Fréttablaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 18
Það sem
heillar mig
mest við að
stunda
skíða-
göngu er
þessi
frábæra
hreyfing
úti í nátt-
úrunni.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Gönguskíði bjóða upp á
góða úthaldsæfingu, hraða
og mikla gleði, segir Óskar
Jakobsson sem hefur rennt
sér á gönguskíðum frá sjö
ára aldri.
Gönguskíði hafa notið óvenju
mikilla vinsælda meðal lands-
manna undanfarin ár, enda íþrótt
sem hæfir ungum sem öldnum
og er hægt að stunda víða. Einn
þeirra sem þekkja gönguskíðin vel
er Óskar Jakobsson sem byrjaði
sjö ára gamall að renna sér á
gönguskíðum á Ísafirði. „Það sem
heillar mig mest við að stunda
skíðagöngu er þessi frábæra
hreyfing úti í náttúrunni. Síðustu
ár hefur mest af tíma mínum á
skíðum farið í að kenna öðrum
og það finnst mér líka skemmti-
legt og gefandi. Maður hittir og
kynnist svo mikið af nýju fólki í
sportinu í dag. Ég fer mjög sjaldan
á svigskíði, þar sem mér leiðast
lyftur og raðir. En eins og ég segi
við nemendur mína þá fæ ég
allt á gönguskíðum sem aðrar
skíðaíþróttir bjóða upp á, eins
og hraða, góða úthaldsæfingu og
mikla gleði.“
Fljótlega eftir að Óskar byrjaði á
gönguskíðum var hann mættur á
æfingar hjá Skíðafélagi Ísafjarðar.
„Ég æfði fram á unglingsár, keppti
á öllum mótum sem voru haldin á
Miðlar
reynslu og
þekkingu
Óskar Jakobs
son hefur
stundað göngu
skíðin frá sjö ára
aldri. Í dag rekur
hann íþrótta
vöruverslunina
Sportval í
Árbænum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Óskar og Auður Ebenezersdóttir
hafa haldið byrjendanámskeið í
skíðagöngu undanfarin sjö ár. Það er alltaf fjör á gönguskíðum.
Skíðaganga er frábær íþrótt fyrir fólk á öllum aldri.
Ísafirði og fór svo á vorin á Andr-
ésarleikana á Akureyri, sem var
alltaf hápunktur vetrarins fyrir
ungan skíðamann. Á unglingsár-
unum keppti maður á bikarmót-
um og á unglingalandsmótum.“
Leiðbeinir byrjendum
Eftir að hann f lutti til Reykja-
víkur 18 ára hætti Óskar að keppa
á skíðum og einblíndi á þjálfun
og félagsstörf í tengslum við
íþróttina. „Ég þjálfaði krakka og
unglinga í nokkur ár, áður en við
Auður Ebenezersdóttir byrjuðum
með byrjendanámskeiðin sem við
höfum haldið úti núna í sjö ár.“
Mestur tími hans fer því í að
leiðbeina öðrum í að taka sín
fyrstu skref í íþróttinni. „Það
er búið að vera stórkostlegt
að fylgjast með fjölguninni í
sportinu á undanförnum árum og
enn skemmtilegra að hafa fengið
að taka þátt í þróuninni. Nú rek
ég verslunina Sportval sem selur
skíðabúnað. Þar get ég líka gefið
af mér og miðlað minni reynslu og
þekkingu.“
Auk þess hefur hann stundað
hlaup undanfarin ár og segir hann
skíðagrunninn koma þar sterkan
inn. „Þar hef ég bæði verið virkur
sem keppnismaður og síðar sem
þjálfari.“
Leiðsögn nauðsynleg
Fyrir áhugasamt fólk sem vill taka
fyrstu skrefin á gönguskíðum, er
gott að fá tilsögn bæði með búnað
og skíðatæknina, segir Óskar. „Það
er því miður allt of algengt að fólk
fari í búðir og komi út með búnað
sem hentar því ekki. Það eru
nokkrir þættir sem þarf að hafa
í huga ef þú ætlar að kaupa þér
búnað. Ef þér finnst að þjónustan
sé ekki viðunandi, farðu þá annað.
Það er engin launung að þetta er
erfið íþrótt, en með smá tilsögn
er hægt að spara orku og sportið
verður æ skemmtilegra eftir því
sem færnin eykst.“
Góð aðstaða víða
Besta aðstaðan á suðvestur-
horninu er í Bláfjöllum, að sögn
Óskars og í raun eina aðstaðan
vegna snjóleysis. „Þegar við höfum
snjó hér á láglendi þá eru troðnar
brautir ansi víða eins og í Heið-
mörk, á mörgum golfvöllum, á
Þingvöllum og á Laugarvatni svo
dæmi séu nefnd. Hvað varðar aðra
staði þá kemur að sjálfsögðu fyrst
Ísafjörður upp í hugann, þar er
gríðarlegur metnaður í gangi og
ekki að ástæðulausu sem hann er
kallaður Skíðagöngubærinn. Svo er
aðstaðan á Akureyri og í Ólafsfirði
flott. Einnig má nefna Húsavík sem
er að koma sterkt inn með flott
skíðasvæði og með nægan snjó
fram á vor.“
Útlönd heilla líka
Fyrir þau sem eru aðeins lengra
komin og vilja skella sér á göngu-
skíði í útlöndum er tilvalið að
heimsækja lönd á borð við Noreg,
Svíþjóð, Austurríki og Ítalíu, sem
Óskar segir mjög spennandi kosti.
„Það eru margir sem ferðast á
milli landa til að keppa í World-
loppet-göngunum, en það eru
keppnir sem haldnar eru úti um
allan heim. Fossavatnsgangan á
Ísafirði er partur af þessari seríu,
Birkebeinergangan í Noregi sem
og Vasagangan í Svíþjóð, svo ein-
hverjar séu nefndar. Við hjónin,
Elín Gísladóttir og ég, erum
búin með sex göngur til þessa og
stefnum á að ná að minnsta kosti
tíu göngum. Þetta er skemmtileg
leið til að sameina ferðalög og
áhugamálið.“
Fram undan eru fjórar helgar á
Húsavík þar sem hann og Auður
verða með kennslu í samstarfi við
Íslandshótel. „Auk þess förum við
í vikuferð til Póllands um miðjan
mars. Ég er svo enn að skoða með
að fara keppnisferð með Ellu
minni til að bæta við sjöundu
göngu okkar, ef tími gefst.“ n
Hjónin Óskar og Elín Gísladóttir á
góðri stundu í snjónum.
Hjónin voru ánægð eftir Dolomit
tenlaufskíðagönguna í Austurríki.
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
6 kynningarblað A L LT 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR