Eldhúsbókin - 10.09.1983, Blaðsíða 7
r
Samtíningur
Túníisksalat (8 manns)
3 dósir túnfiskur í olíu, 1 lítið glas kapers,
2 msk vínedik, 6 msk matarolia, pipar,
hvítlauksduft, 1 tesk rifinn laukur, salt, 1
eggjarauða, 1 msk sinnep, Vz tesk sykur.
Skraut: 4 harðsoðin egg, 2 tómatar, blað-
salat.
Túnfiskurinn skorinn í bita og raðað á
fat. Kaperskornunum stráð yfir. Sósa búin
til úr ediki, matarolíu, pipar, hvítlauksdufti,
rifnum lauk, salti, eggjarauðu og sinnepi.
Sósunni hellt yfir diskinn sem látinn er
bíða í að minnsta kosti Ví klst. Rétt áður
en hann er borinn á borð er fatið skreytt
með eggjum, tómötum og blaðsalati. Brauð
og smjör borið með.
*
Berjaís
Kaupið vanilluís i búð og setjið hann
í ábætisskálar, ásamt hrærðum berjum
svo sem bláberjum, sólberjum eða ribs-
berjum. Skreytt með þeyttum rjóma. Gotl
er að setja 1-2 msk af líkjör yfir ísinn.
Nýrnapottur
% kg nýru, 100 gr bacon, 1 laukur 1 litil
dós sveppir (má sleppa) 1 dós (ca. 425
gr) niðursoðnir tómatar, salt, pipar, 1
msk mango chutney, 1 tesk dill, 1 teslt
karrý, 2 tesk sykur, 1 tesk sinnep, 1 tesk
soðduft, 1 dl rjómi.
Nýrun eru hreinsuð vel og skorin í
sneiðar. Baconið er skorið í litla bita og
brúnað á pönnu. Sett í pott og síðan eru
nýrnabitarnir brúnaðir á pönnunni og
settir í pottinn ásamt sveppum og tóm-
ötum með soði. Öllu kryddinu bætt í
pottinn. Soðið þar til nýrun eru mjúk.
Rjómanum bætt út í að síðustu og sósan
bragðbætt að vild. f staðinn fyrir nýru
má nota hjörtu.
*
Appelsínuís með kiwiávöxtum
1 dós frosinn appelsinusafi, 3 dl vatn,
3 eggjahvitur, 2 msk sykur, 2 kiwiávextir.
Látið appelsínusafann þiðna dálitið og
setjið þá vatnið saman við. Hellt í mót
og látið í frysti i 1-11/2 klst. Þeytið eggja-
hvíturnar stífar og þeytið sykurinn smám
saman út í. Hrært saman við hálffryst-
an ísinn. Fryst áfram i ca. 2 klst. Hrær-
ið í ísnum annað slagið. Sett með skeið
í ábætisglös eða skálar ásamt sneiðum
af kiwiávöxtum.
SAUMAÐ
UPP ÚR GÖMLU
PEYSUNUM
Prjónaðar flíkur gefa ýmsa mögu-
leika varðandi samsetningar þar
sem bæði má prjóna saman hluta
þeirra, sauma þá, lykkja eða hekla.
Einnig má taka upp lykkjur og prj.
framhald eða nýja búta eftir óskum.
Prjón eða hekl gefur einnig mögu-
leika á að tengjast skinnbútum,
leðri, ofnum stykkjum eða þykkum
ullarefnum.
Hér er sýnt dæmi um hvernig má
sauma vesti og sportsokka úr tveim-
ur peysum. Sem saumaaðferðir má
nefna aftursting saumaðan með
samlitum fíngerðum garnþræði og
um 1 sm. saumfari. Saumfarinu má
síðan tylla lauslega við rönguna ef
með þarf svo það flaggi ekki laust
og myndi garð. Einnig má nefna
teygjanlegan saum saumaðan í
saumavél sem hvorki slitnar né
tognar. Nauðsynlegt er í því til-
felli að saumurinn liggi sléttur
en gefi hvorki eftir um of svo hann
myndi bylgjur eða herpist og myndi
við það ójöfn föll. Auðvitað má svo
sauma í og skreyta eftir óskum og
ekki er verra að hafa smáfólkið með
sér í leiknum.
71
J