Víkurfréttir - 14.07.2021, Blaðsíða 4
FERÐAÞJÓNUSTAN Á FLEYGIFERÐ Á NÝ
Hröð aukning í ferðaþjónustunni
hefur haft áhrif á samfélagið og at-
vinnulífið á Suðurnesjum í sumar.
Um tuttugu brottfarir og komur,
alls um 40 flug, hafa verið á Kefla-
víkurflugvelli síðustu daga en það er
svipuð traffík og var yfir rólegustu
vetrarmánuðina árið 2017.
Bandaríkjamenn hafa flykkst til
Íslands enda mikið framboð af flugi
daglega. Þetta hefur haft mikil áhrif
á atvinnulífið, bílaleigubílar renna
út, fjöldi fólks hefur aftur fengið
störf á Keflavíkurflugvelli, hjá ferða-
þjónustufyrirtækjum og fleirum.
Útlendingar sjást víða á ferli og þeir
sækja veitingastaði og aðra þjónustu,
ekki síst Bandaríkjamenn sem eyða
mestu. Þeir hafa t.d. verið duglegir
við að sækja bakaríin heim í Reykja-
nesbæ skömmu eftir að hafa lent á
Keflavíkurflugvelli. Starfsfólk í Sigur-
jónsbakaríi og Kökulist hafa bæði
þurft að bregðast við því.
Von er á meiri aukningu á næst-
unni en þegar tíðindamaður Víkurf-
rétta var í flugstöðinni um miðjan
dag síðasta mánudag var fjölmennt
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar
margar flugvélar voru að lenda.
Umferðin gekk þó ágætlega og fjöldi
starfsmanna í stöðinni til staðar til
að láta hlutina ganga hratt og vel.
Skúli Mogensen, stofnandi flugfélags-
ins WOW, er bjartsýnn á komandi
tíma fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi og
Suðurnesjum. Hann er að opna nýtt 67
herbergja hótel á Ásbrú á næstunni sem
verður alfarið sjálfstýrt. Honum líst
vel á Play flugfélagið en hefði viljað sjá
það fara lægra í farmiðaverðum.
Nýja hótelið heitir ABC Hotel og er við Keilis-
braut 747 á Ásbrú. „Þetta er bygging sem ég
gerði alfarið upp á sínum tíma og var notuð
fyrir erlendu flugmenn WOW air en hefur
núna verið í skammtímaleigu. Þetta verður 67
herbergja hótel sem verður alfarið sjálfstýrt
þar sem gestir innrita sig sjálfir og fá aðgang
að herbergi sínu með lásakóða. Herbergin eru
flest öll rúmgóð, nýuppgerð og á hagstæðu
verði hverju sinni. Stefnt er að því að opna
núna í ágúst,“ segir Skúli sem er með taugar
til Suðurnesja enda með sterka Keflavíkur-
tengingu en móðir hans, Anna Skúladóttir, er
fædd og uppalin í Keflavík.
Suðurnesin rísa hratt
„Það er alveg ljóst að núna þegar landið opnast
á ný og flugið kemst í samt horf þá munu Suð-
urnesin rísa hratt á ný. Það er líka ánægjulegt
að sjá nýsköpunina sem er að eiga sér stað og
ég hef alltaf verið sannfærður um skilin á milli
Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins muni
halda áfram að minnka á komandi árum enda
stutt á milli,“ segir Skúli en hann breytti Base
hotel, sem hann rak á sínum tíma, í litlar íbúðir
sem hafa verið seldar á undanförnum mán-
uðum og ári. Alls um 80 íbúðir en stefnt er að
því að setja síðustu 40 íbúðirnar í sölu í haust.
Gaman að fylgjast með Play
Aðspurður um nýstofnað flugfélag, Play, segir
hann að stofnendur þess hafi staðið sig frá-
bærlega og þar sé margt gott fólk. Hann setur
þó spurningamerki við farmiðaverð félagsins.
„Ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd Íslands
og ferðaþjónustunnar í heild sinni þar sem
það er nokkuð ljóst að mörg af þeim erlendu
flugfélögum sem hafa „uppgötvað“ Ísland á
undanförnum árum munu snúa aftur og ef
eitthvað er býst ég við því að framboðið til
og frá Íslandi muni ná nýjum hæðum strax
næsta sumar með tilheyrandi samkeppni og
mjög hagstæðum verðum fyrir neytendur.
Það hefur verið gaman að fylgjast með Play
fara á flug og það að koma af stað nýju flug-
félagi er gríðarlegt afrek svo ekki sé talað um
að sækja átta milljarða í fjármögnun áður en
fyrsta flug er farið. Þarna er margt gott fólk
sem á heiður skilið fyrir að koma félaginu á
þennan stað eftir langa og stranga fæðingu.
Byggt á fyrri reynslu hefði ég reyndar viljað sjá
þau fara mun grimmar í lággjaldastefnuna til að
standast aukna samkeppni úr öllum áttum en
ég óska þeim alls hins besta og bíð spenntur
eftir að sjá framhaldið,“ segir Skúli Mogensen.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Skúli Mogensen opnar nýtt hótel á Ásbrú:
ánægður með Play
en hefði viljað
sjá lægri verð
Það mun ekki fara illa um gesti ABC Hotel á Ásbrú. VF-myndir: pket
ABC Hotel á Ásbrú. VF-mynd: HBB
Lífið er að færast í eðlilegt horf í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og eru
ferðalangar nú teknir að streyma til landsins á ný.
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár