Víkurfréttir - 14.07.2021, Side 15
Mikill vöxtur
í íþróttastarfi
Reykjanesbæjar
Guðbergur Reynisson var endur-
kjörinn formaður Íþróttabandalags
Reykjanesbæjar (ÍRB) á ársþingi þess
þegar það var haldið í byrjun þessa
mánaðar. ÍRB var stofnað árið 1996
og er því 25 ára um þessar mundir.
Guðbergur hefur nú sitt annað tíma-
bil sem formaður en hið fyrra varð
tvöfalt lengra en til stóð þar sem
Covid kom í veg fyrir að hægt yrði
að halda ársþing á síðasta ári.
Fjölmargt hefur afrekast á þeim
stutta tíma sem Guðbergur hefur
leitt stjórn ÍRB þrátt fyrir það ástand
sem hefur gengið yfir samfélagið.
Á þessu þingi voru t.a.m. fjögur ný
íþróttafélög samþykkt inn í ÍRB; RB
United, sem er knattspyrnufélag
í 4. deild karla, Júdófélag Reykja-
nesbæjar, Borðtennisfélag Reykja-
nesbæjar og Frisbígolffélag Reykja-
nesbæjar sem nú samanstendur af
fimmtán aðildarfélögum, að sundráði
ÍRB meðtöldu, sem iðka 23 íþrótta-
greinar.
„Þetta var skemmtilegt þing af
mörgum ástæðum,“ segir Guðbergur.
„Við náðum ekki að halda þing í fyrra
út af Covid, gaman að geta loksins
haldið þingið. Íþróttabandalagið
varð 25 ára þann 29. maí, stofna
1996. Svo við héldum upp á það
með köku.“
Hann segir búið að vera rosalega
gott starf í mörgum félögum þrátt
fyrir þá erfiðleika sem Covid hefur
skapað en ýmislegt hafi þó komið
upp á. „Það á meðal þurftum við að
fella niður val á íþróttamanni ársins,
sem var skelfileg ákvörðun en eitt-
hvað urðum við að gera. Það voru
137 Íslandsmeistarar hjá Reykja-
nesbæ 2019. Árið 2020 voru þeir 47
ef það segir eitthvað um það.
Við erum að huga að stórsókn
núna. Það er t.d. verið að vinna að
stofnun frjálsíþróttafélags, það eru
komnir aðilar sem eru að vinna í því
og svo er Frjálsíþróttasambandið
tilbúið að aðstoða. Það er eiginlega
stórfurðulegt að í tuttugu þúsund
manna samfélagi skuli ekki vera
svona félag og ég held að það sé
grundvöllur fyrir því.
Það er þannig að í Reykjanesbæ
eiga krakkar að geta farið í allar
tegundir íþrótta, þetta er forvörn
og ef einhver íþrótt gengur ekki þá
verðum við alla vega að láta reyna
á það.
Þá stendur til að endurvekja sigl-
ingafélagið sem hefur verið hálfgert
olnbogabarn því bátarnir hafa verið
á hrakhólum og það hefur vantað að-
stöðu fyrir þá. Við erum að reyna að
sannfæra bæinn um aðstöðu sem við
höfum í huga við smábátahöfnina,
það er rosalega spennandi.“
Bærinn þarf að leggja
meira í íþróttastarfið
Guðbergur bendir á að það þurfi
oftar en ekki að horfa á aðstöðumál
íþróttafélaga sem tímabundnar
lausnir. Þróunin á samfélaginu tekur
svo örum breytingum og hann tekur
sem dæmi að félög sem fá aðstöðu
í útjaðri bæjarfélaga eru áður en
maður veit af komin inn í miðjan
kjarna þess. „Ef við byggjum frjáls-
íþróttavöll einhvers staðar út í móa
þá er hann kominn inn í byggð áður
en við vitum af. Það getur ekki verið
flókið að byggja frjálsíþróttavöll og
ég held að við ættum að kýla á það.
Við erum með fullt af fólki hér í
bænum sem finnur sig ekki í þeim
íþróttum sem eru í boði – en gætu
verið fínn spjótkastari eða lang-
hlaupari, við vitum bara ekkert um
það.“
Guðbergur segir að sér finnist það
klárt mál að Reykjanesbær þurfi að
leggja meiri fjármuni í að byggja upp
íþróttaaðstöðu í bænum.
„Tökum sem dæmi að við stofn-
uðum nýtt fótboltafélag sem er
að standa sig frábærlega í fjórðu
deildinni. Ég var að fylgjast með leik
hjá þeim um daginn og það voru
átta varamenn á bekknum, það er
vandamál hjá þjálfaranum að velja
í liðið því svo margir vilja vera með.
Sýnir þetta okkur ekki að það er þörf
á þessu?“
Fjölgun í íþrótta-
hreyfingunni
– Hvernig hefur íþróttafélögunum
gengið að halda í sína iðkendur í
gegnum þennan veirufaraldur?
„Samkvæmt skýrslum frá 2019 og
svo 2021 sem við tökum úr Felix
[skráningarkerfi íþróttafélaganna]
þá hefur fjölgað um 3.000 í íþrótta-
hreyfingunni frá 2019 – bara hérna
í Reykjanesbæ. Þannig að ég myndi
segja að það sé heldur betur fjölgun.
Kannski er það af því að fólk er
meira heima, vonandi helst þetta
bara og það verður jafnvel frekari
fjölgun. Vonandi verður það lúxus-
vandamál komið upp á gamlársdag,
þegar kemur að því að velja íþrótta-
fólk Reykjanesbæjar, að alltof margir
skari fram úr.
Ég vil samt taka skýrt fram að
þetta snýst ekki um að skara fram úr,
þetta snýst um að taka þátt í íþrótta-
starfinu og forvörnin er númer eitt,
tvö og þrjú. Það er ennþá stór hluti
hér í bænum sem er ekki að taka þátt
í þessu starfi. Það eru t.d. innflytj-
endurnir sem eru ekki að falla inn
í þá hópa sem eru fyrir. Ég held að
leiðin fyrir þá sé að byrja í einstakl-
ingsíþróttum, þá eru þeir komnir
inn í þetta umhverfi, og þaðan liggur
leiðin í hópaíþróttirnar. Ég held að
það muni hjálpa að fjölga valkost-
unum.
Fólk hefur sagt að það sé búið að
reyna hitt og þetta en það hafi ekki
gengið. Á maður þá bara að hætta að
reyna? Ég held ekki.“
johann@vf.is
FRÍSTUNDIR.IS
Nýr upplýsingavefur um
frístundastarf á öllum Suðurnesjum
Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum
STYRKT AF
vinalegur bær
Pepsi Max-deild karla:
Keflvíkingar eru um miðja deild
KR - Keflavík 1:0
Keflvíkingar töpuði naumlega þegar þeir léku gegn KR í elleftu umferð
Pepsi Max-deildar karla.
KR-ingar skoruðu eina mark leiksins á 7. mínútu og það var ekki af
ódýrari gerðinni, hörkuskot utan teigs í slánna og inn – óverjandi fyrir
Sindra Kristinn í markinu.
Keflavík er í sjöunda sæti með þrettán stig eins og Stjarnan sem hefur
leikið einum leik fleiri. Leiknir er í sjötta sæti með fjórtán stig og hefur
einnig leikið einum leik fleiri en Keflavík.
Lengjudeild karla:
Víkingur Ó. -
Grindavík 2:2
Grindavík komst yfir með marki
úr vítaspyrnu (33’) og Aron Dagur
Birnuson, markvörður Grindvík-
inga, og varði víti sem þeir fengu á
sig snemma í seinni hálfleik.
Á síðustu tíu mínútum leiksins
skoruðu Víkingar tvívegis en fyrir-
liði Grindvíkinga tryggði þeim eitt
stig með mark í uppbótartíma.
Mörk Grindavíkur: Sigurður Bjartur
Hallsson (33’ víti) og Sigurjón
Rúnarsson (90’+3).
2. deild karla:
Þróttur - KV 1:0
Það var hörkuleikur í Vogum í
toppslag Þróttar og KV.
Eina mark leiksins skoraði
Unnar Ari Hansson þegar fyrri
hálfleikur var við það að renna út
(45’+1) og Þróttur er efst í 2. deild.
Mark Þróttar: Unnar Ari Hansson
(45’+1).
2. deild karla:
Reynir - ÍR 1:1
Gestirnir komust yfir á 85. mínútu
en Ivan Prskalo jafnaði fyrir Reyni
þremur mínútum síðar.
Mark Reynis: Ivan Prskalo (88’).
2. deild karla:
Völsungur - Njarðvík 1:0
Húsvíkingar skoruðu úr víta-
spyrnu sem þeir fengu á silfur-
fati eftir óheppileg mistök í vörn
Njarðvíkinga.
3. deild karla:
Víðir - Einherji 3:0
Langri eyðimerkurgöngu Víðis-
manna lauk þegar Víðir lagði
botnlið Einherja 3:0 á heimavelli.
Þetta var fyrsti sigur Víðis síðan í
fjórðu umferð, í lok maí.
Mörk Víðis: Atla Frey Ottesen
Pálsson (8’) og Jóhann Þór Arn-
arson (22’ og 56’ víti).
kNattSPYrNuSaMaNtEkt
25 ára
Fjóla Margrét og Logi
eru klúbbmeistarar GS 2021
Logi Sigurðsson og Fjóla Margrét Viðarsdóttir sigruðu á meistaramóti
Golfklúbbs Suðurnesja sem lauk um helgina.
Bæði hampa þau meistaratitlinum í fyrsta sinn en þau hafa verið á
mikilli uppleið í golfinu síðustu árin.
Birta Dís og
Óskar Marínó
klúbbmeistarar
GSG 2021
Óskar Marínó Jónsson og Birta
Dís Jónsdóttir urðu sigurvegarar
meistaramóts Golfklúbbs Sand-
gerðis sem lauk um síðustu helgi.
Óskar sigraði karlaflokkin með
fjórum höggum en Birta hafði
mikla yfirburði í kvennaflokki.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 15