Fréttablaðið - 18.03.2022, Side 1

Fréttablaðið - 18.03.2022, Side 1
Við höfum kallað hann inn í ráðuneytið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa- dóttir, utanríkis- ráðherra 5 4 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 8 . M A R S 2 0 2 2 Ástin bæði falleg og ljót Hákarl og aumingjaskapur Lífið ➤ 20 Lífið ➤ 22 Diplómatísk samskipti Íslands og Rússlands eru í lágmarki. Utanríkisráðherra segist skilja ákall um að vísa sendiherra Rússlands úr landi en ítrekar mikilvægi þess að halda í diplómatíska þræði. tsh@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- ráðherra útilokar ekki að varnar- viðbúnaður á vegum Atlantshafs- bandalagsins verði aukinn hér á landi. „Öll samskipti okkar við Rúss- land eru í algjöru lágmarki og við höfum stutt við allar tillögur sem hafa komið fram er snúa að því að refsa rússneskum yfirvöldum á alþjóðavettvangi, hvort sem það eru viðskiptaþvinganir eða þátt- taka í alþjóðasamstarfi,“ segir Þór- dís Kolbrún sem var stödd í Brussel á varnarmálaráðherrafundi NATO í gær. Eftir standi þó að á Íslandi, sem og í öðrum löndum, séu sendiherrar og sendiráð Rússlands enn á sínum stað. Háværar kröfur hafa heyrst frá almenningi um að vísa rúss- neska sendiherranum, Mikhaíl V. Noskov, úr landi en hann hefur reglulega endurómað staðhæfingar Rússlandsforseta um að innrásin í Úkraínu sé ekki stríð heldur aðeins sérstök hernaðaraðgerð. „Ég heyri það og hef alveg skilning á því að fólk spyrji sig hvers vegna sendiherrann sé áfram á Íslandi. Mér finnst það mjög skiljanleg spurning,“ segir Þórdís Kolbrún. Ráðherra ítrekar þó að mikilvægt sé að halda diplómatískum þræði á milli Íslands og Rússlands þótt ekki sé lengur virkt diplómatískt sam- starf á milli landanna, meðal annars í ljósi þess að Ísland er með sendiráð í Rússlandi og íslenskir ríkisborg- arar séu þar í landi. Aðspurð segir Þórdís ríkisstjórn- ina ekki hafa skoðað að víkja rúss- neska sendiherranum úr landi eða loka sendiráðinu: „Nei, við höfum kallað hann inn í ráðuneytið oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og að öðru leyti er ekkert virkt samtal, samvinna eða samráð. En í þessu fylgjum við vina- og bandalagsþjóðum og þetta hefur í sögunni verið allra síðasta úrræðið sem fólk grípur til.“ Þá segir Þórdís að ekki hafi verið tekin ákvörðun um aukinn varnar- viðbúnað hér á landi. „En ég útiloka ekki að það verði gert,“ segir Þórdís Kolbrún. Dæmi um varnir Íslands sé virkt kafbáta- eftirlit sem Bandaríkjamenn sinna og loftrýmisgæsla sem portúgalski herinn hefur sinnt undanfarið. „Atlantshafsbandalagið virkjaði allar fimm varnaráætlanir banda- lagsins nýlega sem er breyting. Það liggur ekki nákvæmlega fyrir hvað það mun þýða fyrir okkur heima á Íslandi en það þýðir aukinn við- búnað, varnargetu og þvíumlíkt,“ segir ráðherra. ■ Skilur ákall um að vísa sendiherranum úr landi Virðisaukinn er farinn út í bláinn! Laugavegi 174, 105 Rvk. www.mitsubishi.is/eclipse Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!* Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til. *Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu. Úkraínskir hermenn sem létu lífið í árás Rússa á alþjóðlegu friðargæslu- og öryggismiðstöðina í Javorív á sunnudaginn voru bornir til grafar í gær. Hér grætur móðir hermannsins Ívans Skríjpníjks yfir kistu sonar síns við útförina í Lvív. Í árásinni létu 35 manns lífið og enn fleiri særðust. Tala hermanna sem hafa látist í innrásinni er óljós en reiknað er með að þeir skipti þúsundum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.