Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 12

Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 12
Okkar stefna hefur alltaf verið sú að við berum virðingu fyrir and- stæðingn- um. Það er bannað að vera fáviti, eins og hljóm- sveitin Dimma segir. Slagsmála- hundar eiga ekkert erindi í þetta sport. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Viðskiptavinum er bent á að gagnlegar upplýsingar er að finna á skatturinn.is Lokað í dag föstudaginn 18. mars vegna starfsmannafundar 12 Íþróttir 18. mars 2022 FÖSTUDAGUR Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður UFC-bar- dagakappans Gunnars Nel- son, segist auðvitað finna til hræðslu og stress þegar sonur hans stígur inn í bar daga- búrið. Hann segir að þegar í búrið er komið sé hann bara faðir Gunnars, ekki umboðs- maður. UFC Það styttist heldur betur í bar- dagakvöld UFC í London sem fram fer á morgun í O2-höllinni. Gunn- ar mætir Japananum Takashi Sato í veltivigt. Fréttablaðið talaði við Harald í borginni og er hann von- góður fyrir endurkomu Gunnars. „Tilfinningin er bara góð en ég er samt alltaf svaka spenntur og stress- aður á víxl fyrir svona bardaga. Að sama skapi er líðanin miklu betri núna en oft áður. Þar er stærsta breytan sú að Gunnar er heill heilsu fyrir þennan bardaga ólíkt síðustu bardögum þar sem hann hefur verið að glíma við meiðsli í aðdragand- anum.“ Pabbinn í horninu Haraldur minnist á að hann sé bæði spenntur og stressaður fyrir kom- andi bardaga. Hann er í stöðu sem fæstir þekkja, atvinna sonar hans snýst um að stíga inn í bardagabúr, horfast í augu við andstæðing og reyna að hafa betur í bardaga þeirra á milli. „Það er náttúrlega bara rosa spenna og stress sem fylgir því að vera hluti af þessu. Þetta er harðgert sport, það er ekki eins og maður sé að horfa á boðtennisleik, sagt með fullri virðingu fyrir þeirri íþrótt. Þessi íþrótt er bara öðruvísi en flestar og það eru allavegana tilfinningar sem fylgja þessu.“ Haraldur er einnig umboðsmaður Gunnars en segir að þegar á hólminn sé komið taki föðurhlutverkið við. „Það er bara pabbinn þarna sem er í horninu, umboðsmaðurinn fer bara um leið,“ segir Haraldur sem viðurkennir einnig að auðvitað fylgi þessu hræðsla. „Jú, það er alveg hræðsla sem fylgir þessu líka en ég get rétt ímyndað mér hvernig það væri í þessu ef það væri alltaf fyrir hendi að það yrði eitthvert slys. Ég væri miklu hræddari um hann ef hann væri í mótorkross. Maður verður að sætta sig við það í þessu að þetta er bardagaíþrótt. Það þýðir að það eru átök, verið að beina höggum í höfuð á mönnum og reynt að koma þeim fyrir í alls konar lásum.“ Haraldur segir einnig ekki hægt ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 18. mars 2022 FÖSTUDAGUR Er faðir Gunnars þegar á hólminn er komið Faðir og sonur en líka sam- starfsfélagar. Haraldur Dean fylgir Gunnari eftir í alla bar- daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Aron Guðmundsson skrifar frá London aron @frettabladid.is að hunsa mannlegt eðli. „Þegar maður er í horninu hjá mönnum sem manni þykir vænt um, manni eins og Gunnar er fyrir mér, vill maður heldur ekki sjá andstæðing hans meiðast illa. Hann á líka fjöl- skyldu og ástvini. Það er mín sýn að ef ég bæri ekki þessar tilfinningar innra með mér þá hefði ég stórkost- legar áhyggjur af minni stöðu.“ Virðing fyrir andstæðingnum „Innst inni veit maður líka að í hverjum bardaga er einhver sem tapar. Þess vegna hef ég alltaf haft þessa sýn, er ofboðslega ósáttur við hegðun sem margir í þessu sporti beita. Eru með stæla, beita reiði og í kjölfar bardagans sýna þeir and- stæðingi sínum lítilsvirðingu. Ég hata þetta af öllu hjarta. Ef þú getur ekki fundið til með þeim sem lýtur í lægra haldi þá þarftu bara alvarlega að athuga hausinn á þér.“ Við þessi orð Haralds rifjast það upp hjá blaðamanni þegar hann hitti þá feðga á hóteli í Lundúnum fyrir tveimur dögum. Gunnar sat í sófa á hótelinu með teymi sínu og við hlið hans var fyrrverandi andstæðingur hans, Bretinn Leon Edwards, sem Gunnar tapaði fyrir á sínum tíma. Ég ákveð að nefna þetta við Harald vegna þess að til- finningin við að horfa á bardaga í UFC er oftar en ekki sú að maður heldur að eftir bardaga skilji and- stæðingarnir ósáttir, búnir að lemja hvor á öðrum. „Það er fyndið að þú nefnir þetta því hérna beint á móti mér eru Gunnar og Leon einmitt í góðum samræðum,“ segir Haraldur, en við tölum saman í gegnum síma. „Okkar stefna hefur alltaf verið sú að við berum virðingu fyrir and- stæðingnum og við vissum það þegar Gunnar mætti Edwards að hann væri ekki að fara á móti óvini sínum heldur keppinaut.“ Haraldur segist sjálfur ekki hafa neinar sérstakar væntingar fyrir komandi bardaga Gunnars gegn Takashi Sato. „En ég er hins vegar sannfærður um að Gunnar sé betri alhliða bardagamaður. Ég geri mér vonir um að hann vinni þennan bardaga en ég er hins vegar búinn að vera það lengi í kringum þetta sport til þess að vita að maður á engan rétt á að gera einhverjar kröfur.“ Haraldur segist líka vita að það er ekkert öruggt í þessu sporti. „Ég hef séð menn sem hafa komið inn sem minni spámenn í bardaga en endað á því að bera sigur úr býtum. Það þarf ekki nema eitt högg og dags- formið í þessari íþrótt skiptir líka miklu máli. Í MMA er hver bardagi bráða bani, bardaginn klárast þegar dómarinn stoppar hann. Það er allt undir í þessu og ekkert víst.“ Það er bannað að vera fáviti Þá má segja að framganga Gunnars hafi opnað ýmsar dyr fyrir MMA á Íslandi. Hann er brautryðjandi Íslendinga á sínu sviði og það hefur haft jákvæð áhrif á umhverfi íþróttarinnar á Íslandi. Til að mynda er búið að koma upp glæsi- legri æfingaaðstöðu og miðstöð hjá Mjölni í Öskjuhlíðinni. „Við eru stolt af þessu. Það er ekk- ert sem hamlar okkur í því að halda MMA-keppni heima á Íslandi en það má samt segja að okkur skorti enn þá hluti í kringum umgjörð- ina hjá okkur. Við þurfum ekkert að finna upp hjólið í þeim efnum heldur getum bara horft til Noregs eða Svíþjóðar. Uppbyggingin sem hefur orðið á undanförnum árum er mikil, við erum rosa stolt og ánægð með aðstöðuna og áhugann á íþróttinni. Vonandi helst það bara.“ Haraldur segir hins vegar að hafa verði eina grundvallarreglu í huga varðandi íþróttina og starfið hjá Mjölni. „Það er bannað að vera fáviti, eins og hljómsveitin Dimma segir. Slagsmálahundar eiga ekkert erindi í þetta sport. Við gerðum okkur grein fyrir því þegar við fórum af stað með þetta að það yrði ásókn frá hópi fávita í starf okkar, hópi sem vill vera góður í að berja fólk, og slíkir einstaklingar eiga heima fyrir utan íþróttina. Þeir ein- staklingar vilja beita ofbeldi.“ Haraldur segir einstaklinga sem tilheyra þessum hópi hafa reynt að komast að hjá Mjölni. „Við vorum svakalega harðir á þessu og vísuðum mönnum frá. Þessir einstaklingar fara inn í þetta á röngum forsendum og eiga ekkert erindi í okkar starf, ég vil ekki sjá þá og þeir eru ekki vel- komnir í Mjölni.“ ■ aron@frettabladid.is Búist er við að hundruð Íslendinga leggi leið sína til Lundúna og í O2- höllina á laugardaginn þar sem Gunnar Nelson snýr aftur í bar- daga búrið á vegum UFC og mætir Takashi Sato. Heiðar Smith er einn af Íslendingunum sem eru á leiðinni út til Lundúna. „Maður hefur heyrt af því að það sé fullt af fólki að fara að leggja leið sína til Lundúna,“ segir Heiðar í samtali við Fréttablaðið. Þetta verður f immti bardagi Gunnars sem Heiðar fer á en með honum í för verða þrír vinir hans. Heiðar er smeykur við andstæð- ing Gunnars en vonast auðvitað eftir því að Gunnar hafi betur. „Ég held að hann (Sato) sé hættu- legur standandi og með öf luga vinstri hönd en Gunnar var á sínum tíma að æfa mikið með Conor McGregor sem er einnig með öfluga vinstri og hann hefur pottþétt lært eitthvað af honum,“ segir Heiðar Smith í samtali við Fréttablaðið. ■ Hundruð Íslendinga í O2-höllinni Spennan er að byggjast upp fyrir utan 02-höllina. FRÉTTABLAÐIÐ/ ARON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.