Fregnir um félagsmál : til félagsmanna KEA - 01.04.1937, Blaðsíða 5
5
ar og lyfjafræðingar geta gengið úr skugga um,
að efnin í lyfin séu eins og þau eiga að vera. Mun
„Stjörnu Apótekið“ einhver fullkomnasta lyfjabúð
landsins, hvað þetta snertir.
Um reksturinn liggur engin greinargerð fyrir,
þar sem ekki hefir enn unnizt tími til að loka
reikningunum. Yæri líka fljótfærni að búast við
verulegum árangri af rekstri deildarinnar á fyrsta
ári. En jafnvel þótt það kunni að reynast svo,
að reksturinn gefi engan arð á síðastliðnu
ári, þá er óhætt að gefa miklar vonir um góðan
árangur í framtíðinni, ef félagsmenn hafa það
hugfast að láta félagið, og þar með sjálfa sig,
njóta viðskipta sinna. En reynsla síðasta árs hefir
sýnt, að töluverður hluti af viðskiptum lyfjabúð-
arinnar er við utanfélagsmenn. Þið félagsmenn-
irnir hafið aftur á móti ekki svipað því allir látið
félagið njóta viðskipta yðar með þessar vörur.
Sumum hefir þótt það kynlegt, að kaupfélagið
skyldi ekki lækka útsöluverð lyfjanna. Þetta hef-
ir ekki verið gert sakir þess, að útsöluverð þeirra
er ákveðið með lögum og verður því æfinlega að
selja lyf samkvæmt lyfsöluskrá. Hinsvegar getur
enginn haft á móti því, að samvinnufélög, sem