Fréttablaðið - 11.02.2022, Síða 14
Sportís er fjölskyldufyrirtæki
stofnað 1983. „Við fjölskyldan
vinnum hér nánast öll, sjálfur er ég
jaðarsportnördinn innan fjölskyld-
unnar og því er Kuldi mín deild. Við
vildum setja skýra tengingu á milli
fjallahjóla og vetrarjaðarsportsins,
enda er þetta mikið til sami
kúnna hóp urinn sem sækir í þessar
íþróttir. Brettavertíðin er tiltölulega
stutt hér á landi og þá er eðlilegt að
fólk sæki í fjallahjólin á sumrin,“
segir Hlynur.
Skíða- og brettafærið í þessum
hefðbundnu brekkum hefur ekki
verið upp á marga fiska, að mati
Hlyns. „Veturinn fyrir norðan
byrjaði svakalega vel, en svo kom
einhver hitaskúr yfir landið, hitinn
fór upp í 14 gráður og allur snjór
fór úr fjöllunum við Akureyri.
Núna hefur snjó kyngt niður og
það stefnir í flott færi í Bláfjöllum
á næstu dögum. Ég held þetta
verði svona vetur sem byrjar seint,
en endar líka seint og eigi eftir að
teygjast fram í miðjan apríl.“
Vanda valið
„Við hjá Sportís og í Kulda leggjum
mikinn metnað í að velja inn vörur
og merki sem við þekkjum og
höfum reynslu af. Í augnablikinu
erum við ekki að selja skíði en erum
þó með skíðatengdar vörur. Við
viljum einbeita okkur að því sem
við þekkjum og höfum reynslu af.
Ég hef stundað snjóbretti í um
tuttugu ár, eða frá því ég var sex
ára. Þá hafði ég sjálfur rennt mér
á brettum frá Nitro í um tvö ár og
vissi því að þetta væri merki sem
mig langaði að bjóða upp á hér á
landi. Við tókum því við umboði
fyrir Nitro í fyrra. Hér starfar fólk
sem þekkir og hefur reynslu af
sportinu sjálft. Það myndi ekki
ganga að fá einhvern sem hefur
aldrei smeygt fæti í bretta skó til
að selja hér bretti. Þetta er flókið
sport og viðskiptavinir verða að
geta treyst því að okkar þjónusta
sé byggð á þekkingu, eins og hjá
Sportís. Þeir sem starfa hér í Kulda
hafa stundað bæði snjóbretti og
fjallahjól í mörg ár.“
Nitro, hágæðamerki
á enn betra verði
„Frá Nitro bjóðum við upp á snjó-
bretti og splitbretti, bindingar,
brettaskó, ýmsa aukahluti og bretti
og skó fyrir yngri kynslóðina. Nitro
var stofnað árið 1990 af Tommy
Delago og hefur verið að gera rosa-
lega flotta hluti undanfarið. Þeir
bjóða upp á frábærar vörur á mjög
góðu verði. Þeir eru líka naskir
að koma sér í samstarf við aðra
gæðaframleiðendur þegar þeirra
þekking nægir ekki, til að geta
boðið bæði upp á gæði og hagstætt
verð. Til dæmis framleiða þeir
splitbindingar í samstarfi við Spark
RND, sem er besti framleiðandi í
heimi á splitbrettabindingum. Hjá
Kulda færðu flott pakkatilboð á
splitbrettum og brettabúnaði.
Nitro byggir á mjög flottri hug-
myndafræði. Þeir kunna vel að
meta litlu snjóbrettabúðirnar sem
selja Nitro um allan heim og skilja
mikilvægi þess að halda þeim starf-
andi. Starfsfólkið í þessum búðum
stundar alla jafna sjálft sportið og
það eru alltaf langbestu sölumenn-
irnir. Ef þú ferð á vefsíðu Nitro er
ekki hægt að kaupa beint í gegnum
þá, heldur leiðir vefverslunin þig
í verslun sem selur Nitro í þínu
nágrenni.“
Splitbretti lengir vertíðina
Splitbrettasportið hefur verið vin-
sælt erlendis en er tiltölulega nýtt
á Íslandi, enda er verðið orðið við-
ráðanlegra og aðgengi, þekking og
framboð orðið betra. „Þetta er eins
konar snjóbretti sem þú getur tekið
í sundur, sett skinn undir og labbað
um á, næstum eins og á snjóþrúg-
um. Þannig er hægt að ganga upp
nær hvaða fjall sem er og renna sér
niður. Þetta er mun hentugra en
að ganga upp fjall á brettaskónum
með þungt brettið eða skíðin á
Bandaríska útivistarmerkið Volcom fæst í Kulda.
DB snjóbretta-
og skíðatösk-
urnar eru
ótrúlega þægi-
legar og hent-
ugar og taka
ekkert pláss í
geymslu.
Kuldi er með
umboð fyrir
Nitro á Íslandi.
Splitbretti
verða sívin-
sælli hér á landi
enda lengja
þau skíða- og
snjóbrettaver-
tíðina um marga
mánuði.
Hlynur hefur
stundað snjó-
bretti í tuttugu
ár og segir
starfsfólk Kulda
allt hafa mikla
þekkingu og
reynslu í bæði
fjallahjólum
og snjóbretta-
sportinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
bakinu. Þetta er ekki nýtt sport
úti í heimi en frekar nýkomið til
Íslands. Ég held að þyrluskíða-
tískan hafi ýtt svolítið undir þetta
hérlendis, enda sáu margir að þeir
gátu allt eins gengið upp á þessa
sömu tinda. Vinsældirnar á þeim
ruku líka upp þegar Covid skall á
og skíðasvæðunum var lokað. Þá
tók fólk stökkið, prófaði búnaðinn
og uppgötvaði hvað það er frábært
að geta þrammað upp í vel valda
hlíð og rennt sér niður á eigin for-
sendum, en þurfa ekki að treysta á
að skíðalyftan sé opin.
Splitbrettin gera fólki líka kleift
að stunda snjóbrettin mun lengur.
Vanalega hefst skíðatímabilið
í nóvember og lýkur í mars eða
apríl, sem er stuttur tími. Með
splitbrettinu má lengja þetta
tímabil. Félagi minn fór til dæmis
sitt síðasta rennsli í júlí í fyrra í
Kerlingarfjöllum. Við erum að
selja frábær splitbretti fyrir konur,
karla og jafnvel börn frá Nitro, sem
og alla aukahluti sem þarf eins
og brodda, skinn, skó, göngustafi
og fleira. Snjóflóðabúnaður er
svo ávallt nauðsynlegur ef farnar
eru ótroðnar slóðir, ásamt því að
kunna vel á hann.“
Öryggið á höfuðið
„Sweet Protection hjálmarnir
eru í heimsklassagæðum. Þetta
er ekki gamalt merki en þeir hafa
náð ótrúlegum árangri á stuttum
tíma. Í sumar var fjallahjóla-
hjálmur frá þeim valinn öruggasti
hjálmurinn af yfir 120 hjálmum
sem voru prófaðir í virtu öryggis-
prófi Virginia Tech. Þeir framleiða
líka ein bestu snjóblindugler sem
ég hef nokkurn tíma notað. Það
bendir allt til þess að þetta verði
eitt stærsta merki á markaðnum
þegar fram líða stundir.“
DB tekur ekkert pláss
„DB er norskt eðaltöskumerki
sem framleiðir fjallaskíða- og
snjóbrettabakpoka sem og skíða-
ferðatöskur og fleira. Þeir hafa
unnið mörg verðlaun fyrir sniðuga
hönnun eins og ISPO Award,
Design Excellence hjá Norwegian
Design Council, Sportfack Gear
of the Year og NHO innovation
award. Svíinn Jon Olsson, sem er
heimsklassa skíðaíþróttamaður og
verðlaunahafi, er gæinn á bak við
merkið, ásamt Norðmanninum
Truls Brataas. Jon var víst kominn
með nóg af fyrirferðarmiklum
ferðatöskum fyrir skíði svo hann
ákvað að gera eitthvað í málinu.
Skíðatöskurnar eru til dæmis
tveggja metra langar sem passar
yfir lengstu skíðin, en svo rúllarðu
bara upp endanum þar til taskan
passar. Í geymslu eru þessar töskur
svolítið stærri en fótbolti. Ég man
sjálfur að í gamla daga tók snjó-
brettataskan hálfa geymsluna. Nú
rúlla ég töskunni bara upp og hún
tekur ekkert pláss.“
Bretti vs. skíði
„Við seljum snjóbrettafatnað frá
Volcom. Þetta er rótgróið merki í
brettaheiminum og meðal annars
opinber fataframleiðandi banda-
ríska snjóbrettaliðsins á Vetrar-
ólympíuleikunum.“
Snjóbrettafatnaður segir Hlynur
að sé mjög áþekkur skíðafatnaði, þó
svo tískan sé ólík. „Snjóbrettafötin
byggja á nákvæmlega sömu tækni
og skíðafatnaður, enda erum við öll
að renna okkur niður sömu brekk-
urnar í sama veðrinu. Brettatískan
sækir meira í streetwear tískuna
með víðum útlínum, á meðan
skíðafatnaðurinn er aðsniðnari.
Annars er þetta sama gore-texið,
sami vatnsheldi rennilásinn og
allt. Við eigum líka sérhannaðan
fatnað fyrir splitbrettasportið.
Þessar flíkur eru teygjanlegri og
bjóða upp á meiri hreyfingu, eins
og þarf þegar þú labbar upp á fjall,
en annars er þetta sami jakkinn og
skíðapabbinn fyrir aftan þig í skíða-
lyftunni klæðist.“
Við erum í þessu saman
Smá núningur hefur verið á milli
skíðasportsins og brettasportsins
síðustu ár, en sem betur fer
minnkar hann með hverju árinu.
„Snjóbrettaíþróttin hefur átt erfitt
uppdráttar og í gegnum tíðina
hefur mun minna verið gert fyrir
brettin heldur en skíðin. Á tímabili
voru snjóbrettin bönnuð í brekkun-
um og í Bandaríkjunum banna þrjú
skíðasvæði ennþá snjóbrettaiðkun.
Þetta er náttúrulega bara gamall
hugsunarháttur þar sem fólk tengdi
snjóbrettin við glæpamenn, en
þetta er blessunarlega að breytast.
Ég heyrði það frá Brettafélagi
Hafnarfjarðar að í Bláföllum æfi
250 krakkar vetrarsport í fjallinu.
Af þeim stunduðu um150 snjó-
bretti hjá þeim síðasta vetur.
Skíðaiðkendum fer fækkandi á
meðan snjóbrettafólki fjölgar. Snjó-
brettaiðkendur nútímans munu
kenna sínum krökkum á snjóbretti.
Þannig þróast þetta og nýju kyn-
slóðirnar velja snjóbrettin fram yfir
skíðin. Við erum öll að renna okkur
í sömu brekkunni og að styrkja
sama fjallið. Enda viljum við öll
að þessi góða starfsemi þrífist og
við getum haldið áfram að stunda
sportið okkar.“ n
Kuldi er í Skeifunni 11, í húsnæði
Sportíss. Nánari upplýsingar á
kuldi.net. Instagram: @kuldi.net-
verslun
2 kynningarblað A L LT 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR