldri.
VF-myndir: Sólborg Guðbrandsdóttir.
Stóðu fyrir götumarkaði við Skrúðgarðinn
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 7