Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 2

Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 2
Fyrsta skemmtiferðaskip ársins í Reykjavíkurhöfn birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæsla höf- uðborgarsvæðisins (HH) mun veita f lóttafólki frá Úkraínu læknisskoð- un við komuna til landsins og er undirbúningur nú í fullum gangi. Búist er við fjölda f lóttafólks frá Úkraínu hingað til lands. Allir f lóttamenn sem hingað koma frá Úkraínu verða skimaðir fyrir berklum, sárasótt, lifrarbólgu og HIV. Auk þess segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmda- stjóri lækninga hjá HH, að líklega verði fólkið einnig skimað fyrir Covid-19. Á vef Embættis landlæknis segir að ef umsækjandi greinist með einhverja af þeim sjúkdómum sem skimað er fyrir leiði það ekki til synjunar dvalarleyfis heldur sé „skoðuninni ætlað að uppfylla skil- yrði heilbrigðisyfirvalda til þess að unnt sé að grípa til viðeigandi ráð- stafana og læknismeðferða.“ Sigríður segir að undirbúningur gangi vel, leitað sé að húsnæði þar sem hægt verði að taka á móti fólkinu og veita því læknisskoðun. Spurð að því hvort notast verði við húsnæði Heilsugæslunnar á Suður- landsbraut þar sem ekki sé mikil starfsemi þar nú þegar tekin séu færri PCR-próf segir Sigríður Dóra svo ekki vera. „Við munum finna húsnæði í samvinnu við þá aðila sem vinna að þessu með okkur,“ segir hún. ■ Allir flóttamenn frá Úkraínu munu fá læknisskoðun við komuna til Íslands Sigríður Dóra Magnúsdóttir Snjóþungur vetur hefur reynst erfiður og stefnt er að opnun fjórða neyðarskýlisins í Reykjavík. Heimilislausar ungar konur eru í sérstökum vanda. Mörg sveitarfélög draga lappirnar, að sögn for- manns velferðarráðs Reykja- víkurborgar. bth@frettabladid.is SAMFÉLAG Covid-faraldur, kuldi og snjóþyngsli hafa reynst heimilis- lausum erfiður tími í höfuðborginni í vetur. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykja- víkurborgar, segir aukna sókn hafa orðið í neyðargistingu. Stefnt er að því að fjölga skýlum og opna fjórða athvarfið fyrir ungar konur. Þá eru skýlin nú opin allan sólarhringinn ef illa viðrar. „Það hefur sem dæmi verið erfitt fyrir þennan hóp að komast um borgina vegna snjóþunga og kulda, enda eru heimilislausir ekki á eigin farartækjum. Covid hefur líka sett strik í reikninginn, en allir sem vilja fá inni í neyðarskýlunum, engum er úthýst,“ segir Heiða. Borgin hefur starfrækt þrjú neyð- arskýli í vetur, tvö fyrir karla og eitt fyrir konur. Heiða segir að verið sé að ræða opnun fjórða skýlisins fyrir ungar konur. Eitt skýli er í mið- borginni, annað við Granda og það þriðja í Hlíðunum, Konukot. Heiða segir mörg sveitarfélög draga lappirnar með því að sinna ekki málefnum heimilislausra og þeirra sem eiga við fíknivanda að stríða. Mörg dæmi séu þess að íbúar annarra sveitarfélaga f lytj- ist til Reykjavíkur vegna þess að engin úrræði séu í heimabyggð. Ein af leiðing f lutninganna geti orðið tengslarof. „Það er mjög mikilvægt að byggja upp þjónustu fyrir þennan hóp um allt land. Neyðarskýli eða skyndi- gisting hjá ættingjum eða vinum er neyðarúrræði. Sveitarstjórnarfólk verður að taka það hlutverk sitt Opna þarf fleiri neyðarskýli Það er mjög mikilvægt að byggja upp þjón- ustu fyrir þennan hóp um allt land. Heiða Björg Hilmisdóttir, for- maður velferð- arráðs Reykja- víkurborgarN Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið Í húsnæði fyrir heimilislausa Í neyðar- gistingu Í húsnæði og með langtíma- stuðning Í ótryggum húsnæðis- aðstæðum 113 74 40 21 Heimilislausir í Reykjavík í október 2021 alvarlega að þjónusta alla hópa, líka þennan,“ segir Heiða. 301 íbúi í Reykjavík var í fyrra- haust metinn heimilislaus, sam- kvæmt gögnum frá borginni. ■ jonthor@frettabladid.is KÓPAVOGUR Hluta Kópavogsskóla hefur verið lokað vegna myglu. Samkvæmt tilkynningu frá Kópa- vogsbæ verða það nemendur í sjötta og sjöunda bekk skólans sem munu þurfa að vera heima vegna þess, en aðrir nemendur mæta í skólann. Hluti Fannborgar 2, sem áður hýsti Bæjarskrifstofur Kópavogs, verður nýttur fyrir kennslu. Nem- endur sjötta til tíunda bekkjar verða í Fannborg, en það eru um 170 nemendur. Í skólanum eru alls 390 börn. Í tilkynningunni segir að farið hafi verið í víðtæka sýnatöku í miðálmu Kópavogsskóla eftir að mygla greindist í einni stofu í janúar síðastliðnum og lá niður- staða sýnatökunnar fyrir síðdegis á miðvikudag. ■ Mygla fannst í Kópavogsskóla Fyrsta skemmtiferðaskip ársins, Borealis, kom til Reykjavíkurhafnar í dag. Raunar er Reykjavík lokaáfangastaður skipsins á Íslandi þar sem breyta varð siglingaáætluninni vegna veðurs. Skipið kom til Akureyrar á miðvikudaginn, fór síðan til Ísafjarðar og þaðan til Reykjavíkur. Vegna heimsfaraldursins hafa skemmtiferðaskip við Íslandsstrendur verið fá á síðustu árum. Hins vegar stefnir í metfjölda skemmtiferðaskipa á þessu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í Kópavogsskóla eru 390 nemendur. Konukot stendur við Eskihlíð 4. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 Fréttir 18. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.