Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hættu­ merkin eru alls staðar en samt þokast óhugnan­ lega hægt að draga úr losun. Skuldir Reykjavík­ urborgar voru í upp­ hafi kjör­ tímabilsins 299 millj­ arðar en nema núna 400 mill­ jörðum. Hver hefur ekki staðið sig að því að blóta ríkinu þegar rúllað er yfir launaseðilinn og maður sér hversu hátt hlutfall heildarlauna fer í skatta? Við erum öll meðvituð um að reka þarf gott heil­ brigðiskerfi, menntakerfi, löggæslu ásamt öðru. En er það svo að allir þessir peningar renni beint í ríkissjóð? Nei, er svarið. Hvað verður þá um peningana ef ríkið er ekki að soga þá alla til sín, jú, þeir renna til þess sveitarfélags sem þú býrð í. Á höfuðborgarsvæðinu er Reykjavík eina sveitar­ félagið sem innheimtir hámarksútsvar eða 14,52%. Það þýðir að einstaklingur sem er með 650 þúsund í laun á mánuði og á lögheimili í Reykjavík greiðir 90.605 kr. til Reykjavíkurborgar og 68.643 kr. til ríkisins. Einstaklingur með 450 þúsund á mánuði greiðir 62.726 kr til Reykjavíkurborgar og 23.523 til ríkisins. Það er staðreynd að sveitarfélög eru að taka háar upphæðir af launafólki og í mörgum tilfellum meira en ríkið. Eigum við ekki að vera meðvitaðri um fjármál sveitarfélaganna? Skuldir Reykja­ víkurborgar voru í upphafi kjörtímabilsins 299 milljarðar en nema núna 400 milljörðum. Skuld­ irnar hafa vaxið hratt á kjörtímabilinu, samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að þær verði 453 milljarðar árið 2025. Þessar staðreyndir eiga að gera það að verkum að við gerum meiri kröfur til Reykjavíkur­ borgar og förum fram á að skattpeningum okkar sé betur varið í þá grunnþjónustu sem sveitar­ félaginu ber skylda til þess að reka. Fréttir um lélegt viðhald skólabygginga þar sem fjármagnið sem átti að fara í viðhaldið var sett í önnur verkefni sem þóttu meira „spennandi“ eiga að vekja okkur til umhugsunar og krefjast þess að hér sé vel farið með okkar sameiginlegu eigur og þá fjármuni sem stjórnmálamenn úthluta í hin og þessi verkefni. Fjármunir sem við sjáum á launaseðlinum að eru teknir af okkur. n Fjármál borgarinnar koma okkur við Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðis­ flokksins Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is  toti@frettabladid.is Tveggja Smára Verbúð „Mér skilst að í Verbúð kvöldsins hafi verið tveir blaðamenn, Gunnar Smári og Smári,“ skrifaði Karl Th. Birgisson á Facebook að loknum síðasta þætti Verbúðar þar sem þeir tókust á blaðamenn­ irnir Smári, sem Hilmir Snær leikur, og ný persóna, Pressurit­ stjórinn Gunnar Smári. Karl rakti Smárana tvo síðan til handrits­ höfundarins Mikaels Torfasonar, sem hóf blaðamannsferil sinn sem skutilsveinn hins eina sanna Smára. „Mikki Torfa verður vita­ skuld að hafa sín blæti óáreitt, en hefði verið ofílagt að láta annan þeirra heita Jónas? Styrmi? Eða bara Jakob til þrautaþrautavara?“ Tvöföld pressa Þessar pælingar Karls springa síðan út í aðra vídd þegar horft er til þess að leikarinn Hákon Jóhannesson túlkaði Gunnar Smára með tilþrifum og hár­ greiðslu sem minntu frekar á Karl sjálfan en hinn eina sanna nafna persónunnar. Karl virtist líka eitthvað kannast við kauða ef marka má tilsvar hans á Face­ book: „En drengurinn nær mér ágætlega, ef sú var ætlunin. Sem ég efast um.“ Svo sem ekki algalið að þeir Karl og Smári hafi runnið saman í einni persónu þar sem Karl tók einmitt við ritstjóra­ starfi á Pressunni þegar Gunnar Smári var rekinn 1993 og þeir hafa af og til eldað grátt silfur. n Elín Hirst elinhirst @frettabladid.is Því er spáð að öfgar í veðurfari fari vaxandi á næstu árum vegna aukinnar losunar gróðurhúsa­ lofttegunda út í andrúmsloftið af mannavöldum. Rétt er að taka fram að lægðin djúpa sem gekk yfir landið í gær og í fyrrinótt var að öllum líkindum dæmigerð íslensk vetrarlægð, en talið er að í framtíðinni gætu slík öfgaveður orðið algengari hér á landi. En slík óveður vekja fólk til umhugs­ unar um hvernig veðurfar er að breytast í heiminum. Öfgar í veðurfari af völdum loftslagsbreyt­ inga eru þegar orðnar staðreynd víða um heim. Má þar nefna að stærri fellibyljir eru tíðari, svæsnari hitabylgjur, f lóð, ofsaþurrkar og aftakaúrkoma með tilheyrandi manntjóni, eignatjóni, uppskerubresti og gróðureldum. Veðuröfgarnar taka á sig alls konar myndir. Sögulegt kuldakast varð í Texas og f leiri ríkj­ um í sunnanverðum Bandaríkjunum í fyrra þar sem hitinn fór niður í mínus 18 gráður á Celsíus síðasta vetur. Flestir tengja loftslags­ breytingar við hækkandi hitastig en málið er ekki svo einfalt. Hlýnun á norðurslóðum ýtir köldu lofti mun lengra suður á bóginn en áður hefur þekkst eins og í þessu tilfelli. Menn áttu líka erfitt með að trúa því þegar þeir litu á hitamælinn á einum kaldasta stað veraldar í Norður­Síberíu í júní árið 2020 en mælirinn sýndi +38 gráður á Celsíus. Lægsti hiti sem hafði mælst í bænum var ­68 gráður á Celsíus, þannig að hér var um að ræða sveiflu upp á 106 gráður. Hættumerkin eru alls staðar en samt þokast óhugnanlega hægt að draga úr losun. Athygli vakti þegar ráðherra frá Kyrrahafseyju flutti ávarp sitt á loftslagsráðstefnunni í Glasgow, COP26, þar sem hann stóð í hnédjúpu vatni, en á eyjunum er nú þegar víða neyðarástand vegna hækkandi sjávarstöðu. En því miður skilaði loftslagssamningurinn sem undir­ ritaður var á COP26 engum stórum byltingum, þrátt fyrir ákaft ákall. Samkvæmt nýlegri könnun telja sextíu prósent ungmenna mannkynið dauðadæmt vegna hnattrænna loftslagsbreytinga. Vantrú á stjórnvöld fer vaxandi og ungmennin upplifa sig valdalaus. Loftslagskvíði ungmenna er sem faraldur sem mun bitna á geðheilsu núverandi og kom­ andi kynslóða. Ekki er þó hægt að líta fram hjá því sem er að gerast eða þegja um það. Vonandi verða hinar slæmu horfur til að auka drifkraftinn enda er mannkynið þekkt fyrir að láta ekki deigan síga þótt á móti blási. n Veðuröfgar SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 8. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.