Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 2
Mikil barátta er um
þriðja til fimmta sæti á
lista flokksins.
Hiti mældist 17,6
gráður í Bakkagerði
á Borgarfirði eystri
21. janúar.
Mesti óvissuþátturinn
var með úrkomuna og
ef veðrið hefði haldist í
snjókomu hefðu
afleiðingarnar verið
verri. En það var mildi
að þetta fór út í rign-
ingu.
Birta Líf
Kristinsdóttir,
veðurfræðingur
Gengið eftir Ægisíðunni
Þessi maður nýtti tækifærið og viðraði hundinn sinn á Ægisíðunni þegar veðrinu slotaði á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir stormasama nótt og morgun í
rauðri viðvörun. Hundurinn virtist, ekki síður en eigandi hans, ánægður með útiveruna og ferska sjávarloftið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Handgerðir íslenskir sófar
• Margar útfærslur í boði
• Mikið úrval áklæða
• Engin stærðartakmörk
• Sérsmíði eftir þínum óskum
Hvernig er
draumasófinn þinn?
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Sjá nánar
á patti.is
Veðrið hefur boðið upp á
margar útgáfur að undan
förnu. Fyrir nokkrum dögum
var hátt í 20 stiga hiti á
Austfjörðum og lítill snjór á
Akureyri. Þar er nú allt á kafi
í snjó og vindurinn blæs sem
aldrei fyrr.
benediktboas@frettalbadid.is
VEÐUR „Það eru ákveðnar sveiflur
í gangi en við höfum séð þetta allt
áður,“ segir Birta Líf Kristinsdóttir,
veðurfræðingur hjá Veðurstofu
Íslands.
Veðuröfgarnar það sem af er ári
eru fjölmargar, sem eftir vill topp
aði sig á sunnudagsnóttina þegar
Suðvesturlandið var undir rauðri
viðvörun og landið allt á appels
ínugulri. Þjóðin beið því heima til
hádegis og flestir biðu af sér veðrið
við stofuborðið í faðmi fjölskyld
unnar.
Hvassviðri hafa verið tíð það sem
af er ári og töluvert um samgöngu
truf lanir og foktjón. Sjór hefur
gengið á land og valdið tjóni bæði
á Austur og Suðvesturlandi. Þó er
stutt síðan hiti mældist 17,6 stig, í
Bakkagerði á Austurlandi.
„Viðvaranir sem voru gefnar út í
janúar jafnast á við helminginn af
öllum viðvörunum sem gefnar voru
út í fyrra þannig að það má alveg
segja að janúar hafi verið hressi
legur,“ segir Birta. Hún bendir þó
á að síðasti vetur hafi verið frekar
rólegur.
Hún segir að það hafi verið mikil
mildi að hitastigið féll ekki síðustu
nótt og kófið hafi breyst í slyddu.
„Mesti óvissuþátturinn var með
úrkomuna og ef veðrið hefði hald
ist í snjókomu hefðu afleiðingarnar
verið verri. En það var mildi að þetta
fór út í rigningu.
Snjórinn hefði þannig hlaðist upp
og myndað skafla sem hefðu stíflað
allt. Það var mjög blint í þessu veðri
og á tímabili var skyggni í Reykjavík
rétt um 100 metrar.“
Samkvæmt Veðurstofunni mæld
ist mánaðarúrkoman 142 milli
metrar í Reykjavík í janúar sem er
63 prósentum yfir meðallagi tíma
bilsins 1991 til 2020. Þá var landið
snjólétt í janúar en borgin var alhvít
fimm daga en níu á Akureyri. Og þó
að stóri hvellurinn sé búinn er enn
vindasamt, með mikilli ölduhæð og
jafnvel eldingum. ■
Öfgarnar í veðrinu alls ekki
nýjar af nálinni hér á Fróni
Veðurviðvaranir í janúar jafnast á við helminginn af öllum viðvörunum sem
gefnar voru út í fyrra. Áfram er spáð vindasömum dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
birnadrofn@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Á síðustu fimm árum
hafa skrifstofu fjármálagreininga
lögreglu borist samtals 34 tilkynn
ingar þar sem grunur var um að
spilakassar væru notaðir við pen
ingaþvætti.
Þetta kemur fram í svari dóms
málaráðherra við fyrirspurn frá
Andrési Inga Jónssyni, þingmanni
Pírata, um peningaþvætti með
spilakössum.
Árið 2017 barst fjármálagreiningu
lögreglu engin tilkynning þar sem
grunur lék á að spilakassar hefðu
verið notaðir við peningaþvætti. Ári
síðar voru slíkar tilkynningar átta,
árið 2019 voru þær ellefu, árið 2020
14 og á síðasta ári þrjár. ■
Fjöldi tilkynninga
um peningaþvætti
í spilakössum
Sabine og Hjálmar vilja sitja áfram í
borgarstjórn en fleiri gefa kost á sér
í þeirra sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
mhj@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Yfir 1.500 manns höfðu
skráð sig ýmist í Samfylkinguna
eða sem stuðningsmenn flokksins
áður en kjörskrá var lokað vegna
prófkjörs Samfylkingarinnar fyrir
borgarstjórnarkosningar sem fer
fram um næstu helgi.
Áður en prófkjörsbaráttan fór af
stað voru rúmlega 4.500 á kjörskrá
en samkvæmt heimildum blaðsins
höfðu rétt innan við þrjú hundruð
nýir félagsmenn verið skráðir í
f lokkinn og yfir 1.200 skráð sig sem
stuðningsmenn þegar kjörskránni
var lokað á föstudag. Þetta þýðir að
fjórðungur þeirrar flokksskrár sem
miðað verður við er nýskráningar.
Enginn gefur kost á sér gegn þeim
Degi B. Eggertssyni og Heiðu Björgu
Hilmisdóttur í fyrsta og annað sæti
á lista flokksins en töluverð barátta
er um næstu sæti. Meðal þeirra sem
takast á um þriðja sætið eru borg
arfulltrúarnir Skúli Helgason og
Hjálmar Sveinsson og Guðmundur
Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.
Sabine Leskopf og Ellen Calmon
vilja einnig halda áfram og vera í
öruggum sætum og meðal þeirra
sem keppa við þær um örugg sæti
eru Ólöf Helga Jakobsdóttir, Sara
Björg Sigurðardóttir og Guðný Maja
Riba. ■
Mikil smölun í
Samfylkinguna
2 Fréttir 8. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ