Fréttablaðið - 18.03.2022, Side 10

Fréttablaðið - 18.03.2022, Side 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er hlut- verk Sam- fylkingar- innar og Viðreisnar að sann- færa þjóð- ina um að að Ísland eigi heima í Evrópu- samband- inu. Á þessi ári er stefnt að því að opna íslenskt sendiráð í Varsjá. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Það er ólán Samfylkingar og Viðreisnar að einmitt þegar mikill stuðningur við inngöngu í Evrópusambandið mælist meðal þjóðarinnar þá er við völd ríkisstjórn sem hefur alls engan áhuga á að setja málið á dagskrá. Ríkisstjórnin hlýtur að vona að umtalsverður stuðningur við inngöngu í skoðanakönnunum sé einungis dæmi um duttlungafulla hugsun sem muni fljótlega renna af þjóðinni. Hluti stjórnarand- stöðunnar hlýtur síðan að lifa í þeirri von að ríkisstjórn, sem í aðalatriðum er farsæl, springi og boðað verði til kosninga þar sem aðild að Evrópusambandinu verði helsta baráttumálið. Um leið þarf þjóðin að vera rækilega sannfærð um að innganga sé henni fyrir bestu. Það er hlutverk Samfylkingarinnar og Við- reisnar að sannfæra þjóðina um að Ísland eigi heima í Evrópusambandinu. Styrkleiki þess- ara flokka er þó ekki umtalsverður og sann- færingarmáttur þeirra ekki nægilegur til að rík ástæða sé til að ætla að þeim takist þetta. Kannski ættu Samfylking og Viðreisn að sam- einast í einn Evrópusinnaðan flokk. Þá myndi færast nokkur kratabragur yfir Samfylkinguna, en þann geðþekka blæ skortir flokkinn sárlega. Ef Samfylkingin og Viðreisn ætla að hafa þjóðina á sínu bandi í Evrópumálum verða þessir f lokkar að halda vel á spöðunum, stunda yfirvegaða pólitík og hætta þeim upp- hlaupum sem þeir hafa stundað í of miklum mæli. Þetta á sérstaklega við um Samfylking- una sem er að verða alræmd fyrir lítt vand- aðan pólitískan málflutning. Það er vissulega freistandi fyrir stjórnarandstöðuflokka að stunda upphrópunarpólitík en það gerir þá sömu um leið að fremur hvimleiðum valkosti í kosningum. Innganga í Evrópusambandið er alvörumál sem ræða þarf af fullri ábyrgð. Beinast þá augu ekki síst að stærsta stjórnmálaflokki landsins, Sjálfstæðisflokknum, sem er furðulega óábyrg- ur í þvermóðskufullri andstöðu sinni við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Flokkur sem virðist vilja fylgja frjálslyndri og víðsýnni utanríkisstefnu hatast við Evrópusambandið. Rökin eru óljós, helst þau að með aðild fórni Íslendingar hagsmunum sínum og frelsi. Hvert mannsbarn ætti að vita að náin samvinna og samstarf þjóða á milli jafngildir sannarlega ekki frelsisskerðingu. Og hvað með Vinstri græn sem hafa, þegar kemur að utanríkismálum, verið barnslega ein- föld, samanber slagorð þeirra: Ísland út Nató. Er ekki kominn tími til að þau þroskist almenni- lega og sjái Evrópuljósið? ■ Evrópuljósið Á þessi ári er stefnt að því að opna íslenskt sendiráð í Varsjá. Ég hef kynnt tillögu þess efnis á vettvangi ríkisstjórnar og utanríkismálanefndar og í samtali við sendiherra Póllands á Íslandi. Þessi áform hafa fengið afar góðar undirtektir enda er ég viss um að þetta sé rétt og eðlilegt skref í samskiptum þjóðanna. Pólskt sendiráð hefur nú þegar verið starfrækt á Íslandi um árabil og almennt gildir regla um gagnkvæmni í slíkum samskiptum. Fyrst og fremst er samt stefnt að opnun sendiráðsins í Varsjá vegna þess að um er að ræða eðlilegt skref gagnvart mikilvægri vina- og bandalagsþjóð sem er bundin sterkum tengslum við Ísland. Þar skiptir ekki síst máli sú staðreynd að mikill og vaxandi fjöldi Íslendinga á ættir að rekja til Póllands, og því er fyrirséð að menningarleg og efnahagsleg tengsl þjóðanna koma til með að vaxa og eflast. Í þessu felast fjölmörg tækifæri fyrir bæði ríki sem íslensk sendiskrifstofa getur stutt enn frekar við. Ég er því sannfærð um að þessi áfangi eigi eftir að marka nýtt skeið í samskiptum þessara vinaþjóða. Wzajemna przyjaźń W tym roku planowane jest otwarcie ambasady Islandii w Warszawie. Propozycję w tej sprawie przedstawiłem na szczeblu Rządu i Komisji Spraw Zagranicznych oraz w rozmowie z Ambasadorem RP w Islandii. Plany te zostały dobrze przyjęte, bo jestem przekonany, że jest to właściwy i nat- uralny krok w stosunkach międzynarodowych. W Islandii od lat działa już polska ambasada i generalnie obowiązuje zasada wzajemności w takich stosunkach. Zalozeniem jest otwarcie ambasady, ponieważ jest to naturalny krok w kierunku rozwoju i utrzymania przyjaznych kon- taktów obu narodów. Nie mniej ważny jest fakt, że duża i ciagle rosnąca liczba Islandczyków ma polskie korzenie, dlatego przewiduje się, że więzy kulturowe i gospodarcze między narodami będą rosły i umacniały się. ■ Gagnkvæm vinátta Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra arib@frettabladid.is Yellow viðvörun Við fengum nánast nokkra klukkutíma af skynsamlegu vorveðri áður en allt tjúllaðist aftur, íbúðagötur breyttust í plánetuna Hoth og snjó- maðurinn ógurlegi sást gramsa í óhirtu rusli í Grafarvogi. Landsmenn, sem þekktir eru fyrir yfirvegun sína, ákváðu að hringja í Veðurstofuna til að skammast yfir öllum þessum gulu viðvörunum. Viðvaranirn- ar eru vissulega orðnar dálítið þreyttar eftir að öll ófrágengnu trampólínin dreifðust jafnt milli Grænlands og Færeyja. Það er hins vegar tilefni til vitundar- vakningarátaks um gular við- varanir, í auglýsingunum væri hægt að notast við Bítlalagið klassíska „We all live in a yellow viðvörun, a gula viðvörun …“ Fylgiseðillinn Landinn hefur tekið aflyfseðils- væðingu Parkódíns fagnandi, svo mikið að spjöldin eru orðin safnvara á pari við NBA- eða Pokémon-spjöld frá tíunda áratugnum. Veikindin má nota til að hámhorfa á Dopesick. Þeir sem lögðu í það að lesa átta blaðsíðna fylgiseðilinn áttuðu sig strax á því hvers vegna það þarf lyfseðil. Eru helstu fylgi- kvillar: Veðurpirringur, slæmur tónlistarsmekkur í kringum Eurovision, hjólhýsaæði í júlí, kaupæði í desember og nöldur þess á milli. ■ Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 18. mars 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.