Fréttablaðið - 25.02.2022, Side 26
Mig langaði til að gera
eitthvað öðruvísi og
bjóða upp á fjölbreytni
á tónleikum.
Af sögu og söng, drápsmanni
og dansi, er yfirskrift tón-
leika í Salnum sunnudaginn
27. febrúar klukkan 17.00.
Dagskráin er afar fjölbreytt. Kol-
beinn Jón Ketilsson tenór syngur
lög eftir Sigvalda Kaldalóns og
Edvard Grieg, f lutt verða tvö stutt
dansverk eftir Guðna Franzson og
dansari verður á sviðinu. Auk þess
verður sagt frá sögulegum morð-
ingja.
Kolbeinn Jón Ketilsson býr í
Noregi. Hann hefur sungið mörg
stærstu tenórhlutverk óperubók-
menntanna, komið fram í óperum
á öllum Norðurlöndunum, í Norð-
ur-Ameríku og víðs vegar um Evr-
ópu og starfað með mörgum þekkt-
ustu hljómsveitarstjórum heims.
Einnig hefur hann unnið með
leikstjórum á borð við Jonathan
Miller og Carlos Saura. Auk þess að
syngja í óperum kemur Kolbeinn
einnig reglulega fram á tónleikum
sem ljóðasöngvari og einsöngvari í
hljómsveitarverkum.
Dans á sviði
Um hug my ndina að þessum
óhefðbundnu tónleikum segir
hann: „Mig langaði til að gera eitt-
hvað öðruvísi og bjóða upp á fjöl-
breytni á tónleikum. Dagskráin
tengist Íslandi og Noregi. Ég syng
lög eftir Sigvalda Kaldalóns og
Edvard Grieg við undirleik norska
píanóleikarans Thormod Rønning
Kvam. Þýðingar Reynis Axelssonar
á ljóðum Grieg-söngvanna verðar
lesnar áður en lögin eru sungin.
Þarna verða einnig frumf lutt
tvö stutt dansverk eftir Láru Stef-
ánsdóttur við tónlist eftir Guðna
Franzson. Fyrri dansinn heitir Yfir
hafið og þar getum við ímyndað
okkur Ingólf Arnarson og Hjör-
leif fara yfir hafið með allt sitt lið.
Seinni dansinn nefnist Nýtt líf og
túlkar nýtt líf í nýju landi, þegar
landnámsmennirnir byrja að koma
sér fyrir. Marinó Máni Mabazza er
dansari í báðum verkunum.“
Merkilegur maður
Sagnaritarinn Þormóður Torfason
(1636-1719) fær sérstaka umfjöllun
á tónleikunum. Hann bjó mestan
hluta ævi sinnar í Noregi, þýddi
fornsögur og skrifaði mikið rit um
sögu Noregs. „Ævi hans var við-
burðarík, hann varð mannsbani,
dæmdur til líf láts en var síðan
sýknaður. Á tónleikunum bregður
Pétur Eggerz sér í hlutverk þessa
merkilega manns. Auk þess verður
skotið inn örstuttum sögubrotum
úr sameiginlegri sögu Íslands og
Noregs fyrstu aldirnar eftir land-
nám,“ segir Kolbeinn Jón.
Hann segist hafa fundið fyrir
Býður upp á óvenjulega tónleika
miklum áhuga á verkefninu. „Alls
staðar þar sem ég hef kynnt það
hefur því verið tekið af miklum
áhuga.“
Dagskráin verður einnig f lutt í
Hofi á Akureyri og í Edinborgar-
húsinu á Ísafirði og einnig í Osló
og Drammen í mars. ■
Kolbeinn segist
hafa fundið fyrir
miklum áhuga á
verkefninu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Marinó Máni
Mabazza dansar
í tveimur dans-
verkum.
MYND/AÐSEND
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
kolbrunb@frettabladid.is
Þriðjudaginn 1. mars klukkan 12
mun Hanna Þóra Guðbrandsdóttir
sópran koma fram á hádegistón-
leikum ásamt Antoníu Hevesi
píanóleikara. Á tónleikunum, sem
bera yfirskriftina Ástin og dauðinn,
verða meðal annars fluttar aríur eftir
ítölsku tónskáldin Puccini og Verdi.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12
og standa yfir í um hálfa klukku-
stund. Aðgangur er ókeypis. ■
Ástin og dauðinn
kolbrunb@frettabladid.is
Verkið Mall, dansgjörningur með
lifandi tónlistarflutningi eftir Sögu
Sigurðardóttur með danshópnum
Forward, verður sýnt í Smáralind á
morgun, laugardaginn 26. febrúar,
og er hluti af dagskrá Daga ljóðsins
í Kópavogi.
Verkið hefur verið sýnt í Mjódd og
á Danse Festival Barents í Hammer-
fest 2019. Forward with dance er
danshópur fyrir dansara á aldrinum
18-25 ára, sem hafa góðan grunn í
dansi, hafa lokið framhaldsbraut
í listdansi og/eða hafa áhuga á að
þróa sig sem danslistamenn. ■
Dans í Smáralind
Hanna Þóra
Guðbrands-
dóttir
Dansað verður í Smáralind.
kolbrunb@frettabladid.is
Í næstu viku, föstudaginn 4. mars,
klukkan 17-20 verður útsala opnuð
í sýningarýminu Open að Granda-
garði 27. Sýningin markar einnig
fjögurra ára afmæli rýmisins.
Yfir 500 verk frá 100 listamönnum
verða sýnd í Útsölu! Útsölu! Útsölu!
Verkin sjálf verða reyndar ekki til
sýnis, einungis útprentaðar myndir
af þeim sem verða hengdar upp á
vegg. Verkin eru í öllum möguleg-
um miðlum: Málverk, ljósmyndir,
vídeó, skúlptúr o.s.frv. Sumir lista-
menn hafa kosið að sýna eldri lista-
verk á meðan aðrir hafa framleitt ný
sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Open hefur boðið þessum stóra
hópi listafólks að selja verk á afslætti
og stendur útsalan yfir helgina 4.-6.
mars. Öll verkin á sýningunni eru
seld á góðum afslætti, en rýminu
verður skipt upp í fjóra afsláttar-
flokka: 25%, 50%, 75% og 2 fyrir 1.
Kaup og af hending verkanna fer
fram milli kaupanda og listamanns. ■
Útsala á
listaverkum
Verk eftir Tuma Magnússon.
kolbrunb@frettabladid.is
Elísa bet Jök uls dótt ir og Steinar Bragi
eru til nefnd til Bók mennta verðlauna
Norður landaráðs 2022 fyrir Íslands
hönd. Hún fyrir skáldsöguna Apríl-
sól arkuldi og hann fyrir skáldsöguna
Trufl un in. Verðlaun in verða afhent
1. nóv em ber í Hels inki.
Um bók Elísabetar Apríl sól ar-
kulda segir meðal annars í rökstuðn-
ingi dómnefndar: „Elísa bet fjall ar á
til finn inga næm an og ljóðræn an
hátt um vandmeðfarið efni og gæðir
efnivið sinn töfr um sem læt ur eng an
ósnort inn.“ Um skáldsögu Steinars
Braga Truflunina segir dómnefnd
meðal annars: „Spurn ing arn ar sem
vakna við lest ur þess ar ar bók ar eru
viðamikl ar meg in spurn ing ar, meðal
ann ars um vís indasiðgæðið og nú-
tím ann.“ ■
Elísabet og Steinar Bragi fulltrúar Íslands
Elísabet Jökuls-
dóttir ásamt
barnabarni sínu
tekur við viður-
kenningunni.
Sigþrúður
Gunnarsdóttir
hjá Forlaginu var
fulltrúi Steinars
Braga.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
FÖSTUDAGUR 25. febrúar 2022 Menning 18FRÉTTABLAÐIÐ