Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Side 11
11
ins. Tröllasögurnar, sem Englendingar gefa út um
hallæri og matarskort í þessu landi, eru betri en
nokkrar Skotasögur. Hér flýtur alt í mat, bensíni og‘
olíu. Þýsk alþýða hefur aldrei lifað aðra eins sæld-
ardaga. Matarskömtun þekkist ekki lengur. Matar-
skömtun er rússneskt máltæki, nú aðalfæðutegund
enskra blaðamanna. Ensk alþýða sefur nú. eins og
sú lágfætta í grenum og skitakamarskanölum. Ensk
alþýða fær ekki lengur mannamat, heldur nærist hún
nú á fangafæðu og henni lélegri. Hún getur ekki
haldið þetta lengur út en í 2 til 3 mánuði. Þá mun
Foringinn hafa lokið fyrsta hluta skemdarverks síns.
Þá mun hann gefa hinni tannlausu ensku alþýðu mat,
ný hús, menskra hús, ekki closett af þriðju gráðu.
f Þá mun Hann láta rækta stórjarðir ensku lordanna
, og gefa fátækum kartöflur, rófur og næpur, þá mun
hin enska þjóð aftur fá tennur og gerfitennur hverfa.
Þá mun hin breska aiþýða brosa söddum maga í fyrsta
skifti í 1500 ár. Þá mun kynvilla hverfa og karlmenn
klæðast buxum en eigi pilsum. Hin enska alþýða mun
elska Foringjann heitar en hin germanska þjóð. Fleng-
ríðandi lordar með halarófu geltandi hunda á hæl-
um sér munu hverfa úr sögunni. 1 stað þeirra munu
starfandi verkamenn rækta jörðina, reisa verksmiðj-
ur, heilsuhæli, leikhús, hljómleikasali, skóla allra teg-
unda; í stuttu máli leggja grundvöllinn að menningu
alþýðunnar í Englandi; hún mun læra að lesa og
skrifa, hirða sig, kemba hár sitt og þvo, ganga djarf-
mannlega, bera höfuðið hátt, öll sálarlíkþorn munu
hverfa (þeirra á meðal vanmáttarkendin) þannig mun
Foringinn gera Englendinga að mönnum, breyta þeim