Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 1
2 6 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 2 Ársæll steig yfir kvótalínuna Fimm gangráðar í sjö aðgerðum Lífið ➤ 16 Lífið ➤ 17 Mikið gekk á í veðurofsanum sem gekk yfir landið í gær líkt og sjá má á þessu strætóskýli í Hlíðunum í Reykjavík. Rauðar og appelsínugular viðvaranir voru í gildi um allt land og skólahald féll víða niður. Í dag er í gildi gul veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á Vestfjörðum. Á morgun má svo búast við blíðari veðurskilyrðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Rakning á síma Bandaríkja- mannsins Josh Neuman sýndi síðdegis daginn sem flugvélin TF-ABB hvarf nákvæmlega hvar hana var að finna í Þing- vallavatni. Leit var þó ekki beint þangað sérstaklega fyrr en morguninn eftir. gar@frettabladid.is jonthor@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Svo virðist sem mikilvæg grundvallargögn, vegna leitarinnar að f lugvélinni TF-ABB sem hvarf síðastliðinn fimmtudag, hafi ekki borist til stjórnenda leit- arinnar fyrr en löngu eftir að ein- hverjir björgunarsveitarmannanna voru komnir með þau í hendur. Tafði það leitina að vélinni fram á næsta dag. Um klukkan sjö á fimmtudags- kvöld fékk Fréttablaðið í hendur mynd úr leitarforritinu Find My iPhone. Sýndi hún rakningu á far- síma Bandaríkjamannsins Josh Neuman, eins þeirra sem voru um borð í f lugvélinni. Fylgdi sögunni að þessi gögn væru komin í gagna- grunn björgunarsveita. Munu þau einnig hafa gengið milli manna í f lugheiminum hér heima. Taldi Fréttablaðið víst að stuðst væri við fyrrnefnd símagögn við leitina. Það var þó ekki fyrr en morgun- inn eftir, á föstudag, sem stjórnend- ur leitarinnar kváðust hafa fengið ný gögn frá erlendu símafyrirtæki og upphófst þá sú mikla leit í Ölfus- vatnsvík sem leiddi til þess að TF- ABB fannst á 48 metra dýpi á botni víkurinnar um miðnæturbil sama dag. Oddur Árnason, yfirlögreglu- þjónn á Suðurlandi, segir að lög- reglan hafi fengið upplýsingar um umrædd merki frá símanum nótt- ina eftir að leit að vélinni hófst, það er að segja aðfaranótt föstudags. Leit í Þingvallavatni hafi verið hafin en upplýsingarnar úr símanum hafi gefið betri mynd af staðsetningu vélarinnar. Greint var frá símagögn- unum á vef blaðsins á föstudag. Aðspurður kveðst yfirlögreglu- þjónninn ekki vilja gefa upp nákvæmlega klukkan hvað lög- reglu bárust gögnin úr símanum, að öðru leyti en því að þau hafi komið nóttina eftir að leit hófst. Á föstudag greindi Fréttablaðið frá því að þessi gögn hefðu legið fyrir á fimmtudag. Oddur segist ekki vita hvers vegna þau hafi borist lögreglu svo miklu síðar. „Ég bara veit það ekki,“ svarar Oddur Árnason. n Lykilgögn seint í hendur leitarstjóra Leitarforrit staðsetti farsíma far- þega í TF-ABB þar sem vélin fannst. Fjórhjóladrifinn Alrafmagnaður Audi e-tron 55 Quattro Advanced Verð 10.990.000 kr. HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/audisalur STJÓRNSÝSLA Mannréttinda- og lýð- ræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar gagnrýnir nýja framkvæmdaáætlun Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra í málefnum hinsegin fólks. Telur borgin ekki nóg um fram- kvæmdir í áætluninni og að ekki fylgi henni nægt fjármagn. Drög að áætluninni voru lögð fram í lok janúar og er hún í 17 liðum. Aðeins er gert ráð fyrir aukafjár- magni í tveimur liðunum, fjörutíu milljóna króna framkvæmdasjóði sem nýttur verður á fjögurra ára tímabili og fimm milljónum króna í kortlagningu á bæði stöðu og rétt- indum hinsegin fólks á Íslandi. SJÁ SÍÐU 6 Borgin gagnrýnir áætlun Katrínar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.