Fréttablaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 12
Stundum þusa ég í henni Fjólu minni að þessi texti sem við erum að hlusta á í útvarpinu sé nú óttalegt torf. En þá hnippir hún í mig og segir að þetta sé nú raunar eftir mig. Yndislegi pabbi minn, ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, Gunnar Sigurbjörn Indriðason lést þann 16. febrúar 2022. Ljúfar minningar um ástríkan pabba, son, kærleiksríkan bróður og frænda, mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Yndislegur, hlýr, hjálpsamur og umfram allt umhyggjusamur fjölskyldumaður. Við elskum þig. Góða ferð, elskurinn okkar. Rakel Mist Gunnarsdóttir Kolbrún Ævarsdóttir Jón Pétursson Sigurrós Yrja Jónsdóttir Elmar Þór Björnsson Ævar Indriðason Pétur Jónsson Kara Mist Jónsdóttir Jonas Nørskov Darri, Máni, Rökkvi, Bastían Björn og Birnir Sölvi Okkar kæra frænka, Nanna Franklínsdóttir sem lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði föstudaginn 11. febrúar, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 26. febrúar klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast Nönnu er bent á styrktarsjóð við sjúkrahúsið á Siglufirði, kt. 491213-0860, reikn. 0348-13-300089. Streymt verður frá athöfninni: https://www.youtube.com/watch?v=cESUXkgkY7c Fyrir hönd ættingja og vina, Guðmundur Albertsson Óskar Albertsson Sigurmar Albertsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð Ísafold, Strikinu 3, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold laugardaginn 12. febrúar. Útför fer fram frá Vídalínskirkju mánudaginn 28. febrúar klukkan 13.00. Kærar þakkir til starfsfólks Ísafoldar fyrir hlýju og góða umönnun. Hægt er að nálgast streymið frá athöfninni hér: https://youtu.be/dYbFwXjyEDk Halldór Waagfjörð Birna Ben Kristinn Waagfjörð Hjördís Sigmundsdóttir Grímur Rúnar Waagfjörð Helga Gunnarsdóttir Þorsteinn Waagfjörð Sigrún Snædal Logadóttir Rósa Maria Waagfjörð Einar Ingason Már Viktor Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur frændi okkar, Sigfús Brynjólfsson fv. leigubifreiðastjóri, áður til heimilis að Skeiðarvogi 20, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 20. febrúar. Útförin fer fram frá Langholts- kirkju mánudaginn 28. febrúar kl. 13. F.h. aðstandenda, Brynja Áslaug Sigurðardóttir Hörður Fossberg Harðarson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, Jóhann Gunnar Friðjónsson lést á hjúkrunarheimilinu Eir þann 17. febrúar sl. Útför hans verður kl. 15.00 í Grafarvogskirkju, þann 2. mars nk. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Ólafía Egilsdóttir og fjölskylda Þegar dægurlagasaga Íslendinga er skoðuð má heita svo að Þor­ steinn Eggertsson sé þjóðskáld Íslendinga. Enginn textasmiður á landinu hefur sett saman jafn mörg söngkvæði og Suðurnesja­ maðurinn síkáti sem fagnar átt­ ræðisafmæli í dag. ser@frettabladid.is Og hann vílar ekki fyrir sér alla áratug­ ina sem eru að baki, heldur ætlar hann sér að fara mikinn með hljóðnemann á lofti í Salnum í Kópavogi í kvöld, svona í tilefni dagsins, en stífar æfingar hafa farið fram í húsakynnum Félags íslenskra hljómlistarmanna undan­ farna daga, „enda má ekkert klikka þegar rokkið er annars vegar,“ eins og hann segir, glaður í bragði og fullur til­ hlökkunar. Fæddur heima hjá afa og ömmu Hann er fæddur í Túngötu 10 í Kefla­ vík 25. febrúar 1942, „í hvorki meira né minna en miðri heimsstyrjöld,“ eins og hann orðar það, en Ísland var þá her­ numið land af Bretum og síðar Banda­ ríkjamönnum. Túngatan var heimili afa hans og ömmu, en foreldrar Þorsteins voru þá að byggja sér hús úti í Garði sem varð leik­ völlur kappans frá því á öðru ári fram að fermingu, en þá flutti fjölskyldan aftur til Keflavíkur. Þorsteinn er frumburður foreldra sinna, þeirra Guðrúnar Jónsdóttur mat­ ráðs á Sjúkrahúsinu í Keflavík og Eggerts Jónssonar, sjómanns og síðar pípulagn­ ingamanns í bænum, en þau áttu síðar eftir að eignast Guðfinnu og Jón Þorstein á sama áratug og Þorsteinn er fæddur á, en löngu seinna kom svo örverpið Guð­ rún í heiminn, herrans árið 1961. Þetta byrjaði með Kananum Hann minnist æskuáranna með brosi sem nær ekki síst til augnanna, fjaran í Garðinum hafi verið besti leikvöllur í heimi – og svo þegar fjölskyldan flutti aftur til Keflavíkur hafi rokkið byrjað með slíkum látum að ekki varð aftur snúið. „Þetta byrjaði náttúrlega með Kanan­ um sem kom í bæinn á opnum jeppum og kastaði tyggjóbréfum yfir mannskap­ inn sem hafði náttúrlega aldrei upplifað annað eins,“ segir Þorsteinn og segir þessa æskuminningu enn þá standa sér ljóslifandi fyrir augum. „Svo fór mamma að hækka í útvarp­ inu. Hún var ekki nema átján árum eldri en ég og rokkið hreif hana upp úr skónum við eldhúsborðið, rétt eins og mig náttúrlega, litlu yngri gaurinn – og saman fórum við að syngja hástöfum lög á borð Come on a my house með Rose­ mary Clooney „og guð minn almáttugur hvað okkur mæðginunum fannst gaman að taka undir,“ rifjar Þorsteinn upp. Svo fór að heyrast í hverjum ameríska rokkaranum af öðrum – og Þorsteinn minnist sérstaklega grúppunnar The Deep River Boys en þeir gaurar vöktu fyrstir manna athygli á hinu ódauðlega lagi Rock around the Clock sem grúi rokkara hefur leikið eftir, svo til allar götur síðan. Allt breyttist með Ingimari Eydal „En svo breyttist allt þegar ég kynnt­ ist Ingimar Eydal í Héraðsskólanum á Laugarvatni 1958, en hann hafði komið auga á fótstigið píanó í einni kennslu­ stofunni – og þá var ekki aftur snúið,“ segir Þorsteinn og segir að þar með hafi söngferillinn byrjað. Þeir Ingimar hafi spilað annan hvern laugardag í stofunni við mikla hrifningu – og stundum bætt­ ust svo þeir Gísli Johnsen og Jón Símon­ arson við með trompet og trommur „og það skipti náttúrlega öllu fyrir taktinn,“ segir Þorsteinn og kemst í gamalkunn­ an ham. Harry Belafonte var mikið tekinn í byrjun „og hann var svo skýrmæltur að ég gat sungið hann á enskri tungu svo allir skildu,“ útskýrir Þorsteinn, en heldur hafi hlutirnir farið að f lækjast þegar herma hafi átt eftir Elvis Presley og Little Richard, „en þeir voru svo óskýrir að ekki heyrðust orða skil,“ bætir hann við. Og teningunum var þá kastað. „Ég byrjaði bara að semja mína eigin texta við lögin þeirra,“ rifjar hann upp og eftirleikinn þekkir íslenska þjóðin sem æ síðan hefur sungið texta Þor­ steins, sem fyrir langa löngu eru orðnir sígildir á samkomum fólks. Man ekki fjölda textanna Hann man ekkert hvað hann er búinn að semja marga texta fyrir Hljóma, Trú­ brot, Brimkló, Ðe Lónlý Blú Bojs, Þú og ég og svo óendanlega margar grúppur aðrar og ótal marga tónlistarmenn, en „maður hættir að telja þegar textarnir eru orðnir nokkur hundruð,“ segir hann af alkunnri hógværð sinni. „Stundum þusa ég í henni Fjólu minni,“ segir Þorsteinn og á við heitt­ elskaða Jóhönnu Fjólu Ólafsdóttur „að þessi texti sem við erum að hlusta á í útvarpinu sé nú óttalegt torf. En þá hnippir hún í mig og segir að þetta sé nú raunar eftir mig. Og þá skelli ég bara upp úr, segi si sona að maður geti nú ekki munað eftir öllu sem maður hefur gert,“ segir afmælisbarnið sem á von á gestum í Safnaðarheimili Kópavogs­ kirkju klukkan 16.00 í dag, en tónleik­ arnir hefjast svo í Salnum klukkan 20.00 í kvöld. n Textaskáld Íslands er áttrætt Þorsteinn Eggertsson á æfingu fyrir tónleika kvöldsins, ásamt ektafrú sinni Jóhönnu Fjólu Ólafsdóttur, en áttræður ætlar hann að æra Salinn í Kópavogi í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sjá einnig síðu 28 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.