Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Page 10
10
*
Dr. skáld»
Jóhannes Kr. Jóhannesson
Framnesveg 14 — Reykjavík — Island.
Sandskeið Narvik Berlín.
D. P. A. G.
12765901 8. febrúar 1941.
B e r 1 i n.
Félagi.
Hjartanlegar jóla og hamingjuóskir! Við aðdáend-
ur yðar og félagar í Stór-Pýskalandi höfum lengi
ætlað að senda yður bréf, en ferð féll ekki fyrr en
nú. Bráðlega verða ferðir á hverjum degi. Þá mun-
um vér geta sent yður appelsínur, epli og þurrkaða
ávexti (þeir styrkja mjög vel taugakerfið) svo og
nokkur kg. af dínamíti og íkveikjusprengjum, sem
bara punta upp á matariystina og hitaveituna. Kæri
félagi, hvernig er ástar.dið á Islandi? Er fólkið byrj-
að að falla úr hor Engiendingarnir úr hór? Hvern-
ig smakkast skósólarnir? Eru þeir ekki nokkuð seig-
ir? Er kvenþjóðin íslenska veik gagnvart Englend-
ingunum? Ef svo er, þá hafið þér fult umboð til þess
að tilkynna hinni íslensku kvenþjóð (svon í laumi),
að hver sú stúlka, sem leggst með Englendingum,
skuli, þá er við tökum Ísland, verða brennimerkt,
húðstrýkt og rassskelt daglega uns hún verður kvik-
sett í óvígðri moldu. Þetta loforð verður efnt, eins og
Öll þau heit, sem foringi vor hefir gefið alt til þessa.
Hér í Þýskalandi er gott að vera. Appelsínur, ban*
anar, buff og spælegg, lúðuriklingur, kæstur hákarl,
sigin ýsa, hvalrengi, alt fæst þetta í ríkum mæli, og
svo ódýrt að undrum sætir, sumt meira að segja gef-