Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Side 12

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 01.08.1941, Side 12
/ 12 úr skítugum ko.Ia- og járnþrælum í fagra og hugs- andi menn. Hinn úrkynjaði lordalýður og business- bisar verða sendir til Manareyjar og einangraðir þar uns þeir deyja út. Faðir foringjans kyntíst yður þá er þér voruð við trésmíðanám í Danmörku hér fyr á árum. Hann varð fyrir djúpum og vanalegum áhrifum af yður; sonur hans (Foringinn) drakk í sig áhrif yðar., því karl- inn var sí og æ að segja syninum frá hinum þvölu kenningum yðar. Þannig á þýska byltingin að rekja rætur sinar til yðar, þess mun verða minnst síðar, yður á ógleymanlegan hátt svo og- öllum mannheimi. Vorsóknin mikla er um það bil að hefjast. Bláeygir, norrænir víkingar, munu herja á ríki Georgs Engla- konungs og brjóta það undir sig á fám tímum. Þá mun andi yðar og Foringjans leika um Norðurálfi og guðsríki hefjast á jörðu, án sálmasöngs cg bænakvaks. Að endingu bið ég yður að vera vel á verði gegn illvættum, alþingismannabósum og forskrúfuðum ætt- arnafna-senditíkum vissra stórvelda. Ef í harðbakka slær, þá leitið á náðir ameríska. konsúlsins. Sjáumst vonandi í lifanda lífi, ef ekki, þá í Val- höll, þar sem Hindenburg, Egill Skallagrímsson og Grettir Ásmundarson búa. Kvaddir kveðju Foringjans, yðar ævarandi félagi Dr. Joachim ron Hunderikrojyp forstjóri Áfengisverslunar Stór-Þýskanalds. Via Narvik.

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.