Fréttablaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 6
Okkur grunar að það sé mismunun í gangi. Friðrik Jónsson formaður BHM Fulltrúar lögreglumanna, slökkviliðsmanna og fleiri viðbragðs- og öryggisstétta funduðu í vikunni um kjara- mál sín. Stéttirnar hafa verið óánægðar með framkvæmd styttingu vinnuvikunnar. Kristinnhaukur@frettabladid.is KJARAMÁL Fulltrúar viðbragðs- og öryggisstétta innan vébanda BSRB funduðu á miðvikudag um kjaramál og styttingu vinnuvikunnar. Ekki hefur verið stofnað eiginlegt félag en áfram verður fundað fyrir næstu kjaralotu, einkum og sér í lagi vegna óánægju stéttanna með útfærslu á styttingu vinnuvikunnar. „Þetta var óformlegt spjall. Við erum að undirbúa okkur fyrir kjara- viðræður og viljum vera tímanlega í þessum,“ segir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglu- manna. En ásamt lögreglumönnum voru fulltrúar slökkviliðs og sjúkra- flutningamanna, tollgæslumanna, gæslumanna úr Landhelgisgæslunni og fangavarða. Kjarasamningar þess- ara stétta losna í mars á næsta ári. „Þetta var fyrsti fundur og það munu verða fleiri. Það eru klárlega sameiginlegir hagsmunir,“ segir Magnús Smári Smárason, formað- ur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, LSS. „Þetta eru lítil félög inni í stóru félagi. Það er hollt fyrir þessa aðila að hittast og ræða stöðuna, þó að ekki séu stofnuð ný samtök.“ Rótin að þessum viðræðum er stytting vinnuvikunnar úr 40 tímum niður í 36 eða jafnvel 32, sem var eitt helsta baráttumál BSRB fyrir síðustu kjarasamninga en reynst hefur f lókið fyrir sumar vaktavinnustéttir í framkvæmd. Takmarkið var að stytta vaktir úr 12 niður í 8 tíma, en það hefur ekki alls staðar gengið eftir. Ríkislögreglustjóri áætlaði að ráða þyrfti 75 lögreglumenn til að mæta styttingunni sem tók gildi í maí síðastliðnum. Stjórnvöld hafa lofað ráðningum en efndir gengið hægt og lögreglumenn kvarta undan auknu álagi eftir breyting- una. Hjá LSS hefur styttingin aðeins verið framkvæmd á einum stað, Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Annars staðar var henni frestað til 1. maí næstkomandi. „Við treystum okkur ekki í þetta verkefni í upp- hafi og frestuðum innleiðingunni,“ segir Magnús. Tíminn hefur verið nýttur til fundahalds með rekstrar- aðilum og verkefnisstjórn stytting- arinnar. Eitt slökkvilið hefur síðan komist að ásættanlegri niðurstöðu. Í fangelsunum þarf að ráða í 27 stöðugildi, en ríkið hefur boðið 15. Þetta hefur orsakað að algengara er að einn vörður sé á vakt, sem er talið óæskilegt öryggisins vegna, bæði hans sjálfs og fanga. Þá he f u r óá næg ja me ð a l landamæravarða og tollgæslu- manna verið mikil með útfærslu styttingar innar. Vöktum hefur verið fjölgað og sumar eru aðeins sex tímar, sem leitt hefur af sér gríðarlegt óhagræði fyrir starfs- fólk. Þá hefur einnig verið deilt um vaktaálagið. „Styttingin hefur gengið svolítið erfiðlega hjá þessum stéttum. Þær þurfa að vera með mönnun allan sólarhringinn. Útfærslan hefur gengið illa af því að það hefur reynst erfitt að fylla mönnunar- gatið,“ segir Fjölnir. „Stytting vinnuvikunnar var grundvallar kerfisbreyting og hefur ekki gengið fullkomlega upp alls staðar. Það þarf að sníða vankanta af framkvæmdinni,“ segir Magnús. Félagsmenn þessara félaga hafi hagsmuni af því að þau lífsgæði sem styttingin átti að fela í sér náist. ■ Viðbragðsstéttir eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta í kjaramálum Lögreglumenn hafa kvartað undan auknu álagi síðan styttingin var tekin upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þetta var fyrsti fundur og það munu verða fleiri. Magnús Smári Smárason, for- maður LSS kristinnhaukur@frettabladid.is MANNRÉTTINDI Bandalag háskóla- manna og Samtökin ’78 hafa gert samkomulag um rannsókn á hvort launamunur sé milli hinsegin fólks og annarra á íslenskum vinnumark- aði. Að sögn Friðriks Jónssonar, for- manns BHM, verður rannsóknin ekki einskorðuð við háskólafólk, heldur verður litið vítt á vinnu- markaðinn. „Okkur grunar að það sé mis- munun í gangi. Ef rannsóknin leiðir það í ljós verður hægt að nota hana til þess að vinna gegn mismunun- inni,“ segir Friðrik. Heilt á litið vilji stjórnendur ekki mismuna fólki en mismunun geti einnig verið ómeð- vituð. Sýni gögnin mismunun, í ákveðnum atvinnugreinum eða öllum, verði hægt að nýta þau til að bæta úr. „Við erum að berjast gegn ómálefnalegum launamun.“ Rannsóknin verður gerð í lok vors og snemma í sumar. Gerð verður viðhorfs- og reynslukönnun og ýmsar hagtölur og launaupplýsing- ar rýndar. Sérfræðingar frá Háskóla Íslands munu taka þátt í þessu. Friðrik segir viðfangsefnið hins vegar flóknara en þegar launamunur kynjanna er reiknaður út, því innan kerfisins er hin hefðbundna skipting karla og kvenna í flestum tölum. Í rannsókninni verður þó hægt að komast að ýmsu, svo sem hvort gler- þak sé hjá fyrirtækjum þegar kemur að samkynhneigðum og hvernig transfólki líður á vinnumarkaði. Heilt yfir sé rannsóknin gerð til þess að víkka jafnréttisumræðuna. ■ Rannsaka launamun hinsegin fólks og annarra arib@frettabladid.is ÚKRAÍNA Boris Johnson, forsætis- ráðherra Bretlands, segir að Evrópa standi frammi fyrir mestu hættu í marga áratugi. Í samtali við blaða- menn í Brussel í gær sagði hann að þolinmóðar samningaviðræður og fyrirbyggjandi aðgerðir væru leiðin út úr núverandi hættuástandi. Rússar hafna því alfarið að ætla sér að ráðast inn í Úkraínu, en gervi- hnattarmyndir sem CNN hefur sýnt, sýna að búið sé að færa herlið Rússa nær landamærunum. Johnson sagði að hann tryði því ekki að Rússar væru búnir að ákveða að ráðast inn í landið, en tók fram að gögn frá leyniþjónustunni væru ógnvekjandi. ■ Mesta hættan í marga áratugi Johnson forsætisráðherra hitti breska hermenn í Póllandi í gær. kristinnhaukur@frettabladid.is ATVINNULÍF Mun færri fyrirtæki hafa starfsmann í upplýsingatækni á sinni launaskrá í dag en fyrir ára- tug. Starfsmann sem sér um rafræn samskipti og meðferð gagna. Í dag hafa 13 prósent fyrirtækja slíkan starfsmann innan sinna raða sem er, ásamt Ítalíu, lægsta hlutfall í Evrópu. Árið 2012 var hlutfallið meira en tvöfalt hærra, það er 27 prósent. Þá var Ísland langt yfir Evrópumeðal- talinu sem er 20 prósent. Meðal- talið hefur varla haggast, en Ísland hrunið niður listann sem birtur er hjá Eurostat, evrópsku tölfræði- stofnuninni. Þegar litið er til atvinnugreina er mjög misjafnt hvort fyrirtæki telja sig hafa not fyrir starfsmann í upp- lýsingatækni. Hæst er hlutfallið í tölvu- og fjarskiptageiranum, milli 60 og 70 prósent, sem og hjá orku- fyrirtækjum og fjölmiðlum. ■ Hríðfækkar í upplýsingatækni birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG „Börn og ungmenni með fæðuofnæmi þurfa oft og tíðum að takast á við krefjandi aðstæður í líf- inu,“ segir Selma Árnadóttir, vara- formaður Astma- og ofnæmissam- takanna. Samtökin hrintu í heimsfaraldr- inum af stað námskeiði fyrir börn á aldrinum 10-15 ára, sem eru með ofnæmi, og foreldra þeirra. Mark- mið námskeiðsins er að efla börnin og styrkja þau í samskiptum. Selma segir að þegar börn sem eru með lífsþrúgandi ofnæmi og nálgist unglingsaldurinn dragi þau sig gjarnan í hlé frá jafnöldrum sínum við ákveðnar aðstæður og upplifi oft kvíða. „Á þessum aldri verða börnin meðvitaðri og jafningjasaman- burðurinn fer að skipta meira máli,“ segir Selma. „Við vitum að matur spilar stóran part í okkar félagslega umhverfi. Við förum í matarboð, íþróttafélög og skólar nota mat oft og tíðum sem viðurkenningu fyrir góðan árangur, vinir hittast og baka saman eða elda,“ bætir hún við. Hún segir mikilvægt að gera grein- armun á fæðuóþoli og lífsþrúgandi fæðuofnæmi. Bæði geti verið alvar- legt, en einungis ofnæmið sé lífs- hættulegt. „Það gerir það að verkum að þessi börn geta nánast daglega verið í kvíðavaldandi aðstæðum,“ segir Selma og tekur dæmi. Hér á landi segir Selma að jafnaði færri dauðsföll af völdum matar- ofnæmis en víða annars staðar, ástæðan sé mikil nálægð við sjúkra- hús. „Mörg þeirra hafa upplifað það að fara í ofnæmislost og lent á spítala, ofnæmisvaldar eru eins og eitur fyrir líkama þeirra. Þau þurfa að vera sérstaklega extra sterk, en við vitum að við breytum ekki umhverfinu svo það er mikilvægt að börnin og ungmennin vinni í sér og við hjá Astma – og ofæmissam- tökunum ætlum að hjálpa til með það,“ segir Selma. ■ Börn með ofnæmi dragi sig í hlé og upplifi kvíða Selma Árnadótt- ir, varaformaður Astma- og ofnæmissam- takanna arib@frettabladid.is BANDARÍKIN Donald Trump, fyrr- verandi Bandaríkjaforseti, er enn í sambandi við Kim Jong-Un, ein- ræðisherra Norður-Kóreu, sam- kvæmt nýrri bók blaðakonunnar Maggie Haberman. Mun einræðis- herrann vera eini þjóðarleiðtoginn sem Trump er enn í sambandi við eftir að hann lét af embætti. Eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hóf í gær rannsókn á bréfum Kims til Trumps sem hann tók með sér til Flórída eftir að hann lét af embætti. ■ Er enn í sambandi við Kim Jong-Un Trump geymdi bréf frá Kim. 6 Fréttir 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.