Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.02.2022, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 11.02.2022, Qupperneq 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Okkur fannst þetta nú aðallega bara fyndið og ekki meint sem ein- hver pólitísk yfirlýsing af minni hálfu. odduraevar@frettabladid.is Fjórtán ár eru í dag frá því að turn­ inn á Smáratorgi í Kópavogi steypti Hallgrímskirkju af stóli sem hæsta bygging landsins. Sóknarprestur segir fegurðina telja, en ekki metra­ fjöldann, þegar hann lítur um öxl. Turninn, sem mögulega er fyrsta tilraunin til að reisa skýjakljúf á Íslandi, er 78 metrar á 20 hæðum. Hallgrímskirkjuturn er hins vegar „einungis“ 74,5 metrar að hæð. „Við Hallgrímskirkjufólk fögnum kát vexti og eflingu,“ segir sóknar­ presturinn Sigurður Árni um tíma­ mótin 2008 þegar Smáratorgs­ turninn var vígður. „Kannski lítum við á málin eins og góðir foreldrar – því betur sem allt vex þeim mun betra. Við erum meira með hugann við gæði en magn, fegurð en metra. Svo hefur Hallgrímskirkju verið Frekar horft til fegurðar en hæðar Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju Turnarnir tveir í Reykjavík annars vegar og Kópavogi hins- vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ SAMSETT mikill sómi sýndur; af The Guardian talin eitt af tíu mikilvægustu íhug­ unarhúsum í heimi, af fjölþjóðleg­ um ferðamannavef talið fallegasta hús á Norðurlöndum og svo fram­ vegis. Hæð húsa í kringum okkur gleður, en mikilvægast er að Hall­ grímskirkja þjóni fólki vel. Það er okkar mál.“ n Nú þegar loks hillir undir raunverulegar afléttingar samkomutakmarkana ætlar Friðrik Dór að taka að sér að opna hlið gleðinnar á ný og í mars verður hann líklega fyrstur til þess koma út úr kófinu, með tónleika fyrir fleiri en þúsund manns. odduraevar@frettabladid.is Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, segist ætla að bjóða upp á tónleikaveislu í Silfurbergi Hörpu þann 11. mars á tónleikum sem hann heldur undir hinni mjög svo viðeigandi yfirskrift Opnum hliðin. Friðrik Dór hefur þó fleiri tilefni til að fagna en að útlit sé fyrir að tónleikahald fari að komast í eðli­ legt horf, þar sem hann gaf nýlega út sína fyrstu plötu í tæp tíu ár. Platan heitir Dætur og verður eðlilega í forgrunni þegar hann opnar hlið gleðinnar, þótt eldri smellir muni að sjálfsögðu fljóta með. Drögum okkur úr híðinu Friðrik segir að honum og umboðs­ manninum hans, útvarpsmann­ inum Mána Péturssyni, hafi þótt nafnið smellpassa við tíðarand­ ann. Eðlilega kannski eftir rúm­ lega tveggja ára heimsfaraldur með tilheyrandi lokunum og almennu partí­ og vonleysi. „Ég og Máni vinnum nú allt saman og okkur fannst þetta nú aðallega bara fyndið og ekki meint sem einhver pólitísk yfirlýsing af minni hálfu,“ segir Friðrik hlæj­ andi. Nafnið grípi stemninguna hjá mannskapnum, sem getur vonandi bráðum slett úr klaufunum eins og kálfar að vori. „Opnum hliðin og „let’s go“. Vegna þess að mér finnst að þegar við von­ andi náum að opna hliðin, þá held ég að þetta verði lauflétt átak fyrir okkur að rífa okkur aftur til fyrra horfs,“ útskýrir Friðrik. „Það er nefnilega svo auðvelt fyrir okkur að fara ekki alveg alla leið, að halda okkur aðeins í híðinu. Og við viljum það ekki. Við viljum muna hvað það var gaman þegar við gátum um frjálst höfuð strokið.“ Viðbúinn áföllum Lítið hefur verið um viðburði und­ anfarnar vikur eftir að takmarkanir voru hertar í enn eitt skiptið, jafn­ vel það þúsundasta, í janúar. Friðrik segist aðspurður skynja viðburða­ þorstann og skilja vel að mörgum hafi þótt veturinn ansi langur. „Ég held við þurfum á þessu að halda. Þótt það sé fínt að hafa birtuna af snjónum núna, þá hef ég alveg oft verið í betra skapi fyrir snjó,“ segir Friðrik, merkilega léttur. „Ég held það séu rosalega margir sem eru einmitt bara viðburða­ þyrstir og bara þú veist, þótt það sé ógeðslega asnalegt að segja það, þrá bara að dansa þetta í burtu. Þessa blessuðu veiru og fara aðeins að sletta úr klaufunum,“ segir Friðrik sem lofar veislu í Silfurbergi en er þó eðlilega undir það búinn að kófið setji mögulega strik í reikninginn með einum eða öðrum hætti. „Það er bara raunveruleikinn þessa dagana. Það er þetta gamla góða, að vona það besta en búa sig undir það versta. Allt getur auðvitað farið til fjandans bara á morgun. En við vonum ekki.“ Stressaður en glaður Friðrik segist í skýjunum með við­ tökurnar við nýju plötunni sem kom út á streymisveitum í lok janú­ ar. „Því það eru tíu ár síðan ég gaf út plötu og þetta var áskorun fyrir mig og hreinlega átak að ráðast í heila plötu og smá stressandi að gefa hana út,“ segir Friðrik á einlægum nótum. Hann segist hafa tröllatrú á að það verði af tónleikunum. „Ég ætla ekki að spila mig sem ein­ hvern Nostradamus en eru ekki allir alltaf klárir í smá gleði og jákvæðni á þessum síðustu og verstu?“ spyr Friðrik hlæjandi og bætir við: „Já, já, já, sjáumst í Hörpunni bara 11. mars, fersk!“ n Galopnar hlið gleðinnar Friðrik Dór er meira en til í að kveðja veturinn og veiruna. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI 22 Lífið 11. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson, sölu- og markaðsfulltrúi. Sími: 550 5654 / jonivar@frettabladid.is Matur og heiMili lífsstílsblað Föstudaginn 18. febrúar mun sérblaðið Matur og heimili fylgja Fréttablaðinu. Sjöfn Þórðardóttir ritstjóri og stjórnandi þáttarins Matur og heimili mun ritstýra þessu blaði. Í blaðinu verðum við með umfjöllun um mat, skemmtileg viðtöl og innlit á falleg heimili svo eitthvað sé nefnt. Tryggðu þér auglýsingapláss í mest lesna dagblaði landsins. ATUR OG HEI ILI MEÐ SJÖFN ÞÓRÐAR Lifandi þáttur um matargerð í bland við innanhússarkitektúr, hönnun og fjölbreyttan lífsstíl. Þátturinn er á dagskrá alla þriðjudaga kl. 19.00

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.