Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 21

Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 21
Þegar þeir finna lausn á þessu er þessi bíll sem Mercedes er með algjört skrímsli. Kristján Einar Kristjánsson, lýsandi Formúlu 1 á Viaplay og hlaðvarpsstjórn- andi Pittsins. Aðalfundur VR Fundurinn fer fram bæði sem stað­ fundur og fjarfundur í senn. Félagar sem ætla að sækja fundinn verða að skrá sig fyrirfram fyrir kl. 12.00 á hádegi á fundardegi. Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á fund­ inn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum. Á dagskrá eru hefðbundin aðal­ fundarstörf, reglugerðar breytingar og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð. Skráning, dagskrá og frekari upplýsingar er að finna á vr.is/adalfundur VR | Kringlunni 7 | 103 Reykjavík | Sími 510 1700 | vr@vr.is | vr.is Aðalfundur VR verður haldinn mánudaginn 28. mars 2022 kl. 19.30 á Hilton Reykjavík Nordica. Vill bæta met Schumacher Lewis Hamilton mætir aftur til leiks eftir að hafa misst áttunda heimsmeistara- titilinn úr greipum sér á lokametrunum í fyrra og er eflaust hungraðri en nokkru sinni. Hann vantar enn einn heimsmeistaratitil til að verða sigursælasti ökuþór allra tíma og skjótast fram úr Michael Schumacher. „Ég hugsa að hann hafi ekki verið hungraðri í langan tíma, í raun frá fyrsta meistaratitlinum. Hann er ekki í þessu út af peningunum, heldur til að skilja eftir sig arfleifð sem besti ökuþór allra tíma. Hann er handhafi allra meta, nema að hann deilir metinu yfir flesta heimsmeistaratitla með Michael Schumacher,“ segir Kristján, aðspurður hvernig hugarfar Hamilton sé eftir vonbrigði síðasta árs. „Um leið og honum tekst að bæta metið er ekki lengur hægt að rífast um það hvort hann sé besti ökuþór allra tíma.“ Pressan nær ekki til hans Augu flestra verða á hinum nýkrýnda heimsmeistara, Max Verstappen, í upphafi árs og hvernig honum og Red Bull tekst að fylgja eftir fyrsta heimsmeistaratitli ökuþóra Hollendingsins. Verstappen tókst að stöðva sigurhrinu Hamilton á síðasta tímabili og eygir nú að verða sautjándi maðurinn með fleiri en einn heimsmeistaratitil ökuþóra. „Ég held að þessi pressa hafi ekki áhrif á Max. Hann virðist hafa verið fæddur að eigin mati til að verða heims- meistari og honum finnst þessi pressa bara eðlileg. Pressan verður kannski helst á honum að nýta forskotið sem Red Bull virðist vera með í upphafi tímabils, miðað við æfingarnar,“ segir Kristján. „Í þessum slag á milli Ver- stappen og Hamilton hugsa ég að það sé mikilvægt fyrir Verstappen að byrja vel því Merdeces-bíllinn leit ekki jafn vel út á æfingunum, þó að það gæti auðvitað hafað breyst.“ Fjórum mánuðum eftir að úrslitin réðust á síðustu sekúndum eins æsilegasta lokaspretts sögunnar hefst titilvörn Max Verstappen í Formúlu 1 í Barein um helgina. Langflestir verða með augastað á baráttu Ver- stappen og Lewis Hamilton eftir dramatík síðasta árs. kristinnpall@frettabladid.is FORMÚLA 1 „Alveg fram á síðasta dag leit Ferrari langbest út á æfing- unum. Mín spá er sú að í upphafi tímabilsins verði Red Bull og Ferr- ari skrefinu á undan Mercedes en Mercedes-bíllinn er með rosalega mikinn kraft og gæði sem þeir þurfa að ná að sækja út úr bílnum,“ segir Kristján Einar Kristjánsson, lýsandi Formúlu 1 á Viaplay og hlaðvarps- stjórnandi Pittsins, hlaðvarps um Formúlu 1, aðspurður hvort það yrði tveggja hesta kapphlaup að nýju í Formúlu 1 þetta árið eða hvort önnur lið gætu blandað sér í baráttuna. Það eru tólf ár liðin síðan annað lið en Red Bull og Mercedes vann meistaratitilinn og undanfarin ár hefur Mercedes verið í sérf lokki, þar til Verstappen tókst að stöðva sigurgöngu Hamilton á síðasta ári. Ólíklegt er að aðrir ökuþórar og framleiðendur geri atlögu að titl- inum í ár þar sem liðin virðast í sér- flokki. „Það var afar stór reglubreyting sem átti sér stað á milli ára þegar kemur að hönnun bílanna sem hefur áhrif á frammistöðu bílanna á beinu köflunum. Mercedes hefur átt erfitt uppdráttar með flöktið á bílunum á beinu köflunum (e. por- poisin) í upphafi árs og hefur fyrir vikið ekki náð að fullnýta krafta bílsins á meðan þetta vandamál er enn til staðar. Þegar þeir finna lausn á þessu er þessi bíll sem Mercedes er með algjört skrímsli. Þess vegna skiptir öllu máli fyrir Verstappen að byrja tímabilið vel, helst vinna fyrstu keppnirnar, því það veit enginn hversu öflugur þessi Mercedes-bíll verður þegar þeir ná að hámarka getu bílsins,“ segir Kristján. n Tveir í sérflokki í titilbaráttunni FÖSTUDAGUR 18. mars 2022 Íþróttir 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.