Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA - 01.04.1937, Síða 3
Árið 1936 er liðið. Það hefir runnið sitt skeið
eins og öll önnur ár og er nú horfið í hinn mikla
stórasjó tímans, þar sem það hverfur brátt sjón-
um okkar eins og dropinn í hafinu. En minning-
arnar um gleði og harma, framtak og ónotuð tæki-
færi hins liðna árs, geymast þó um stund í hugum
þeirra, sem lifa til að læra. Og það er einmitt
reynslan, minningarnar um hið liðna, hvort sem
þær eru ljúfar eða sárar, sem eru óskeikulustu
kennarar einstaklinga og félagsheilda í þeirri list,
sem er æðri öllum fræðigreinum, en það er að lifa
lífinu sjálfum sér og öðrum til gagns og gleði.
Kaupfélag Eyfirðinga hefir lært það af reynsl-
unni, að skilningur og þekking er undirstaða
góðrar samvinnu. Þess vegna hefir það ákveðið að