Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 28

Fréttablaðið - 18.03.2022, Page 28
Ég held að Íslendingar viti ekki af því hversu vinsæll Íslenski dans- flokkurinn er út á við. Andrean LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 18. mars 2022 FÖSTUDAGUR Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b spadinn.is PIZZUR ALLA L Í K A KALLA KONUR & ninarichter@frettabladid.is Tilnefningar til Íslensku tónlistar- verðlaunanna voru kynntar í Hörpu í gær, en verðlaunin verða nú veitt í einhverju formi í tuttugasta og níunda sinn. Britpopparinn heimsfrægi Damon Albarn hlýtur þar tilnefningu í f lokki poppplötu ársins. Flestar tilnefningar hlýtur djasstónlistar- maðurinn Tumi Árnason, og eru þær sex talsins. Rokkbandið Super- sport, rapparinn Birnir og diskó- sveitin Flott hljóta hvert um sig fjórar tilnefningar. Kristján Freyr Halldórsson, fram- kvæmdastjóri verðlaunanna, minn- ist verðlaunahátíðarinnar 2020, sem haldin var um svipað leyti og heimsfaraldurinn skall á. „Um miðjan mars 2020 var Covid að skella á og þetta var eigin- lega bara síðasta boðið. Þetta var ógleymanlegur dagur. Við vorum að fá af boðanir fram eftir degi og margt fólk sem ætlaði að afhenda verðlaun, meðal annars forseti Íslands og menntamálaráðherra, var að afboða sig þennan dag,“ segir Kristján Freyr. Á síðasta ári fór verðlaunahátíðin fram í beinni útsendingu frá Silfur- bergi í Hörpu. Íslensku tónlistarverðlaunin 2022 fara fram í Hörpu þann 30. mars, að viðstöddum fjölda manns, í beinni útsendingu á RÚV. Aðspurður hvort Damon Albarn ætli að láta sjá sig á stóra kvöldinu svarar Kristján Freyr: „Ég hafði samband til að athuga hvort hann ætlaði að mæta í gær, en hann var farinn aftur út til Bretlands og er að túra. En ég mun að sjálfsögðu tékka á því, það væri náttúrulega sudda- lega gaman.“ n Suddalega gaman að fá Damon Kristján Freyr Halldórsson, framkvæmda- stjóri Íslensku tónlistarverð- launanna Lokasýningar Rómeó <3 Júlíu eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur, í uppsetn- ingu Íslenska dansflokksins, fara fram í Borgarleikhúsinu á miðvikudag og fimmtudag. Sýningar á verkinu hófust í október. Dansarar í verkinu segja sýninguna eftirsótta erlendis og hefja sýningatúr til Noregs og Spánar í apríl. ninarichter@frettabladid.is Heimsfaraldur setti strik í reikn- inginn og seinkaði frumsýningu á dansverkinu Rómeó <3 Júlíu í upp- setningu Íslenska dansf lokksins. Erna Ómarsdóttir og Halla Ólafs- dóttir sömdu verkið með þýsku dansfélagi fyrir nokkrum árum en sýndu það loksins á Íslandi, með Íslenska dansf lokknum, í fyrra- haust. Sýningin var tilnefnd til hinna virtu Faust-sviðslistaverð- launa. „Sem er rosalegt. Svo í rauninni var þetta verk tilbúið,“ segir Sigurð- ur Andrean Sigurgeirsson dansari. „En svo vildu Arna og Halla taka það lengra og gera það með okkar líkömum og okkar sviðsframkomu.“ Héldu áfram í heimsfaraldri Aðspurður hvernig heimsfaraldur hafði áhrif á dansheiminn, svarar hann að lukkulega sé Íslenski dans- flokkurinn íslensk ríkisstofnun og þannig hafi þau fengið að halda áfram sínu daglega starfi. „Við mættum á æfingar og í vinnuna nema þegar var eitthvað mjög strangt samkomubann. Þess utan voru það eiginlega bara sýningarnar sem við gátum ekki sýnt.“ Saga Sigurðardóttir, meðdansari Andrean í verkinu, segir að útrásin við að setja jafn stóra sýningu á svið og raun ber vitni sé mikil veisla. „Hún er svo mikið fyrir augað og þetta er svo mikil dans- og leik- húsveisla. Sjónræn og líkamleg og rómantísk. Allar tilfinningarnar.“ Andrean tekur undir orð Sögu: „Hún er öfgafull og spilar á blæ- brigði tilfinninga. Þetta fjallar um Rómeó og Júlíu, sem er þessi unga ást sem allir vita og þekkja einhvern veginn,“ segir hann. Tjáning án orða „Með sýningunni, og með dans- inum, getum við teygt okkur í alla króka og kima tilfinninga sem ekki er hægt að tjá með orðum. Í sam- spili með þessari tónlist getum við með dansinum, annað en í leikhúsi, náð að hreyfa við fólki á djúpstæð- ari máta heldur en til dæmis með orðum,“ segir Andrean. „Mér finnst hún fara alveg inn í það, þessi einstaka litla fallega ást, og yfir í hatrið og reiðina. Af því að ástin getur verið það fallegasta, og það ljótasta, sem maður upplifir.“ Hann segir dansverkið hafa náð miklum vinsældum erlendis. „Við erum að fara að ferðast með þessa sýningu og túra rosa mikið. Það er mikil eftirspurn eftir þessu verki.“ Þar má nefna sýningarferðalag til Noregs og Spánar með vorinu. „Ég held að Íslendingar viti ekki af því hversu vinsæll Íslenski dans- f lokkurinn er út á við. Við erum rosalega rík af hæfileikaríku sviðs- listadansfólki. Við erum rosalega mikið alltaf í sýningarferðum.“ Grallaraskapur í smæðinni Aðspurð hvað það sé í íslenskum menningarjarðvegi sem þau telja að búi til góða dansara, svarar Saga: „Að einhverju leyti er það grall- araskapur, sem er til staðar hér í listasenunni. Við erum lítið sam- félag af því að við erum svo nálægt hvert öðru og óhrædd við að teygja okkur á greinar innan listarinnar, að tónlistinni og myndlistinni.“ Andreas er sammála því. „Og eins og með allt á Íslandi erum við alltaf að finna nýjar leiðir og við erum svo, svona – gráðug í að finna eitt- hvað nýtt.“ „Og að vera leikandi,“ svarar Saga. „Og leitandi, gagnvart listinni og forminu. En líka ógeðslega mikill metnaður af því að við erum svo lítil og viljum vera best!“ n Ástin bæði það fallegasta og ljótasta sem maður upplifir Sigurður Andrean Sigurgeirsson og Saga Sigurðardóttir dansa í verkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.