Fréttablaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 16
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Verbúðin hefur átt hug og hjörtu landsmanna undan- farnar vikur og þeir tekið ástfóstri við persónur þátt- anna. Gói Karlsson leikur Einar, eiginmann Freydísar, og nutu þau mikilla vinsælda bæði sem persónur og fyrir hug sinn til samfélagsins. Tekið var eftir í þáttunum hversu vel náðist að fanga tíðarandann, hvort sem það var samfélagið í heild, klæðaburðurinn eða mat­ seld. Ýmislegt var í boði í þátt­ unum sem vakti upp minningar um drykkjar­ og matarvenjur fólks hér árum áður. Við fengum Góa til að leyfa lesendum að skyggnast aðeins inn í hans hefðir og siði í matargerð. „Við hjónin elskum að búa til og ekki síður að borða góðan mat. Það er eitthvað svo ótrúlega heilandi að standa í eldhúsinu og möndla einhverja dýrindis máltíð. En við erum líka ótrúlega dugleg að klára matinn. Hér er engu hent. Inga, kona mín, er snillingur í að áætla magn af því sem við þurfum þann­ ig að það er ekki matarskortur á heimilinu og aldrei sóun, sem er mjög mikið atriði. En þegar það er afgangur þá græjum við eitthvað gott úr honum,“segir Gói. Geggjuð nostalgía Gói á sína uppáhaldsrétti sem minna á níunda áratuginn. „Pytti­ panna er auðvitað algjör klassík og pínu níunda áratugar stemning. Demba öllu á pönnu og henda svo kannski einu spældu eggi yfir og matur gærdagsins umbreytist í mat dagsins í dag. Ég er reyndar svo skrítinn að mér finnst fátt betra en kaldur matur daginn eftir. Í sérstöku uppáhaldi er steiktur fiskur í raspi, kaldur daginn eftir. Set afganginn á brauð, sker kaldar kartöflur í þunnar sneiðar, steikt­ an lauk, remúlaði og súrar gúrkur. Þetta er hið himneska smørrebrød. Stundum þegar ég er í miklu stuði geri ég remúlaðið sjálfur. Það er pínu eitís nostalgía í þessu hjá mér því ég man vel eftir þegar ég fór í Freyjubúðina sem gutti til að kaupa ýsuflök af Halla og svo fékk ég að skrifa hjá Konný, algjör lúxus að vera með kaupmann á horninu sem hægt var að skrifa hjá. Það var nú reyndar kaupmaður á hverju horni þarna sem gerði þetta enn meiri lúxus. En svo þegar heim var komið þá velti mamma flökunum upp úr eggi og raspi og steikti. Herramannsmatur. En daginn eftir var hátíð því þá var steikti fiskurinn borinn fram Gói elskar kaldan steiktan fisk á smurbrauði Uppáhaldsrétturinn er brauð með steiktum fiski í raspi með kartöflum og lauk. MYND/AÐSEND Gói nostrar við réttinn áður en hann er snæddur. í boði í þáttunum, smökkuðuð þið allt? „Drykkina smakkaði ég því ég þurfti að drekka þá. Ég fékk ekki tækifæri til að smakka neitt af því sem var á boðstólum í þáttunum ef ég man rétt. Borðaði þeim mun meira af majó­sam­ lokum og drakk enn meira af kaffi. En kannski er sá matur sem flestir tóku eftir svikinn héri sem Harpa bjó til fyrir Grím. Þetta er auðvitað matur sem var mikið eldaður á þessum tíma. Þá annað hvort með kjötfarsi eða hakki. Svo var beikoni vafið utan um. Það er nú reyndar saga að segja frá því að 1992 þá var ég 12 ára og bauð ömmu og afa í mat. Þá eldaði ég svikinn héra upp úr einhverri Disney­matreiðslubók. Þannig að það eru góðar minningar tengdar þessum rétti.“ Margir muna eftir bláu bollunni úr þáttunum. Var hún góð? „Bláa bollan var ljómandi góð. Eins og Einar segir í þættinum þá var ekkert áfengisbragð af henni. Mig grunar að þau hafi sleppt því að setja vín í bolluna sem eru auðvitað glæpsamleg svik við áhorfendur. Það var eins með messuvínið sem var bara einhver sólberjasafi. Allt í plati.“ Smørrebrød með steiktum fiski Það er auðvitað allt leyfilegt í þess­ ari uppskrift og ég mæli með því að hver og einn geri sína útgáfu. Sam­ lokubrauð (má vera gróft brauð og ég hef líka notað sólkjarnarúg­ brauð sem er mjög gott með þessu). Mér finnst gott að smyrja brauð­ ið með Dijon­sinnepi en það er einfaldlega vegna þess að ég elska sinnep. Það kemur líka svo gott bragð og pínu kikk af því. Svo set ég fiskinn ofan á. Ég sker kartöflurnar í þunnar sneiðar. Það má alveg sleppa kartöflunum. Kaldar kart­ öflur með köldum steiktum fiski er mjög gott. Mæli með. Svo er það sletta af remúlaði. Steiktur laukur. Oftast steiki ég hann sjálfur. Gott að láta hann brúnast alveg þannig að hann er á mörkunum að brenna. Þetta er spurning um sekúndu milli fullkomnunar og hryllings. Þannig að um leið og laukurinn fer að taka lit þarf að fylgjast vel með og vera tilbúinn að kippa honum af pönnunni. Ég steiki hann upp úr smá olíu og smjöri. Að lokum súrar gúrkur. Sýran með steikta fiskinum og lauknum býr til hið fullkomna bragð. Búmm, ja! Tilbúið! Ég ætla ekki að gera lítið úr þessu því þetta er svo fljótlegt og einfalt, það er yfir­ leitt alltaf best. n á brauði. Ég hljóp heim úr skól­ anum og pabbi græjaði þetta fyrir okkur í hádeginu. Þannig að það er geggjuð nost algía tengd þessari uppskrift.“ Einar borðaði aldrei í mynd „Maturinn sem við fengum á tökustað Verbúðarinnar var ekki í anda tímabilsins. Það var nú bara strangheiðarlegur matur, sam­ lokur, ávextir og nóg af kaffi. Þetta er svona standard á setti. Kaffi og majó. Ég held að Einar bless­ aður borði aldrei í mynd en hann drekkur kaffi og reykir ótæpilega og svo drekkur hann auðvitað sódastream með bragðefni og svo auðvitað bláu bolluna.“ Ýmiss konar matur og drykkur er FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Velferðarþj nusta Fimmtudaginn 3. mars gefur Fréttablaðið út sérblað um Velferðarþjónustu. Innan elferð rþjónustu eiga heima heimahjúkrun, velferðartækni, fjarheilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfun, endurhæfing, hjálpartæki og annað se snýr að eldri borgur m og langveikum, en einnig margt sem viðkemur börnum. Síðustu 22 mánuðir hafa verið afar sérstakir svo ekki sé meira sagt og viljum við gera allri velferðarþjónustu góð skil. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við: Jóhann Waage, sölu- og markaðsfulltrúa Sími 550 5656 / johannwaage@frettabladid.is ALLT kynningarblað 4FÖSTUDAGUR 25. febrúar 2022

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.