Alþýðublaðið - 16.01.1920, Síða 2

Alþýðublaðið - 16.01.1920, Síða 2
2 ALPÝÐUBL AÐIÐ mönnum og meðalstéttunum, sem sá, er vaknaði við hættuna, er stafaði af gagnbyltingunni. Til vopna! var óp allra og hugsun. Borgir og þorp keptust ym að senda sérstakar sveitir til hinna ýmsu vígstöðva, til að verja byltinguna. Liðhlaupar og flótta- menn komu af frjálsum vilja og grátbændu um að verða teknir aftur upp í rauðu hersveitirnar. Samvinna við mensivika og »vinstri byltingamenna. Á þessum tíma þrefaldaðist meðlimatala komunistiska eða bolsivíkaflokksins, ög sumstaðar tífaldaðist hún. Mensivíkar og „vinstri-byltingamenn", sem áður höfðu látið sér nægja að andmæla innrásinni, vöknuðu nú við vopna- brak keisarahershöfðingjanna og tóku að veita stjórninni allan þann styrk, er þeir máttu. Lét Koltschak strýkja menn og konur með birkilurkum? Menn úr fyrnefndum flokkum komu nú fram á sömu ræðustól- um og kommúnistarnir og hvöttu skoðanabræður sína til að gleyma öllum fyrri deilum vegna hinnar sameiginlegu hættu, og þeir víg- bjuggu þá til vígstöðvanna. En mestur styrkur kom frá bændun- um í þeim hlutum Rússlands, sem Koltschak og Denikin höfðu tekið. í þeim sveitum, sem íbúarnir höfðu kent á barðinu á því fyrir- komulagi, sem keisarasinnar vildu koma aftur á fót og þar sem varla nokkur karl eða kona hafði sloppið við húðstrok, gáfu allir sig íram til að berjast fyrir bolsivíka- stjórnina. Á þenna hátt höfum vér getað dregið stórar hersveitir frá austurvígstöðvunum og látið menn þar eina um að gera upp við Koltschak. Að því er snertir vigbúnaðinn, stóðu hinir hvítu herir betur að vígi, því þeir höfðu verkfæri, sem fundin voru upp i ófriðnum sjálf- um og Bandamenn og Miðveldin höfðu séð þeim fyrir. En það er ekki sama að smíða tanks og flugvélar og að telja rússnesku bændunum trú um að þeir eigi að berjast gegn löndum sínum fyrir keisarastjórnina. Þvert á móti hefir bolsivíkunum aukist ás- megin á kostnað hinna hvitu, því stöðugt hlaupa fleiri úr liði hinna siðarnefndu. Af þessari ástæðu myndi það vera gróði fyrir kom- munistaflokkinn að haida hernað- inum áfram. (Frh.). fri DSnutn. Khöfn 14. jan. Fólksþingið var sett í gær. And- stöðuflokkar stjórnarinnar heimta að kosningar fari strax fram. Zahle svarar, að kosningar fari fram þegar samþykt hafi verið kosningalögin og grundvallarlögin nýju. „Hvítbókin" um Suðurjótland er komin út. Atkvæðagreiðslan um það, hvort Suðurjótar vilji vera með Þjóðverjum eða Dönum, fer fram 9. og 10. febrúar og 1. og 2. marz. Talsímaverkfallið hér stendur enn þá. €istur 09 j$olsivikar. Khöfn 14. jan. Vopnahléið milli Eista og Bolsi- víka hefir verið endurnýjað. ijaralður SigurSsson píanóleikari er kominn til Kaup- mannahafnar. Hann verður kenn- ari við Musikkonservatoríið í Khöfn. Ijaili á pðstinum. Khöfn 14. jan. Hjá póststjórninni dönsku er 51/* miljón króna halli á 9 mán- uðum. Rðssar 09 áfengið. Eftir Einar Adamsson. í áratugi hefir áfengið gagnsýrt Rússa. Einkum eftir rússnesk- japanska ófriðinn byrjaði „vodka*, brennivínið rússneska, að streyma yfir landið. Ófriðurinn kostaði ríkið miljónir rúbla1). í stað þess að ná þeim með beinum sköttum, notaði það áfengið til að sjúga þjóðina út. Það kom af stað einkasölu á' brennivini. Knæpur voru opnaðar víðsvegar um landið, og á þenna miður heiðarlega hátt náðist ein milj. rúbla árlega. Verkamenn þræluða fyrir lágu kaupi, til að fá nokkrar rúblur til að kaupa brennivín fyrir. Þegar þeir gátu unnið sér fyrir einum Btúr“, hvíldu þeir sig í nokkra daga. Þetta sést greinilega á rússuesk- um hagskýrslum. Á árunum 1905 til 1913 óx brennivínsdrykkja um 50%, og það hafði í för aukna fátækt og glæpi. Rússneskur rit- höfundur lýsir ástandinu í tímariti með þessum orðum: „Smámsam- an breiddist lösturinn út, einkum meðal kvenna og barna". — Til þess að skilja þessa miklu bölvun, þarf maður að hafa lifað meðal þjóðarinnar. Fyrir bannið telst mönnum til, að 200,000 manns hafi dáið árlega af völdum áfengisins; þó eru þetta aðeins þeir, sem hið opinbera taldi að hafi dáið af beinum völd- um þess. í’egar ófriðurinn hófst, neyddist ríkið til að hætta brennivíns- verzluninni. Árangur sá, sem fekst, verður að mestu þakkaður þingmanninum Tchellscheff, sem kom banninu í kring. Velmegun þjóðarinnar óx svo, að heimilis- ástæður flestra bænda og verka- manna bötnuðu að stórum mun, þrátt fyrir stríðið. Þær miljónir rúbla, sem áður höfðu farið í brennivín, fóru nú í mjólk og brauð, sem ekki hafði sést á borð- um árum saman, og verkamenn létu sparifé í bankana. í Moskva fjölgaði vinnutímum um 31% fyrstu þrjá mánuðina, eða um 13457,000 tíma. Það var ætlun keisarastjórnar- 1) Hér um bil kr. 1,92.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.