Fréttablaðið - 18.03.2022, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.03.2022, Blaðsíða 6
Hlutafélagið ISNIC sem á .is-endinguna fyrir lén á inter- netinu greiddi eigendum 108 milljónir króna í arð í fyrra. Að sögn Jens Péturs Jensen, aðaleiganda félagsins, er rangt sem haldið sé fram að ríki en ekki einkaaðilar sjái almennt um rekstur slíkra landsléna. gar@frettabladid.is FJARSKIPTI Jens Pétur Jensen, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi ISNIC – Internets á Íslandi hf., fullyrðir í yfirlýsingu á vef félagsins að rangar staðhæfingar um fyrirtækið hafi verið settar fram á Rás 2 í síðustu viku og á Bylgjunni á miðvikudag. ISNIC er hlutafélag í eigu 21 aðila. Einn þeirra er að sögn Jens ríkið með samtals 23,5 prósenta hlut. Félagið rekur landslénið .is. Jens segir því haldið fram að árgjaldið hjá ISNIC sé hátt og að ef ríkið ræki félagið yrði gjaldið lægra. „ISNIC hvetur þá sem halda slíku fram að bera saman árgjald léns hjá ISNIC og árgjald ýmissa ríkisstofn- ana nokkur ár aftur í tímann. Þá kæmi til dæmis í ljós að árgjald léna hefur lækkað um yfir 60 prósent að raungildi frá árinu 2007,“ segir í yfir- lýsingu aðaleigandans. Meðalárgjald landsléna í heim- inum var 12 dollarar í fyrra að sögn Jens. Hjá ISNIC sé galdið 29 dollarar. „Hins vegar er þjónusta ISNIC við viðskiptamenn langt umfram það sem þekkist hjá systurfyrirtækjum ISNIC erlendis, hvar ómögulegt er að fá persónulega aðstoð í gegnum síma,“ bendir Jens á en tekur fram að þetta gæti ISNIC reyndar þurft að endurskoða áður en langt um líði. Einnig segir Jens rangt að ríkis- stofnanir sjái almennt um rekstur landsléna. „Undirritaður veit aðeins eitt dæmi um slíkt í Vestur-Evrópu, sem er finnska Póst- og fjarskipta- stofnunin, en hún fékk landslénið .fi „upp í hendurnar“ eftir að stórt fjarskiptafyrirtæki, sem haft hafði reksturinn með höndum frá byrjun, fór í þrot,“ skrifar Jens. Þá segir Jens rangt að .is eigi ekki í neinni samkeppni og að sjálf- gefið sé að .is sé vinsælasta lénið á Íslandi og verði svo um alla framtíð. Markaðshlutdeild .is á Íslandi sé rétt undir 50 prósentum á móti öðrum höfuðlénum. Hlutdeild .com sé mun stærri en flestir geri sér grein fyrir. „ISNIC á með öðrum orðum í harðri samkeppni við öll önnur höfuðlén og f lytur út þjónustuna í talsverðum mæli, til dæmis eru margir Norðmenn með .is,“ segir í yfirlýsingunni. Það séð alls ekki svo að í öllum ríkjum séu landshöfuðlén viðkomandi ríkis mest notuð. Til dæmis sé .com vinsælla hjá almenn- ingi í Noregi en .no – sem auðvitað sé „afar óheppilegt lén“. Í Frakkland sé hlutdeild .fr aðeins um 20 prósent. „Velta má fyrir sér hvort markaðs- staða .is á Íslandi væri eins sterk og raun ber vitni ef ISNIC væri ríkis- fyrirtæki og árgjald léna hefði fylgt opinberri verðlagsstefnu,“ heldur Jens áfram. Þá sé rangt að eigendur ISNIC hafi greitt sér mörg hundruð milljónir króna í arð árlega. „Rétt er hins vegar að metarð- greiðsla var innt af hendi í febrúar síðastliðnum og var hún 108 millj- ónir króna,“ segir Jens. Framkvæmdastjórinn bendir á að ríkið hafi fengið alls 48,6 milljónir af þessum arði beint sem hluthafi og með skatti á arðgreiðslurnar í heild. Tekið skal fram að hlutur Jens sjálfs í ISNIC er 29,51 prósent og hlutdeild hans í arði síðasta árs hefur því verið tæpar 32 milljónir. ■ Innan við helmingur internetléna á Íslandi með hina íslensku .is-endingu Framkvæmda- stjóri ISNIC segir .no óheppilegt nafn á léni og því noti margir Norðmenn ís- lenska lénið .is. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Velta má fyrir sér hvort markaðsstaða .is á Íslandi væri eins sterk og raun ber vitni ef ISNIC væri ríkisfyrir- tæki. Jens Pétur Jensen, aðal- eigandi og fram- kvæmdastjóri ISNIC Opnaðu myndavélina í símanum þínum og skannaðu þennan QR kóða. Stöðvum kynferðisofbeldi á djamminu thorgrimur@frettabladid.is ÚKRAÍNA Áætlað er að fjallað verði um öryggismál norðurskautsríkja í ljósi innrásarinnar í Úkraínu á þingi Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle) næsta haust. Þetta kom fram í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins frá Ásgerði Ólöfu Ásgeirsdóttur, upplýsingafulltrúa stofnunarinnar. „Atburðir seinustu vikna hafa auðvitað mikil áhrif á alla heims- byggðina og er starfsemi Hring- borðsins ekki undanþegin,“ segir Ásgerður. „Næstu viðburðir Hring- borðs norðurslóða fara ekki fram fyrr en í haust og verður staðan metin í aðdraganda þeirra.“ Heimasíða Hringborðsins birti nýlega pistil þar sem Norðurskauts- ráð var gagnrýnt fyrir að gera hlé á samstarfi við Rússa vegna inn- rásarinnar. Meðal meðlima í heiðursstjórn Hringborðsins er rússneski land- Úkraína muni hafa áhrif á starfsemi Hringborðs norðurslóða Artúr Tsjilinga- rov flytur opnunarávarp á þingi Hring- borðs Norður- slóða árið 2015. Mynd/Anton Brink könnuðurinn Artúr Tsjílingarov, sem situr á rússneska þinginu fyrir Sameinað Rússland, stjórn- málaflokk Vladímírs Pútíns. Hann hefur unnið sér til frægðar að koma rússneskum fána fyrir á hafsbotni undir norðurpólnum til að eigna Rússlandi norðurheimskautið. Ásgerður segir stofnunina ekki hafa rætt stöðu Tsjílingarovs. „Með- limir [heiðursstjórnarinnar] gegna engu sérstöku hlutverki öðru en því að hafa látið málefni norðurslóða sig varða á löngum ferli og koma frá landfræðilega ólíkum stöðum. Artúr Tsjílingarov varð heiðurs- meðlimur vegna starfa sinna fyrir rússneska landfræðifélagið.“ Ásgerður bendir á að Tsjílinga- rov hefði síðast komið á ráðstefnu Hringborðsins fyrir sjö árum. „Skipan heiðursstjórnar er ekki innan verksviðs skrifstofu Hring- borðsins og mun framkvæmda- stjórn Hringborðsins ekki funda fyrr en seinna á árinu.“ ■ olafur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Samkvæmt Bloomberg- fréttastofunni segist rússneska fjár- málaráðuneytið hafa sent viðskipta- banka sínum beiðni um að greiða 117 milljónir dollara 14. mars vegna vaxtagreiðslu af rússneskum ríkis- skuldabréfum í erlendri mynt. Greiðslan á að berast Citibank í London sem sér um að greiða skulda- bréfaeigendum. Gjalddagi var nú í vikunni og eindagi er 15. apríl. Eigendur skuldabréfanna höfðu í gær ekki fengið tilkynningu frá Citi- bank um að vaxtagreiðslan hefði verið innt af hendi. Tilkynning rússneska fjármála- ráðuneytisins hefur þó leitt til bjart- sýni á mörkuðum um að Rússar standi við skuldbindingar sínar. Áhrif vanskila Rússlands yrðu mikil fyrir þróunar- og nývaxtar- ríki, auk Rússlands sjálfs. Lántöku- kostnaður myndi hækka verulega og hætt er við að eftirköst greiðslu- falls erlendra skulda auki varkárni fjárfesta gagnvart nývaxtarríkjum. Þetta mun hækka lántökukostnað. Ekki hefur sérstaklega verið metið hver áhrif greiðslufalls gætu orðið á lánskjör íslenska ríkisins, en sam- kvæmt Seðlabankanum er litið á möguleikann á greiðslufalli sem einn anga af áhrifum stríðsins. Í ritinu Fjármálastöðugleiki, sem kynnt var í vikunni, segir á blaðsíðu 28: „Bein áhrif á íslenska fjármála- kerfið af stríðinu í Úkraínu verða að öllum líkindum einkum fjölgun netárása og hækkun á fjármagns- kostnaði á erlendum lánsfjármörk- uðum, ef stríðið breiðist ekki út enn frekar … Ef ástandið varir lengi gæti hærri fjármögnunarkostnaður haft áhrif á vaxtakjör bankanna á lánveitingum í erlendum gjald- miðlum.“ ■ Vanskil Rússa gætu skert lánskjör Íslands 6 Fréttir 18. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.