Fréttablaðið - 18.03.2022, Blaðsíða 4
122
Hafnfirðingar eru á
biðlista eftir félagsíbúð
Allt á einum stað
fyrir baðherbergið
Bað- og blöndunartæki
Flísar og múrefni
Málning og kítti
Salerni, baðkör,
sturtur og handlaugar
Innréttingar
Handklæðaofnar
og frábær þjónusta
bth@frettabladid.is
MENNTAMÁL Nemendur sem vilja
sækja nám í lögreglufræðum þurfa
að vera orðnir tvítugir þegar lög-
reglunám þeirra hefst.
Nítján ára maður sem verður
tvítugur nokkrum dögum eftir að
kennsla hefst í faginu næsta haust
segist hafa orðið hissa og leiður
þegar hann sendi inn umsókn fyrir
skömmu og var hafnað um inn-
göngu á grunni fæðingardags.
Maðurinn þarf að bíða í heilt ár
þar sem námið hefst að hausti. Flest-
ir útskrifist nú 19 ára sem stúdentar
vegna styttingar framhaldsskólans.
Hann viti engin dæmi um sambæri-
legar aldurskröfur eftir fæðingar-
degi hvað varðar annað nám.
Eyrún Eyþórsdóttir, lektor í lög-
reglufræðum við Háskólann á Akur-
eyri, segir að umræða hafi orðið
um þessi mál og að það sé umdeilt
að nemar þurfi að hafa náð 20 ára
aldri þegar þeir hefja námið. Laga-
Umdeild skilyrði fyrir inngöngu í lögreglufræði
Eyrún Eyþórs-
dóttir, lektor í
lögreglufræðum
við HA
breytingu Alþingis þurfi á lögreglu-
lögum til að breyta þessu.
„Við missum af umsækjendum
vegna þessa. Mín skoðun er að best
sé að hafa sem mesta aldursdreif-
ingu í löggunni,“ segir Eyrún.
Ólafur Örn Bragason, forstöðu-
maður Mennta- og starfsþróunar-
seturs lögreglu, kannast við óánægj-
una. „Þetta eru lögin en það mætti
okkar vegna endurskoða fyrir-
komulagið í samhengi við styttingu
framhaldsskólans,“ segir hann. n
birnadrofn@frettabladid.is
REYKJAVÍK Sorphirða í Reykjavík er
talsvert á eftir áætlun, samkvæmt
upplýsingum á vef borgarinnar.
Tæming á bláum og grænum tunn-
um hefur legið niðri síðustu vikur
en á miðvikudag var byrjað að tæma
þær á ný. Búast má við að það taki
borgina um þrjár vikur að komast
aftur á áætlun.
Í skriflegu svari borgarinnar við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
ástæðan sé margþætt. Upphaflega
hafi veikindi starfsmanna haft mest
áhrif, þar með talið vegna Covid. Í
kjölfarið hafi slæmt veður og slæm
færð haft áhrif.
„Einnig hafa sorpbílar verið að
bila vegna álags. Viðgerðir hafa
síðan tafist vegna veikinda starfs-
manna á verkstæðum,“ segir í svar-
inu.
Þar segir einnig að starfsfólki hafi
verið fjölgað um fimmtán prósent
frá því í janúar ásamt því að starfs-
fólk hafi unnið alla laugardaga fyrir
utan tvo, frá því fyrir jól. Þegar spurt
er um ráðstafanir vegna slæmrar
veðurspár segir að þær ráðstafanir
sem gripið sé til séu lengri vinnu-
dagar ásamt vinnu um helgar og
fjölgun á starfsfólki.
Í Facebook-hópunum Íbúar í
Miðborg og Vesturbærinn hefur
mikið verið rætt um seinkun á
sorphirðu og tala íbúar um að bláar
og grænar tunnur hafi ekki verið
tæmdar vikum saman, samkvæmt
upplýsingum frá borginni er tæm-
ing grárra tunna, almenns rusls, á
áætlun.
Íbúar velta fyrir sér hvort greiða
þurfi fyrir þjónustuna þegar hún er
ekki veitt eða einungis veitt löngu á
eftir áætlun. Verð fyrir bláa tunnu,
sem er í minna en fimmtán metra
fjarlægð frá sorphirðubíl er 10.200
krónur á ári. Verð fyrir græna tunnu
er 10.600 krónur.
Í svari borgarinnar segir að hirðu-
gjöldin séu reiknuð fyrir árið og
ekki breytt nema verulegar breyt-
ingar verði á áætlun. „Það að ein
hirða falli niður af óviðráðanlegum
orsökum kallar ekki á endurgreiðslu
hirðugjalda,“ segir í svarinu.
„Að sama skapi verða hirðugjöld
ekki hækkuð á þessu ári, þrátt fyrir
aukinn kostnað vegna yfirvinnu og
aukins mannskaps,“ segir þar einn-
ig.
Á vef borgarinnar er biðlað til
íbúa borgarinnar um að moka snjó
frá sorpílátum og gönguleiðum og
hálkuverja þær. „Margir hverjir hafa
gert það og við þökkum þeim fyrir
það. Hins vegar er talsvert af stöðum
þar sem starfsfólk hefur hreinlega
ekki komist að tunnunum til að
losa þær,“ segir í svari borgarinnar.
„Einnig er bílum stundum illa lagt
svo sorphirðubílar komast ekki að
og líka eru hurðir að sorpgeymslum
frosnar fastar og fleira.“ n
Sorphirða í borginni á eftir áætlun
vegna manneklu og slæms veðurs
Fjölgun starfsfólk og lenging vakta hefur ekki dugað til. Veðrið hefur verið afar slæmt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sorpbílar borgarinnar hafa
bilað vegna álags og viðgerðir
tafist vegna veikinda starfs-
fólks á verkstæðum. Þetta
eru meðal ástæðna þess að
tæming á bláum og grænum
tunnum hefur legið niðri
síðustu vikurnar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
COVID -19 Umframdauðsföll voru
30,3 prósent á Íslandi um áramót og
hefur hlutfallið aldrei verið hærra
síðan faraldurinn hófst. Fyrra met
var í ágúst síðastliðnum en þá voru
umframdauðsföll 16,9 prósent.
Umframdauðsföll er tól sem notað
hefur verið til að sýna fram á raun-
verulegan kostnað Covid-19 farald-
ursins í mannslífum talið.
Hlutfallið reis mjög hratt undir lok
seinasta árs, en í október voru afar
fá dauðsföll, 14,1 prósenti minna en
í venjulegu árferði. Viðmiðunin eru
árin 2016 til 2019. Á þeim tíma var
Ísland eitt örfárra Evrópuríkja án
umframdauðsfalla.
Þróunin snerist hins vegar við og
um áramótin var aðeins Slóvakía
með hærra hlutfall en Ísland. Meðal-
tal Evrópu var þá orðið 22,7 prósent.
Umframdauðsföllum hefur fækkað
mjög hratt á meginlandi Evrópu og
í janúar var hlutfallið komið niður
í 7,7 prósent. Janúartölurnar fyrir
Ísland liggja þó ekki fyrir. n
Þróun dauðsfalla
á Íslandi öfug
miðað við Evrópu
kristinnhaukur@frettabladid.is
HA F NAR FJ Ö R Ð U R Adda María
Jóhannsdóttir, oddviti Samfylkingar
í Hafnarfirði, gagnrýnir meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks fyrir hæga íbúðauppbygg-
ingu. Samkvæmt áætlun Húsnæðis-
og mann virkja stofn unar voru aðeins
236 íbúðir í byggingu í september.
Adda bendir á að miðspá geri ráð
fyrir 152 nýjum íbúðum 2022.
122 séu hins vegar á biðlista eftir
félagslegu húsnæði. Aðeins 9 íbúðir
hafi verið keyptar í félagslega kerfið
á undanförnum tveimur árum.
Fulltrúar meirihlutans telja hins
vegar stofnunina vanmeta fjölda
íbúða í byggingu. Fjöldi á matsstigi
1 til 5 í desember hafi verið 438.
500 milljónum króna verði varið til
félagslegra íbúða á þessu ári. n
Gagnrýndi hæga
uppbyggingu
Búast má við að það
taki um þrjár vikur að
koma sorptæmingu
aftur á áætlun
4 Fréttir 18. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ