Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Qupperneq 9

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Qupperneq 9
Þegar AJþingið, Jónas Jónsson og Mentamálaráð ætlaði að troða verðlaunum á H. Kiljan Laxness fyr- ir að svívirða land sitt og þjóð. En Kiljan hefur að margra áliti eyðilagt hjartahreinleik þjóðanna með skrifum sínum og heiöindóms kjaftavaðli í útvarpið og víðar. Mér hrökk þessi vísa af munni fram: Lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína. Mentamálaráðið kvað verðlauna bófa, sem ljúga og svíkja og múta hér mest. I haus þeirra hlýtur laus vera skrúfa, eða þá þorskhausakvörn er þar að sest. Þeir hljóta að vera geðveikir mjög, þá upp þarf að bræða sem súreitrað smjör, og skapa þá upp sva alla að nýju og gjöra þá betri og vitmeiri menn. Ort með tíu sinnum meiri hraða en ég get skrifað Slökkvistöðinni, Reykjavík, 9. febr. 1941. Dr. Jóh. Kr. Jóhannesson. N.B. Mentamálaráð Islands eða Alþingi ætti nú á komandi ári að taka að sér útgáfu ljóða minna og bréfa, sem mér berast frá flestum valdhöfum og stjórnendum veraldar vorrar. Það mundi vera til góðs og blessunar fyrir Island og alla veröldina, sem ég elska þó að kristniboðshræsnarar segi að maður eigi ekki að elska heiminn. Það segja þeír vegna hug- arveilu, því Kristur elskaði syndarana og heiminn. Reykjavík, 5. apríl 1941. Jóh. Kr. Jóhannesson.

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.