Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 12
www.taramar.is ,Lyfjaver, Íslandsapótek, Hakgkaup (Kringlunni, Smáranum, Garðabæ og Akureyri) T A R A M A R Frítt Serum með hverju Dagkremi Jewells hefur ástríðu fyrir að deila sögum og fróðleik um Ísland. Ástríðu sem hún vissi ekki af fyrr en hún sló til og byrjaði með hlaðvarp. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Stutta útgáfan af því af hverju Jewells, sem er fædd og uppalin í Brooklyn í New York, flutti til Íslands er að hún kynntist íslensk- um manni og elti ástina hingað á Klakann. En aðdragandinn var langur. „Ég kynntist Gunnari í Banda- ríkjunum fyrir mörgum árum, þegar ég var í háskóla. Ég var að læra verkfræði og Orri vinur hans var eini Íslendingurinn á háskóla- svæðinu. Við urðum vinir og ég hitti Gunnar í fyrsta skipti þegar hann kom út að heimsækja Orra. Við löðuðumst hvort að öðru þá en það varð ekkert á milli okkar fyrr en löngu seinna. Maður veit aldrei þegar maður hittir einhvern fyrir tilviljun hvort hann endi á að verða maki þinni seinna í lífinu,“ segir Jewells og brosir. Seinna flutti Gunnar til Banda- ríkjanna til að fara í nám og þá kviknaði neistinn. Gunnar sagði Jewells að hann vildi flytja til Íslands eftir útskrift og hún ákvað að slá til. „Ég var samt alveg ákveðin í því að ég vildi ekki flytja nema fá vinnu við hæfi, í þeim geira sem ég var að vinna í úti í New York,“ segir Jewells sem fékk að lokum vinnu í stafrænni markaðssetningu fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hún flutti til Íslands og byrjaði í vinnunni strax daginn eftir. Þetta var í júní árið 2016 og hún hefur því búið hér í bráðum sex ár. Ísland eins og ferskur andvari Jewells heldur úti vinsælli YouTube- rás og hlaðvarpi og er auk þess með Instagram- og Facebook-síður undir nafninu All Things Iceland. Nýlega byrjaði hún líka á TikTok til að ná til fleira fólks. Á miðlunum segir hún meðal annars frá Íslandi út frá sjónarhorni aðkomumanns- ins og hefur til dæmis talað um það sem kom henni á óvart þegar hún flutti fyrst til landsins. „Ég ólst upp í Brooklyn í New York og bjó þar næstum allt mitt líf fyrir utan fjögur ár þegar ég fór í háskóla annars staðar í New York-fylki. Ég hafði því í raun búið í New York í 30 ár þegar ég flutti til Íslands. Ég man að mér fannst oft ansi þröngt í lestunum í New York á leið í vinnu á morgnana því þar er Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun @frettabladid.is Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergs- dóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. svo rosalega mikið af fólki. Þannig að það að koma til Íslands var eins og ferskur andvari, bókstaflega, af því loftið er svo hreint, en líka vegna þess að hér er miklu meira pláss af því það er ekki mikið af fólki hér,“ útskýrir hún. „Reykjavík er líka hægari en New York, það er rólegra hér þó Reykjavík hafi auðvitað líka sinn hraða. Það er allt miklu afslappaðra hér. Ég man að eitt af því fyrsta sem kom mér á óvart við menninguna hér var þegar fólk fór fyrr heim úr vinnunni af því það var gott veður. Ég kom hingað sumarið 2016 og þá voru nokkrir góðviðrisdagar. Fólk var að fara heim klukkan 15.00 og spyrja mig hvort ég ætlaði ekki að fara heim og nýta góða veðrið. Ég var mjög hissa og sagði bara: Ha? Nei, ég ætla ekki að fara, ég þarf að vinna. Ég var svo föst í New York- gírnum,“ segir hún og hlær. „Það var svo ekki fyrr en árið 2018 þegar sumarið var hræði- legt og það rigndi næstum hvern einasta dag sem ég hugsaði: Ókei, héðan í frá mun ég nýta mér góð- viðrisdagana, ég ætla ekki lengur að taka þeim sem gefnum.“ Annað sem Jewells nefnir að henni hafi þótt skrýtið þegar hún kom til Íslands var að fólk skildi börnin sín eftir sofandi úti í vagni áhyggjulaust. „Ég var með áhyggjur fyrir þeirra hönd. Ég hef verið skilyrt til að finnast ég alltaf þurfa að vera á verði, þú þarft þess í stórborg, svo þó ég skilji af hverju Íslendingar eru ekki hræddir við þetta fannst mér erfitt að venjast þessu,“ segir hún. „En það sem mér fannst skrýtn- ast var að heyra Íslendinga tala á innsoginu. Ég var í sjokki, ég hélt að fólkið væri með slæman astma. Það var svo ekki fyrr en svolítið seinna sem ég minntist á þetta við Gunnar manninn minn og hann hló bara og sagði nei, Íslendingar tala bara svona,“ segir hún hlæjandi. Varð mín leið til að aðlagast Þegar Jewells byrjaði með hlað- varpið sitt hafði hún enga reynslu af þáttagerð. En þar sem hún var alltaf að fá spurningar um hvernig það væri að búa á Íslandi og var beðin um að deila upplýsingum með fólki ákvað hún að prófa. „Ég hlustaði mikið á hlaðvörp á þessum tíma en ég fann ekkert hlaðvarp sem fjallaði sérstaklega um þetta. En þar sem ég hafði enga reynslu fannst mér ég kannski vera að ætla mér of mikið. En ég hlustaði mikið á hlaðvörp þar sem var meðal annars talað um að ef þig langar að gera eitthvað þá áttu að fylgja þeirri tilfinningu. Svo ég hugsaði bara ókei, ég geri þetta bara,“ segir Jewells en í dag er hlað- varpinu hennar hlaðið niður 30.000 sinnum á mánuði. „Mig langaði að fjalla um eitt- hvað sem mér sjálfri þætti áhuga- vert svo ég myndi nenna að halda áfram með þetta. Ég vildi ekki bara fjalla um hvernig er að búa á Íslandi eða ferðast til Íslands heldur vildi ég tala um allt sem viðkemur landinu, menninguna, söguna, skrýtnu og skemmtilegu hlutina, hneykslismálin, tungumálið og allt. Þetta varð svolítið mín leið til að aðlagast. Í hvert sinn sem ég kom á nýjan stað reyndi ég að drekka í mig eins miklar upplýsingar um hann og ég gat og deildi þeim svo með heiminum.“ Fyrsti hlaðvarpsþátturinn fór í loftið í júní árið 2018 og um haustið sama ár setti hún fyrsta YouTube- þáttinn í loftið en hún segir að You- Tube sé sá miðill sem hafi hjálpað henni hvað mest að fá fylgjendur. „Ég er með um 46.000 fylgjendur á YouTube, sem er lítið í YouTube- heiminum en á Íslandi er það mikið. Við erum ekki mörg hér sem búum reglulega til myndbönd fyrir YouTube,“ segir hún. Flestir fylgjendur Jewells koma frá Bandaríkjunum en margir eru frá enskumælandi löndum eins og Bretlandi og Kanada og svo auð- vitað frá Íslandi, Evrópu og héðan og þaðan úr heiminum. Trúði forsetanum ekki Hlustendurnir hafa mikinn áhuga á að vita hvað er að gerast á Íslandi svo Jewells gerir oft þætti í sam- starfi við íslensk fyrirtæki til að sýna hvað er í boði hér á landi. Hún fær oft fólk í viðtal til sín í hlað- varpið til að fræða hlustendur um ýmislegt sem við kemur Íslandi og hefur meðal annars tekið við- tal við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson. „Ég var að taka upp myndband með vini mínum sem er fararstjóri, en þetta var fyrir skólaferðalag fyrir háskólanemendur í Kanada. Einn af viðkomustöðunum voru Bessastaðir. Ég bjóst ekki við að tala við forsetann nema bara að segja: Góðan daginn. En hann spurði mig hvað ég væri að gera og ég sagði honum frá YouTube-rásinni og hlaðvarpinu og að ég tæki oft viðtöl við fólk. Þá sagði hann að ég gæti talað við hann ef mig vantaði viðmælanda, ég trúði honum ekki og spurði hvort hann væri að meina þetta,“ segir Jewells sem endaði svo á að hitta forsetann seinna og taka eins og hálf tíma langt viðtal við hann. „Þetta opnaði augu margra hlustenda, eins og Bandaríkja- manna, sem eru ekki vanir því að hægt sé að taka svona hversdags- legt viðtal við þjóðhöfðingja. Við áttum bara gott spjall og það var engin leyniþjónusta eða lífverðir á staðnum. Þetta er eitt af því sem ég elska við Ísland,“ segir hún og hlær og segist ekki hafa átt von á því þegar hún flutti hingað að hún myndi einn daginn taka viðtal við forseta Íslands. Jewells segist hafa nýtt reynslu sína í stafrænni markaðssetningu til að fá fylgjendur en eitt af því sem hún gerði var að búa til efni fyrir marga miðla til að ná til fleira fólks. „Mér finnst ég heppin að fá að gera þetta. Ég hef ástríðu fyrir að deila efni og tengjast öðru fólki. En ég vissi það ekki fyrr en ég byrjaði á þessu. Þegar ég ýtti óttanum frá og ákvað að sjá hvað gerðist. Það er oft talað um að fólk eigi að gera það sem það hefur ástríðu fyrir. En ég hugsa stundum: Hvernig veistu að þú hefur ástríðu fyrir einhverju ef þú hefur aldrei prófað það?“ ■ Það sem mér fannst skrýtnast var að heyra Íslendinga tala á innsoginu. Ég var í sjokki, ég hélt að fólkið væri með slæm- an astma. 2 kynningarblað A L LT 8. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.