Fréttablaðið - 08.03.2022, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 08.03.2022, Blaðsíða 9
GRILLAÐUR – PÖNNUSTEIKTUR – OFNBAKAÐUR Borinn fram með fersku salati, smælki, og citrus beurre blanc. APOTEK Kitchen + Bar Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is MARS TILBOÐ 1.990 kr. á mann FRÁBÆR Í HÁDEGINU FISKIVEISLA 3 tegundir af ferskasta fiski dagsins Samkvæmt lesfimiprófum Mennta- málastofnunar hefur frá síðustu aldamótum um það bil þriðjungur 15 ára nemenda verið á rauðu í grunnfærni í lestri, en í janúar 2022 var hlutfallið 36%. Niður- stöður PISA fyrir árið 2018 sýndu að einn þriðji hluti drengja og helmingur nemenda af erlendum uppruna hafði ekki lágmarksfærni í lesskilningi. Staðan er nokkuð alvarleg því kröfur um lestrarfærni hafa síður en svo minnkað síðustu áratugi, heldur þvert á móti hefur lestrariðkun sífellt orðið fjölbreytt- ari og f lóknari. Nú leitum við okkur þekkingar á margs konar miðlum, ómælt magn upplýsinga er sett fram á margvís- legan hátt. Ekki nægir lengur að geta lesið texta og skilið innihald hans, heldur þurfum við að átta okkur á því að sumt sem við lesum er lygi, annað eru ályktanir eða skoðanir, og svo er að finna þekk- ingu sem hvílir á rannsóknum. Góð lestrarfærni verður ekki til bara þegar ráfað er á netmiðlum með ákveðna leit í huga. Læsi byggir á reynslu hvers einstaklings – fyrst er það málörvun á heimilum og síðan virk þátttaka í skólastarfi. Öll börn eiga rétt á því að taka virkan þátt í skólastarfi, hvað svo sem skólafyrirkomulagið heitir, skóli án aðgreiningar, skóli fyrir alla, einstaklingsmiðað nám. Það sem skiptir öllu máli er að hver kennslustund nýtist hverju barni til framfara. Málþroski og læsi barna fer eftir því hversu góð tækifæri þau fá til að hlusta á sögur og segja sögur, tala saman um nýja þekkingu, velta fyrir sér ólíkum sjónarhornum. Í hvert sinn sem ákveðin viðfangs- efni eru tekin fyrir í mállegum samskiptum, jafnvel með ungum börnum í leikskóla, er lagður grunnur að framtíðarfærni barna í að af la sér þekkingar og nýta sér hana. Íslenskufærnin eykst síðan þegar börn lesa sjálf, og sum börn þurfa meiri stuðning en önnur, mark- vissan stuðning með kennsluað- ferðum sem rannsóknir sýna að skila bestum árangri. Tungumál í virku skólastarfi, í leik-, grunn- og framhaldsskólum, er mun ríkulegra en tungumálið sem notað er á heimilum. Jafnvel þótt fjallað sé um málefni líðandi stundar við eldhúsborðið, eins og f lóttamannastrauminn nú, verður umræðan aldrei sambærileg við markvissa umfjöllun í skólastarfi sem nýtt er á ýmsum sviðum náms- ins, í samfélagsfræði, íslenskutím- um og náttúruvísindum. Þegar málefni eru rædd í öf lugu skólastarf i á dýptina, þekking aukin og unnið með nýjar upplýs- ingar í rökræðum og síðan í rituðu máli verður umfjöllunin miklu ríkari, tungumálið verður mun fjölbreytilegra en í samtali með fjölskyldu og vinum. Í árangurs- ríku skólastarfi nær læsisfærnin, íslenskufærnin að blómstra. Í skól- anum eru tækifærin mest og best fyrir málþroska og læsi barna og fyrir íslenska tungu. En höfum við veitt styrki í slíkt skólastarf? Fá kennarar á öllum skólastigum viðurkenningu, laun, hvatningu og stuðning í samræmi við þetta mikilvæga hlutverk í starfi þeirra með börnum? Kenn- arar sem ræða á íslensku við börn um stærðfræði, náttúruvísindi, sa m félag sf r æði, bók mennt ir. Öll þessi íslenska sem notuð er á hinum ýmsu sviðum skólastarfs með börnum frá tveggja ára aldri og í gegnum allt skólakerfið. Við höfum styrkt máltækni fyrir íslensku, til að við getum rætt á íslensku við bílana, snjalltækin og annað, sem er hið besta mál. Við þurfum að geta notað íslensku í daglegu lífi á tækniöld. En hvaða tungumál er það sem við notum við snjalltækin okkar í daglegu amstri? Er það námstengt tungu- mál? Sennilega á einhverjum svið- um, en litlar líkur eru á því að við notum í samtölum við tækin okkar orð eins og orsakir, af leiðingar, ógn, framvinda, hagsmunir, for- dómar, fordæma, hlutleysi, afstaða, gefa eftir, gefast upp, af því leiðir, í hnotskurn. Tal við tækin á íslensku eða af þreying á íslensku, það er aldrei tungumál sambærilegt við tungu- málið sem notað er í innihaldsríku skólastarfi. Íslensku stendur engin ógn af því að börn og ungmenni noti ensku og önnur tungumál í frítíma sínum, í raun er það mjög æskilegt og sjálfsagt. Miklu meiri hætta stafar af því að börn séu meira og minna óvirk í skólastarfi, fjögur ár í leikskóla og síðan tíu ár í grunnskóla, fyrir lífsgæði barna, lýðræðið og samfélagið í heild. Börn sem skilja lítið og tala lítið, börn sem ná ekki tökum á lestri og börn sem lesa og skrifa sjaldan, það er staða sem er óásættanleg. Íslenskufærni ef list fyrst og fremst í virku skólastarfi, þegar nemendur fá tækifæri til að lesa, tala saman og skrifa, og læra marg- vísleg orð, m.a. orð sem eru lykill að f lókinni hugsun. Þegar nemendur nota svo orðin í umræðum og ritun má segja að þau hafi eignast orðin. Með f lókinni umræðu fylgir fjöl- breytilegt tungumál: Fjölbreyti- legur orðaforði, málfræði og setn- ingagerð. Gefum börnunum slíkt tungu- mál, að þannig tungumál verði þeirra. Þá verða þau sífellt betur í stakk búin til að hugsa um og ræða f lókin málefni og leita sér þekk- ingar víða, á íslensku, ensku og f leiri tungumálum. Að íslenskan verði allra barna í íslenskum skólum, með öllum þeim blæbrigðum sem nemendur þurfa á að halda fyrir þekkingu sína og visku og ófyrirsjáanlega framtíð. Við þurfum að gefa kennurum og skólabörnum stuðning, svigrúm og möguleika á því að vinna á svo árangursríkan hátt með málþroska og læsi. Við þurfum að veita styrki í þróun málef landi skólastarfs og rannsóknasamstarf sérfræðinga á sviði málþroska, læsis og íslenskra fræða. Jafnframt þarf að létta álagi af kennurum með því að ráða f leira fagfólk inn í skólana. Það væru göfug skref börnunum til heilla. n Íslenska og læsi í skólastarfi Dr. Sigríður Ólafsdóttir lektor á Mennta- vísindasviði Háskóla Íslands Íslenskufærni eflist fyrst og fremst í virku skólastarfi, þegar nem- endur fá tækifæri til að lesa, tala saman og skrifa, og læra margvís- leg orð, m.a. orð sem eru lykill að flókinni hugsun. ÞRIÐJUDAGUR 8. mars 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.