Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 13
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
6. TBL. 8. FEBRÚAR 2022
Íbúðin sem er til sölu á Sogavegi 101 er á jarðhæð hússins. Garðurinn er stór og sameiginlegur. MYND/AÐSEND
Fold fasteignasala kynnir til
sölu tveggja herbergja íbúð á
Sogavegi 101 í Reykjavík.
Íbúðin er með sérinngangi á jarð-
hæð í steinsteyptu þriggja hæða
fjórbýli. Húsið er að stórum hluta
klætt með álklæðningu.
Eignin er samtals 60,5 fermetrar.
Þar af er íbúðin 57,8 fermetrar og
geymslan 2,7 fermetrar. Íbúðin
skiptist í forstofu, eldhús, svefn-
herbergi, baðherbergi og gang inn
í sameign.
Í eldhúsi er ágæt eldhúsinnrétt-
ing með flísum á milli efri og neðri
skápa. Stofan er lítil en svefnher-
bergið rúmgott með góðu skápa-
plássi. Í baðherbergi er gluggi og
sturtuklefi. Parket, f lísar og dúkur
á gólfum.
Nýlega voru heitavatnslagnir
endurnýjaðar í íbúðinni. Í geymslu
á sömu hæð er tengi fyrir þvottavél
og þurrkara. Hiti og rafmagn eru á
sér mæli.
Lóðin er sameiginleg. Góð
aðkoma er að húsinu og stutt í
margvíslega þjónustu.
Íbúðin er laus við kaupsamning.
Opið hús verður í dag, þriðju-
daginn 8. febrúar, frá klukkan 16
til 17. Íbúðin verður ekki sýnd fyrr
en þá. n
Nánari upplýsingar gefur Gústaf
Adolf, löggiltur fasteignasali á
Fold, í síma 895 7205 og á netfang-
inu gustaf@fold.is.
Tveggja herbergja íbúð á
jarðhæð við Sogaveg
Séð inn í gang íbúðarinnar sem er með parket, flísar og dúk á gólfum.
Hægt verður að
skoða íbúðina á
Sogavegi 101 á opnu húsi
í dag, þriðjudaginn
8. febrúar, frá klukkan
16 til 17.
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Við ráðum
Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar
sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar
án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu.
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið.
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Sérhæfð lögfræðiþjónusta
með áherslu á 60+