Eldhúsbókin - 10.09.1983, Blaðsíða 2

Eldhúsbókin - 10.09.1983, Blaðsíða 2
Hreinsið og skerið grænmetið í litla bita. Sjóðið það í léttsöltu vatni í ca 10 mín. Látið renna vel af því. Saxið laukinn og skerið baconið í litla bita. Látið það brúnast aðeins á pönnu. Grænmeti, laukur og bacon sett í smurt eldfast mót. Þeytið saman egg, mjólk, salt og pipar og hellið því yfir. Stráið rifnum osti efst og setjið fatið í 225°C heitan ofn i ca 35 mín. Kálbögglar með hrísgrjónum 3/4 dl löng hrisgrjón, 1 hvitkálshöfuð, 300 gr hakkað lambakjöt, salt, pipar, hvitlauksduft, ca 1 dl mjólk, 1 laukur, 1 dós niðursoðnir tómat- ar (450 gr). hann krauma þar til hann er mjúkur og ljósgulur. Skerið skinkuna í ræmur og setjið hana út í pottinn ásamt rósakálinu. Bragðbætið með kryddi. Borið á borð með soðnum kartöflum. Rósakál með kartöflumosi 500 gr rósakál, 3/4 kg kartöflur, 2 dl mjólk, 1 egg, salt, pipar, smjör eða smjörlíki, 6 vinarpylsur, rifinn ostur. Hreinsið rósakálið og sjóðið það mjúkt í léttsöltuðu vatni. Látið renna af því. Afhýðið kartöflurnar og skerið þær í bita. Sjóðið þær mjúkar í léttsöltu vatni. Hellið vatninu af kartöflunum og kremjið þær og þynnið með heitri mjólk smám saman. Þeytið kartöflumosið vel, svo það verði létt í sér. Þeytið eggið saman við og bragðbætið með salti, pipar og smjörbita. Smyrjið eldfast mót og setjið helminginn af kartöflumosinu í það. Setjið rósakálið ásamt pylsubitum ofan á. Setjið það sem eftir er af kartöflumosi yfir. Setjið nokkra smjörbita ásamt rifnum osti efst. (Ekki er nauðsynlegt að nota rifinn ost). Bakað í 225°C heitum ofni í nokkrar mín, eða þar til allt er heitt í gegn. Rósakálpottur 500 gr rósakál, 150 gr bacon, 3 laukar, smjör eða smjörliki, 2 paprik- ur, vatn, súpukraftur, salt, pipar, paprikuduft. (Framh. á naestu síðu) 66 Rósakál og skinka 500 gr rósakál, stnjör, 1 laukur, 250 gr skinka, salt, pipar, muskat. Hreinsið rósakálið og sjóðið það mjúkt í léttsöltu vatni. Látið renna af því. Bræðið smjör í potti og setjið saxaðan lauk út í. Látið Nú eru allar matvöruverslanir fullar af nýju góðu káli, svo sem hvít- káli, blómkáli, grænkáli, rósakáli, rauðkáli o.fl. Nú er verðið frekar hagstætt þar sem það hefur verið nokkuð lengi á markaðinum. Þetta er því besti tími ársins til að nota það sem mest og einnig að sjóða niður og frysta ef áhugi er fyrir því. Grænmetisbakstur 1 kg blanclað grænmeti svo sem hvítkál, blómkál, gulrætur, selleri og gulrófur. Ekki er þó pörf á að nota nema svo sem 3 tegundir, 200- 250 gr bacon, 1 laukur, smjör eða smjörliki, 4 egg, 2y2 dl mjólk, salt, pipar, rifinn ostur. Sjóðið hrísgrjónin eftir leiðbeiningum á pakkanum. Takið stilkinn úr kálhöfðinu og sjóðið það í léttsöltu vatni í ca. 10 mín. Leysið blöð- in varlega hvert frá öðru. Hrærið saman hrisgrjón, hakkað kjöt og krydd og þynnið smám saman með mjólkinni. Hrærið vel og lengi. Setjið farsið á kálblöðin og vefjið þeim utan um það, lokið böggl- unum með tannstönglum. Raðið kálbögglunum í pott með smátt söxuðum lauk, söxuðum tómötum og tómatsafanum úr dósinni. Látið kálbögglana malla við vægan hita í yt klst. ítalskur grænmetispottur 2 kartöflur skornar i teninga, 2 gulrætur skornar i aflanga bita, 1 stilkur blaðselleri eða 1 dl rótarselleri i litlum bitum, 1 litið blóm- kálshöfuð, skipt i hrislur, 1 litil gulrófa skorin i litla bita, 1 laukur skorinn i hringi, 1 litill pakki frosnar grænar baunir, 2 tómatar skornir i báta, 2i/, dl súputenginssoð, 14 dl matarolia, 3 marin hvit- lauksrif eða hvitlauksduft, 2 tesk salt, t/í, tesk merian, i/2 tesk timian, 1/2 tesk estragon, 1 litið lárviðarlauf. Hreinsið og skerið grænmetið. Setjið það i eldfast mót eða pott. Sjóðið teningssoðið og setjið saman við það krydd og matarolíu. Hell- ið þvi síðan yfir grænmetið, setjið lok á mótið eða pottinn og setjið hann í 175°C heitan ofn í 30-40 min. Stingið með prjóni í grænmetið eftir 30 mín. Grænmetið má ekki verða mauksoðið. Stráið saxaðri steinselju yfir og berið grænmetispottinn fram sem sjálfstæðan rétt með brauði og smjöri eða með grilluðu kjöti eða pylsum. Kál

x

Eldhúsbókin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.